„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stúdentar fyrir Palestínu kalla til verkfalls í dag: „Háskólayfirvöld á Íslandi þegja þunnu hljóði“

Stúdentar fyrir Palestínu kalla til verkfalls í dag: „Háskólayfirvöld á Íslandi þegja þunnu hljóði“

Stúd­entar fyrir Palest­ínu í Háskóla Íslands og í Lista­há­skóla Íslands, kalla til verk­falls í dag, klukkan 12:00 en þannig vilja þeir mót­mæla aðgerð­ar­leysi háskóla­yf­ir­valda gagn­vart þjóð­ar­morð­inu í Palest­ínu.

Í við­burð­ar­lýs­ingu frá Stúd­entum fyrir Palest­ínu í Háskóla Íslands á Facebook segir meðal ann­ars:

„Mánu­dag­inn 7. októ­ber er ár liðið frá því að Ísrael hóf mann­skæð­asta og hrotta­leg­asta kafl­ann í 76 ára löngu land­ráni, her­námi og þjóð­ar­morði gegn Palest­ínu­fólki. Á þessu eina ári hafa allir háskólar á Gaza verið jafn­aðir við jörðu, háskóla­nem­endur myrtir, palest­ínsku háskóla­fólki í Jer­úsalem vísað úr störfum og fang­elsað og form­legu skóla­starfi er frestað, nú annað skóla­árið í röð. Þrátt fyrir að allar helstu alþjóða­stofn­anir og -dóm­stólar hafi kveðið á um að her­nám Ísraels og land­taka sé ólög­leg og að þeim beri að stöðva árásir á Gaza taf­ar­laust heldur Ísrael áfram að varpa sprengjum á tjald­búðir á Gaza og fang­elsa, myrða og pynta full­orðna og börn á Vest­ur­bakk­anum. Í ofaná­lag réðst Ísrael af auknum krafti á Líbanon, þar sem mörg hund­ruð manns hafa lát­ist í sprengju­árásum þeirra á síð­ustu dögum.En háskóla­yf­ir­völd á Íslandi þegja þunnu hljóði. Reyndar hafa flestar mennta­stofn­anir vest­ur­landa setið hjá og þagað yfir, eða jafn­vel stutt, gróf brot Ísra­els­ríkis gegn mann­kyn­inu, með örfáum und­an­tekn­ingum. Nemendur víðs­vegar um heim­inn hafa kraf­ist þess að háskólar þeirra slíti öll tengsl við Ísra­elskar mennta­stofn­anir og yfir­völd. Því hafa háskól­arnir svarað með algjöru aðgerð­ar­leysi gagn­vart Ísrael og beit­ingu lög­reglu­valds gagn­vart nem­endum sínum. Háskóli Íslands er ekki und­an­skil­inn þeirri stað­reynd.“

Stúd­entar í HÍ hyggj­ast ganga úr tíma klukkan 12:00 og koma saman á Háskóla­torgi til að „and­æfa aðgerð­ar­leysi HÍ gagn­vart þjóðar- og mennta­morð­inu í Palest­ínu,“ eins og það er orðað í við­burð­ar­lýs­ing­unni.

Fyrir neðan eru kröf­urnar sem Stúd­entar fyrir Palest­ínu hafa komið til skóla­yf­ir­valda HÍ:1. Að Háskóli Íslands og allar stofn­anir hans taki skýra og opin­bera afstöðu gegn þjóð­ar­morð­inu í Palest­ínu og mennta­morð­inu sem á sér stað á Gaza.2. Að Háskóli Íslands og allar stofn­anir hans slíti öllu sam­starfi við ísra­elska háskóla og tengdar stofn­anir og stofni ekki til nýs sam­starfs.3. Að Háskóli Íslands opin­beri öll tengsl háskól­ans og tengdra stofn­ana við ísra­elska háskóla, stofn­anir, fyr­ir­tæki og aðra tengda aðila og bindi taf­ar­laust enda á þau.4. Að Háskóli Íslands taki virkan þátt í end­ur­upp­bygg­ingu mennta­kerf­is­ins á Gaza, auki sam­starf við palest­ínska háskóla og fræða­fólk og styðji á annan hátt við menntun nem­enda á Gaza.Með röddum okkar og lík­ömum berj­umst við áfram fyrir frjálsri Palest­ínu.


Nemendur í Lista­há­skól­anum ætla einnig að fara í verk­fall klukkan 11:20 og mar­sera eftir Kringlu­mýr­ar­braut og Lauga­vegi að Stakka­hlíð.

Í Stakka­hlíð hefst við­burður kl. 12 til að mót­mæla „aðgerð­ar­leysi LHÍ gagn­vart þjóðar- og mennta­morð­inu í Palest­ínu.“

Kröf­urnar sem Stúd­entar fyrir Palest­ínu gera til LHÍ eru eft­ir­far­andi:

  1. Að Lista­há­skóli Íslands og allar stofn­anir hans taki skýra og opin­bera afstöðu gegn þjóð­ar­morð­inu í Palest­ínu og mennta­morð­inu sem á sér stað á Gaza.
  2. Að Lista­há­skóli Íslands stofni ekki til sam­starfs við ísra­elska háskóla og tengdar stofn­anir.
  3. Að Lista­há­skóli Íslands opin­beri öll tengsl háskól­ans og tengdra stofn­ana við ísra­elska háskóla, stofn­anir, fyr­ir­tæki og aðra tengda aðila og bindi taf­ar­laust enda á þau.
  4. Að Lista­há­skóli Íslands taki virkan þátt í end­ur­upp­bygg­ingu mennta­kerf­is­ins á Gaza, auki sam­starf við palest­ínska háskóla og fræða­fólk og styðji á annan hátt við menntun nem­enda á Gaza.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Slóvakar minnast morðsins á rannsóknarblaðamanninum Ján Kuciak: „Slóvakía er Evrópa“
HeimurMótmæli

Slóvakar minn­ast morðs­ins á rann­sókn­ar­blaða­mann­inum Ján Kuciak: „Slóvakía er Evrópa“

Mótmæli sem kölluð eru „Slóvakía er Evrópa“ fara fram á morgun, 21. febr­úar til að minn­ast þess að sjö ár eru liðin frá morð­inu á Ján Kuciak og Martinu Kušnírová. Friður til Úkraínu sam­tökin mun vinna með félag­inu For a Decent Slovakia við að skipu­leggja „Slóvakía er Evrópa“ mót­mæla­fund­inn sem áætl­aður er á morgun 21. febr­úar í Brat­islava til að...
Aðalmeðferð máls mótmælenda gegn íslenska ríkinu hefst á föstudag – Hvetja fólk til að fjölmenna
InnlentMótmæli

Aðal­með­ferð máls mót­mæl­enda gegn íslenska rík­inu hefst á föstu­dag – Hvetja fólk til að fjöl­menna

No Borders Iceland hvetur fólk til að fjöl­menna í dóm­sal við aðal­með­ferð máls mót­mæl­enda gegn íslenska rík­inu gegn rík­inu vegna til­efn­is­lausra árása og ofbeldis lög­reglu. Samtökin No Borders Iceland biðlar til fólks að fjöl­menna í dóm­sal næst­kom­andi föstu­dag en þá hefst aðal­með­ferð máls fólks sem mót­mæltu þjóð­ar­morði Ísraela á Palest­ínu­mönnum, vegna til­hæfu­lausra árása og ofbeldis lög­reglu en lög­reglan þótti að...
Dansari truflaði atriði Kendrick Lamar með fána Palestínu og Súdan – MYNDSKEIÐ
HeimurMótmæli

Dansari trufl­aði atriði Kendrick Lamar með fána Palest­ínu og Súdan – MYNDSKEIÐ

Aðgerð­ar­sinni reyndi að stela sen­unni þegar rapp­ar­inn Kendrick Lamar tróð upp í hálf­leik Ofur­skálar­innar sem haldin var í New Orleans í Louisiana-fylki Banda­ríkj­anna. Maður, sem ekki hefur verið nafn­greindur hljóp inn á svæðið þar sem dans­arar sem fylgdu Lamar í atriði hans, og veif­aði fána Palest­ínu og Súdan og hljóp fram og til baka, þar til hann var tækl­aður af...
Fimm samtök boða mótmæli við bandaríska sendiráðið: „Ofbeldið læðist að okkur eins og þoka“
InnlentMótmæli

Fimm sam­tök boða mót­mæli við banda­ríska sendi­ráðið: „Ofbeldið læð­ist að okkur eins og þoka“

Fimm sam­tök boða mót­mæli við banda­ríska sendi­ráðið. Á morgun, laug­ar­dag­inn 8. febr­úar er boðað til mót­mæla við banda­ríska sendi­ráðið á Engja­teigi 7, Reykja­vík. Fimm sam­tök standa á bak­við mót­mælin sem hefj­ast klukkan 14:00 en þar á meðal eru sam­tökin No Borders Iceland og Félagið Ísland-Palest­ína. Í lýs­ingu á við­burð­inum á Facebook segir að ótal mann­rétt­indi hafi nú þegar verið framin...
Fjölmargir mættu á kröfufund til stuðnings Palestínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“
Innlent

Fjöl­margir mættu á kröfufund til stuðn­ings Palest­ínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“

Um þús­und manns safn­að­ist saman við Hlemm í dag og gengu sam­stöðu­göngu á Aust­ur­völl til stuðn­ings Palest­ínu. Fjöl­margir mættu á kröfufund­inn.Mynd: Björgvin Gunn­ars­son Félagið Ísland-Palest­ína boð­aði til sam­stöðu­göngu frá Hlemmi að Aust­ur­velli klukkan 14:00 í dag en um þús­und manns mætti en á Aust­ur­velli var síðan hald­inn kröfufundur. Á fund­inum var þess kraf­ist að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra, standi við...
Kröfufundur vegna þjóðarmorðsins í Palestínu í dag: „Nú er komið að því að efna gefin loforð!“
Innlent

Kröfufundur vegna þjóð­ar­morðs­ins í Palest­ínu í dag: „Nú er komið að því að efna gefin lof­orð!“

Félagið Ísland-Palest­ína boðar sam­stöðu­göngu með palest­ínsku þjóð­inni í dag klukkan 14:00. Gengið verður frá Hlemmi að Aust­ur­velli í sam­stöðu með palest­ínsku þjóð­inni og þess kraf­ist að nýja rík­is­stjórnin efni gefin lof­orð og grípi til aðgerða gegn þjóð­ar­morði Ísraels í Palest­ínu. Á Aust­ur­velli verður síðan sam­stöðu- og kröfufundur. Í við­burð­ar­lýs­ingu Félags­ins Ísland-Palest­ína segir eft­ir­far­andi: „Í bar­átt­unni gegn þjóð­ar­morð­inu höfum við öll...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins