„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sanna grét yfir kvikmynd og skrifaði pistil: „Fátækt smýgur inn í alla króka og kima lífs þíns“

Sanna grét yfir kvikmynd og skrifaði pistil: „Fátækt smýgur inn í alla króka og kima lífs þíns“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir skrif­aði pistil á Vísi í gær sem slegið hefur í gegn en hann erum fátækt.

Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir seg­ist í Facebook-færslu sem hún rit­aði í gær, hafa verið að horfa á mynd í sjón­varp­inu sem fjall­aði um fátækt. Við áhorfið hafi hún ekki náð að slaka á heldur byrj­uðu tárin að leka niður kinnar hennar enda ólst hún upp við sára fátækt.

„Ég var heima að reyna að lifa mínu besta lífi á laug­ar­dags­kvöldi og horfa á mynd í sjón­varp­inu. Fann góða mynd sem heitir Leitt að missa af þér (Sorry we mis­sed you) en teymið sem gerði þá mynd gerði líka mynd­ina I, Daniel Blake, sem fjallar um starfs­getu­mat og fátækt með raun­sönnum hætti. En já ég var að reyna slaka aðeins á og horfa á þessa mynd en fátækt­ar­end­ur­litið kom svo allt í einu fram og ég fór að tár­ast í sóf­anum og skrif­aði nokkrar línur. Mæli með þessum kvik­myndum, á reyndar eftir að klára að horfa á mynd­ina Sorry we mis­sed you.“ Þannig hljómar Facebook-færslan en pistil­inn má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Fátækt er að vera föst í ómögu­legu völ­und­ar­húsi sem þú getur ekki leikið á.

Fátækt fyllir hug­ann af sam­visku­biti. Sam­visku­biti yfir því að hafa ekki gert betur, verið betri.

Fátækt er að verða fyrir von­brigðum aftur og aftur.

Fátækt er að búast við því versta. Alltaf.

Fátækt er að leyfa sér ekki að njóta þess góða, því það gæti verið tekið af þér.

Fátækt er þegar von bregst.

Fátækt smýgur inn í alla króka og kima lífs þíns spú­andi eitri.

Fátækt sendir tauga­kerfið í russí­ban­areið. Hring eftir hring, sama þó þú sért búin að fá nóg.

Fátækt er óör­yggi.

Fátækt er úti­lokun.

Fátækt á ekki að vera til staðar.

Fátækt er hægt að útrýma.

Ef þú kæri les­andi ert sam­mála og trúir og telur að leiðin fram á við sé and­kap­ít­al­ísk þá hvet ég þig til að skrá þig í lið með okkur Sós­í­alistum gegn þeirri mein­semd sem ójöfn­uður er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins