„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir Bjarna Benediktsson vera með vopnaða lífverði á Alþingi: „Svona elur á ótta og sundrungu“

Segir Bjarna Benediktsson vera með vopnaða lífverði á Alþingi: „Svona elur á ótta og sundrungu“
Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur

Lög­fræð­ing­ur­inn Katrín Odds­dóttir er yfir sig hneyksluð á vopna­leit­inni sem almenn­ingur þarf að fara í gegnum ætli hann sér að heim­sækja nýtt hús Alþingis við Tjarn­ar­götu. Þá bendir hún einnig á að Bjarni Bene­dikts­son sé með vopn­aða líf­verði inn­an­dyra á þing­inu.

Í færslu sem Katrín Odds­dóttir birti á Facebook, sem hún kallar „Hið skít­hrædda Alþingi,“ segir hún frá fundi sem hún hafi átt með þing­konu í nýbygg­ing­unni Smiðja við Tjarn­ar­götu. Var lög­fræð­ing­ur­inn allt annað en sáttur við það hvernig tekið er á móti almenn­ingi í hús­inu.

„HIÐ SKÍTHRÆDDA ALÞINGI!

Ég átti fund með þing­manni í morgun. Hún bauð mér og vin­konu minni sem ég er að aðstoða að hitta sig í nýbygg­ing­unni Smiðju við Tjarn­ar­götu.

Skemmst er frá því að segja að inn­ganga mín í þetta glæ­nýja hús (sem ég og hinir skatt­greið­endur vorum að byggja okkur) olli mér slíkum von­brigðum að ég er enn djúp­móðguð, nú sjö klukku­stundum síðar.

Okkur fannst reyndar þessi öryggis­inn­gangur og vopna­leitin í kjöl­farið báðum svo und­ar­leg að vin­konan tók þetta mynd­skeið af mér að reyna að kom­ast á fund með þessum bless­aða kjörna full­trúa. Svip­ur­inn á mér í blá­lokin á þessu mynd­bandi segir meira en þús­und orð um hversu frá­leitt mér fannst þetta allt saman.“ Þannig hefst færsla Katrínar en með henni fylgdi mynd­band sem hægt er að sjá fyrir neðan texta frétt­ar­innar.

Katrín heldur áfram: „Ég var í svo vondu skapi eftir að hafa komið inn í húsið með þessum hætti að það lit­aði allan fund­inn. Þing­konan sem ég var að hitta var jafn hissa á þessu og ég og sagði mér að upp­haf­lega hefði staðið til að neðsta hæð húss­ins væri opin almenn­ingi og hönnun þess hafi tekið mið af þeirri fal­legu pæl­ingu. Slíkt er fyr­ir­komu­lagið t.d. í Ráð­hús­inu sem stendur hinum megin við göt­una og hvar ég get farið inn án þess að komið sé fram við mig eins og grun­aðan hryðju­verka­mann. Hver er mun­ur­inn?“

Segir Katrín að svona mót­taka hafi mun meiri áhrif á fólk en almennt.

„Þetta hefur miklu meiri áhrif en fólk heldur kannski almennt því það hvernig er tekið á móti fólki gefur tón­inn um alla upp­lifun eftir það. Ég fór að hugsa um kenn­ingar Foucault um hvernig hægt sé að nota upp­bygg­ingu á rýmum til að ná stjórn á fólki. Hvernig fór hönn­unin frá því að vera öllum opin og yfir í að verða eins og ég væri að fara inn yfir landa­mæri Schengen? Erum við í alvör­unni orðin svona hrædd? Hvers konar lög skrifar fólk sem lætur leita að vopnum á gestum þess?“

Katrín segir næst í færsl­unni frá furðu­legri stað­reynd um for­sæt­is­ráð­herr­ann sem hún heyrði frá þing­kon­unni:

„Þar sem ég tuð­aði yfir þessu í byrjun fundar af nokkru offorsi sagði þing­konan mér að önnur birt­ing­ar­mynd ótt­ans væri sú stað­reynd að nú vals­aði for­sæt­is­ráð­herra um með vopn­aða líf­verði, INNANHÚSS í Alþingi! Heldur Bjarni Ben í alvöru að ein­hver þing­maður eða starfs­maður Alþingis ætli að gera til­raun til að vega hann?“

Segist hún ekki geta sest niður sem jafn­ingi með þing­manni sem hefur látið leita á henni.

„Svona óhóf­leg eft­ir­lits­hátt­semi elur á ótta og sundr­ungu. Ég get ekki sest sem jafn­ingi niður með þing­manni sem hefur látið leita á mér til að ég fengi að setj­ast í þetta sæti.

Ég er gjarnan kölluð sem gestur fyrir þing­nefndir til að gefa álit en ég mun ekki gera það framar ef það krefst þess­arar fram­komu gagn­vart mér.“

Því næst beinir Katrín orðum sínum að fötl­uðum og aðgangi þeirra að hús­inu.

„Ég var mjög fund­setin (sbr. and­setin) í dag og end­aði dag­inn á fundi með einum af mínum bestu mönnum sem er Rúnar Björn Herrera Þor­kels­son for­maður NPA mið­stöðv­ar­innar. Rúnar notar öfl­ugan raf­magns­hjóla­stól til að kom­ast sinna leiða og þegar ég sýndi honum þetta snún­ings­hylki sem fólki er gert að standa inni í til að fá að koma inn í þetta bless­aða hús, fór hann ein­fald­lega að hlægja yfir fár­an­leik­anum hvað aðgeng­is­tak­mark­anir varðar.

Vænt­an­lega er ein­hver bak­dyra­inn­gangur sem Rúnar og annað fatlað fólk getur fengið að skjót­ast inn um, líkt og þjófar að nóttu. Það væri líka ágæt­is­mynd­lík­ing fyrir það hvernig komið er fram við fatlað fólk á þessu landi. Þetta er nú einu sinni sá þjóð­fé­lags­hópur þar sem það þykir ein­fald­lega norm að þú farir á biðlista til að fá nauð­syn­lega grunn­þjón­ustu.“

Nefnir hún annað dæmi um „ömur­legan örygg­is­kúltur“ hjá stofn­unum á Íslandi:

„Og ef þið hélduð að þessum ranti lyki hér í dag elsk­urnar, þá ónei – ég er ekki búin!

Önnur vin­kona mín á aldr­aðan föður sem þurfti að leita á bráða­mót­töku fyrir nokkrum dögum. Ekki var ljóst hvað var að honum en þó lág fyrir að það var alvar­legt miðað við ein­kennin. Tvær dætur hans voru staddar hjá honum þegar greina átti frá stöð­unni en þá sagði heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn að aðeins einn aðstand­andi mætti vera við­staddur. Þegar þær sögð­ust vilja vera báðar var hótað að kalla á örygg­is­vörð. Fólkið sem vinnur þessi mik­il­vægu störf er svo gjör­sam­lega búið á því af álag­inu sem því er gert að vinna undir, að það er líka farið að leita í þennan ömur­lega örygg­is­kúltur sem hefur hingað til ekki ein­kennt okkar land. Nú virð­ist hann sækja í sig veðrið af áður óþekktum krafti og ég held að þetta sé stór­hættu­leg þróun fyrir frið­sælasta land í heimi.“

Að lokum spyr Katrín:

„Við hvað erum við svona hrædd? Af hverju má þing­konan sem þekkir mig mæta­vel, og er að bjóða mér á sinn fund vegna máls sem varða almenn­ing, ekki bara hleypa mér inn í húsið?

Á sama tíma og for­seti lands­ins biður okkur að að nota kær­leik­ann sem vopn, horfast í augu og knús­ast eru stofn­anir lands­ins að að koma upp vopna­leit eins og það sé ein­hvers konar norm. Þetta er mikil og heimsku­leg þver­sögn hjá sjálfu Alþingi – staðnum þar sem lögin, og þar með frið­ur­inn, ættu að eiga sitt lög­heim­ili.“

Hér má sjá mynd­bandið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins