„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kvenfélagasamband Ísland afhenti veglega gjöf til allra kvenna á Íslandi

Kvenfélagasamband Ísland afhenti veglega gjöf til allra kvenna á Íslandi
Fv. Elinborg Sig­urð­ar­dóttir, Guðrún Þórð­ar­dóttir, Dagmar Elín Sig­urð­ar­dóttir, Björk Stein­dórs­dóttir, Linda B. Sverrr­is­dóttir. Þórný Jóhanns­dóttir, Jenný Jóakims­dóttir og Ágústa Magn­ús­dóttir. Mynd: kvenfelag.is

Fimmtu­dag­inn 26. sept­em­ber afhentu Kven­fé­lags­konur gjöf til allra kvenna á Íslandi.   Afhend­ingin fór fram á Sjúkra­hús­inu á Akranesi en um er að ræða mónitora sem skrá fóst­ur­hjart­slátt og ómtæki. 

Kven­fé­laga­sam­band Íslands var stofnað 1. febr­úar 1930 og fagn­aði 90 ára afmæli árið 2020. Í til­efni þess stóðu kven­fé­lög um allt land fyrir söfnun fyrir tækjum og hug­bún­aði því tengdu til handa öllum konum um landið allt. Tækin koma að notum við með­göngu eða fæð­ingu eða skoð­ana vegna kven­sjúk­dóma. 

Um er að ræða mónitora sem skrá fóst­ur­hjart­slátt og ómtæki, nýja eða upp­færða eftir því sem við á, og raf­rænar teng­ingar á milli lands­byggðar og Kvenna­deildar Land­spít­al­ans. 

Tækin sem safnað var fyrir eru liður í auknu öryggi í grein­ingum og munu í mörgum til­fellum koma í veg fyrir að senda þurfi konur á milli lands­hluta vegna ýmissa óvissu­þátta. 

Með þessum hug­bún­aði verður einnig vistun hjart­slátt­ar­rita raf­rænn og er það stór þáttur í öryggi og aðgengi að rit­unum. Þá er alltaf hægt að nálg­ast þau í sjúkra­skrám móður. 

Kven­fé­lags­konur á Íslandi hafa verið bak­hjarlar Lands­spít­al­ans frá stofnun hans og staðið fyrir söfn­unum á pen­ingum og tækjum sem hafa komið sér vel fyrir fjöl­marga þegna lands­ins. 

Í tengslum við söfn­un­ina seldu kven­fé­lags­konur um allt land fal­leg arm­bönd sem í voru grafin gildi Kven­fé­lags­sam­bands­ins,  „Kær­leikur – Samvinna – Virðing“ og „Ég er kven­fé­lags­kona“. Einnig var selt súkkulaði í sam­vinnu við Omnom. Auk þess stóðu kven­fé­lags­konur fyrir mara­þon­bakstri í heilan sól­ar­hring og afrakst­ur­inn seldur til að styðja við söfn­un­ina.

Söfnunin stóð til 1. febr­úar 2021 og söfn­uð­ust sam­tals um 30 millj­ónir. Stærsti hluti fram­laga í söfn­un­ina kom beint frá Kven­fé­lög­unum víða um land. Einnig studdu fjöl­mörg fyr­ir­tæki og almenn­ingur söfn­un­ina með beinum fram­lögum. 

Inn­leið­ingu á verk­efn­inu var stýrt af starfs­hópi og var sam­starf nokk­urra stofn­ana og aðila: Kven­fé­laga­sam­bands Íslands, Land­spít­ala, emb­ættis land­læknis, Félags ljós­mæðra og fæð­ing­ar­staða á lands­byggð­inni  

Ákveðið var að velja Heil­brigð­is­stofnun Vest­ur­lands á Akranesi sem til­rauna­stað fyrir verk­efnið og þar klárað­ist inn­leið­ing og opnað var á kerfið 13. júní 2024. 

Vegna heims­far­ald­urs Covid meðan á söfn­un­inni stóð og eins vegna tækni­legra þátta sem komu upp við inn­leið­ing­una á Akranesi tók upp­setn­ing og inn­leið­ing á til­rauna­stað lengri tíma en gert var ráð fyrir. 

Tímalína frek­ari inn­leið­ingar: 

Vika 40 – Milou upp­fært á LSH og Akranesi 

Vika 41-42 – Upp­setn­ing á Ísafirði 

Vika 44 – Upp­setn­ing á Nes­kaups­stað   

Vika 46 – Upp­setn­ing í Vest­manna­eyjum

Vika 48 – Upp­setn­ing í Keflavík 

2025 – Upp­setn­ing á Selfossi

2025 – Upp­setn­ing á SAk  

Um Kven­fé­laga­sam­band Íslands:

Kven­fé­laga­sam­bandið er fjöl­menn­asta kvenna­hreyf­ingin á Íslandi sem starfar á lands­vísu. Innan sam­bands­ins starfa 17 hér­aðs­sam­bönd, 154 kven­fé­lög og eru félagar um 4500 tals­ins.  Nánar www.kvenfelag.is.

Nánar um söfn­un­ina á www.gjoftilallrakvenna.is.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins