„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Niðurlæging og afhroð Sjálfstæðisflokksins heldur áfram – Flokkurinn minni en Miðflokkurinn

Niðurlæging og afhroð Sjálfstæðisflokksins heldur áfram – Flokkurinn minni en Miðflokkurinn
Rík­is­stjórn Íslands sem kol­féll í kosn­ing­unum.

Fylg­is­hrun Sjálf­stæð­is­flokks­ins heldur áfram ef litið er til nýrrar skoð­ana­könn­unar Gallup. Flokk­ur­inn er nú sá þriðji stærsti með ein­ungis 14 pró­senta fylgi. Sam­fylk­ing er sem fyrr stærst með 26 pró­sent fylgi og hefur dalað. Hástökkvar­inn í könn­un­inni er Mið­flokk­ur­inn sem mælist með 19 pró­senta fylgi og hefur þannig lagt Sjálf­stæð­is­flokk­inn að baki sér.

Rík­is­stjórnin mælist með minna fylgi en nokkur önnur rík­is­stjórn frá upp­hafi mæl­inga fyrir 30 árum. Allir þrír stjórn­ar­flokk­arnir eru í miklum vanda. Vinstri-grænir mæl­ast með 4 pró­sent fylgi og ná ekki inn manni á þing. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur einnig á barmi fylg­is­hruns með aðeisn 6 pró­senta fylgi sem þýðir afhroð.
Viðreisn fengi 10 pró­senta fylgi og Píratar um 8 pró­sent. Flokkur fólks­ins mælist með 7,5 pró­sent. Sós­í­alista­flokk­ur­inn nær inn á þing með fimm pró­sent.

Gallup reikn­aði út skipt­ingu þing­sæta fyrir frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins. Sam­fylk­ingin fengi nítján þing­sæti, fjórtán sætum meira en í kosn­ingum. Mið­flokk­ur­inn fengi þrettán þing­menn. Hann hlaut þrjú þing­sæti í síð­ustu kosn­ingum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son á þeim árum sem þeir Bjarni Bene­dikts­son unnu saman. Nú er staðan sú að Sig­mundur skákar Bjarna í fylgi eftir mikla eyði­merk­ur­göngu.

Ef nið­ur­stöður nýjasta Þjóð­ar­púls­ins gengju eftir myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá níu þing­sæti og tap­aði sjö þing­sætum frá kosn­ingum. Viðreisn fengi sex þing­sæti, Píratar fimm og Flokkur fólks­ins og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fjögur þing­sæti hvor. Sós­í­alistar næðu þremur mönnum inn á þing.
Um 24 pró­sent lands­manna styðja rík­is­stjórn­ina sam­kvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallups. Þetta er versta útkoma rík­is­stjórnar í sögu mæl­inga á Íslandu. Engin rík­is­stjórn hefur notið stuðn­ings svo fárra í 30 ára sögu slíkra mæl­inga. Þegar rík­is­stjórnin var mynduð síðla árs 2017 sögð­ust 74 pró­sent lands­manna styðja hana.Könnunin er gerð á þeim tíma­mótum að full­komin óvissa er um það hvort stjórnin lifir til vors. Örvænt­ing er ríkj­andi innan allra flokk­anna sem reyna ákaft að ná aftur vopnum sínum.

Gríð­ar­leg ónægja er í rústum Vinstri-grænna og liggur fyrir lands­fundi flokks­ins um helg­ina til­laga um stjórn­ar­slit strax. Innan flokks­ins er almennt talið að flokk­ur­inn hafi brugð­ist helstu stefnu­málum sínum. Svandís Svav­ars­dóttir, fram­bjóð­andi í for­manns­kjöri, vill kosn­ingar í vor.

Innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins er einnig megn óánægja með for­ystu Bjarna Bene­dikts­sonar sem hefur leitt flokk­inn í þær ógöngur sem nú blasa við.
Könnunin var gerð 30. ágúst til 30. sept­em­ber 2024. Heild­ar­úr­tak var 11.138, valdir af handa­hófi úr Við­horfa­hópi Gallup. 48,3% tóku þátt. Vikmörk á fylgi flokka eru 0,6-1,3%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins