„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einar Óli Einarsson er horfinn á Spáni: „Hann gat varla staðið, er fótafúinn og annað“

Einar Óli Einarsson er horfinn á Spáni: „Hann gat varla staðið, er fótafúinn og annað“
Einar Óli Ein­ars­son

Einar Óli Ein­ars­son var fluttur á háskóla­sjúkra­húsið í Tor­revi­eja á Spáni í fyrra­dag en skömmu síðar hvarf hann þaðan. Síðan þá hefur ekk­ert til hans spurst.

Ármann Thor, náinn vinur Einars Óla, segir í sam­tali við DV að honum finn­ist málið óskilj­an­legt og að hann geri allt sem í valdi hann stendur til að finna Einar Óla. Hefur hann nú aug­lýst eftir honum á sam­fé­lags­miðlum, meðal ann­ars í Facebook-hópnum Íslend­ingar á Spáni. „Ég bý á Spáni og er búinn að vera hér í átta ár. Þetta er óskilj­an­legt. Ég er góður vinur hans, hef séð um húsið hans og þess háttar en hann á hús í Quesada,“ segir Ármann, en Quesada er lít­ill nágranna­bær Tor­revi­eja. Einar var fluttur á háskóla­sjúkra­húsið í Tor­revi­eja, þaðan sem hann hvarf.

„Hann fer í sjúkra­bíl þarna upp­eftir kl. 4 í fyrra­dag og svona um 8-leytið þá segj­ast þeir hafa vísað honum frá af því þeir skildu hann ekki. Hann nátt­úru­lega talar ekki spænsku og hann er ekki að fara að vinna nein verð­laun í ensku heldur. En þetta er alveg fárán­legt, hann gat varla staðið, er fóta­fú­inn og annað,“ segir Ármann.

Fram kemur í frétt DV að Einar Óli sé slæmur til heils­unnar eftir að hann veikt­ist illi­lega í Covid-far­aldr­inum og hefur ekki náð heilsu síðan. Einar Óli er hátt á sex­tugs­aldri.

„Við fréttum síð­ast af honum 20 mín­útur fyrir 12, þá situr hann fyrir utan mót­tök­una á spít­al­anum. Eftir það veit eng­inn neitt,“ segir Ármann.

Ármann segir aðspurður að fjöl­skylda Einars Óla hafa verið í góðu sam­bandi við borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á Íslandi. Segist hann sjálfur þekkja áhrifa­mikið fólk á Spáni sem kom því í gegn að leit að Einari hófst áður en hinir lög­boðnu 48 klukku­tímar voru liðnir frá hvarf­inu.

Heil­brigð­is­þjón­usta á Spáni er almennt til fyr­ir­myndar að sögn Ármans en á háskóla­sjúkra­hús­inu í borg­inni séu tungu­mála­erf­ið­leikar og sam­skipta­vandi áber­andi.

„Á mínum átta árum hér gef ég heil­brigð­is­þjón­ust­unni hérna 10 af 10 mögu­legum miðað við Ísland, en ég hef m.a. fylgt fjöl­skyldu­með­limi hér í gegnum dán­ar­ferli. En þegar kemur að þessum þætti þá er háskóla­sjúkra­húsið með allt annað við­mót en t.d. einka­sjúkra­hús í nágrenn­inu þar sem ávallt er tryggt að fundin sé mann­eskja sem getur átt í sam­skiptum við sjúk­ling­inn. Ég hélt að lækna­eið­ur­inn fæli í sér að þér beri að sinna sjúk­lingi í hvaða ástandi sem hann er, en hann var aldrei skoð­aður,“ segir Ármann sem blöskrar þessi vinnu­brögð.

Þau sem mögu­lega gætu haft upp­lýs­ingar um afdrif Einars Óla eru beðin um að hafa sam­band við Ármann í gegnum Facebook-síðu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins