„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Annar árásarmannanna í Mosó ennþá ófundinn: „Það er náttúrulega allt í blóði“

Annar árásarmannanna í Mosó ennþá ófundinn: „Það er náttúrulega allt í blóði“
Árásin átti sér stað í Mos­fellsbæ – Mynd: Mosfellsbær

Annar árás­armann­anna sem réð­ust á ungan föður um miðja nótt á meðan hann svaf í Mos­fellsbæ í síð­ustu viku er ennþá ófund­inn en lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi það í sam­tali við Mannlíf.

Eins og Mannlíf greindi frá á föstu­dag­inn átti árásin sér stað á aðfara­nótt mið­viku­dags í síð­ustu viku og að sögn kær­ustu manns­ins, sem svaf við hlið hans þegar árásin átti sér stað, var hún gróf og alvar­leg. Sagði hún við Mannlíf að saumið hafi verið um 30 spor í höfuð hans og flest þeirra hafi verið í and­liti. Þá sé hann með möl­brot­inn þum­al­fingur á annarri hendi. Telur parið að um morð­til­raun hafi verið að ræða

Héldu ítrekað áfram

„Síðan vaknar hann og þá reynir hann að smeygja sér undan högg­unum, það er nátt­úru­lega allt í blóði. Það er eins og við séum komin í slát­ur­hús. Hann endar á gólf­inu við lapp­irnar þar sem ég ligg með haus­inn þar sem svala­hurðin er hjá okkur og þeir halda bara ítrekað áfram. Þetta eru ekk­ert fá högg. Þetta var enda­laust og með vopnum. Hann kann að verja sig, sem betur fer, þannig að þetta fór ekki verr. Hann var með hend­urnar á réttum stað,“ sagði kærasta manns­ins um árás­ina en menn­irnir not­uðu kylfu, bor­vél og fleiri vopn við árás­ina.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sagði í sam­tali við Mannlíf að annar árás­armað­ur­inn væri ennþá ófund­inn og ekki vitað hver hann væri. Þá sagði lög­reglan einnig hún vissi ekki ástæðu árás­ar­innar en kærasta manns­ins sem ráð­ist var á gat ekki gefið neinar ástæður fyrir því af hverju ein­hver ætti að vilja ráð­ast á hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Gæsluvarðhald aftur framlengt í hnífstungumálinu á Kjalarnesi
Innlentlögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Gæslu­varð­hald aftur fram­lengt í hnífstungu­mál­inu á Kjal­ar­nesi

Karl­maður á fimm­tugs­aldri sem var úrskurð­aður í áfram­hald­andi fjög­urra vikna gæslu­varð­hald í jan­úar að kröfu Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í þágu rann­sóknar hennar á alvar­legri lík­ams­árás í húsi á Kjal­ar­nesi á nýársnótt mun sitja í gæslu­varð­haldi í fjórar vikur til við­bótar. Er það gert á grund­velli almanna­hags­muna sam­kvæmt lög­reglu. Tveir slös­uð­ust alvar­lega í árásinni þar sem hnífi var beitt og hlaut...
Strætó velti fólksbíl á Snorrabraut – Lögreglan leitar að vitnum
Innlentlögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Strætó velti fólks­bíl á Snorra­braut – Lög­reglan leitar að vitnum

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu óskar eftir vitnum að árekstri fólks­bif­reiðar og stræt­is­vagns sem varð á gatna­mótum Snorra­brautar og Berg­þóru­götu í Reykja­vík í morgun. „Til­kynn­ing um árekst­ur­inn barst kl. 10.38 en fólks­bif­reið­inni var ekið austur Berg­þóru­götu og inn á gatna­mótin, en stræt­is­vagn­inum var ekið suður Snorra­braut þegar árekstur varð með þeim. Þarna eru umferð­ar­ljós, en öku­mönn­unum ber ekki saman um stöðu ljósanna...
Baggalútsgestir látnir blása í rassíu lögreglu: „Þetta voru átján karlar“
Innlentlögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Baggalúts­gestir látnir blása í rassíu lög­reglu: „Þetta voru átján karlar“

Tuttugu og fimm öku­menn voru teknir fyrir ölv­unar- og fíkni­efna­akstur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um helg­ina segir í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni. 19 voru stöðv­aðir í Reykja­vík, þrír í Kópavogi, tveir í Hafn­ar­firði og einn í Garðabæ. Tveir voru teknir á föstu­dags­kvöld, þrettán á laug­ar­dag, átta á sunnu­dag og tveir aðfara­nótt mánu­dags. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs voru gestir á jólatón­leikum Baggalúts meðal þeirra sem...
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar: „Jafnrétti er ákvörðun!“
Innlentlögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fékk við­ur­kenn­ingu Jafn­vægis­vog­ar­innar: „Jafn­rétti er ákvörðun!“

Í gær tók Halla Bergþóra Björns­dóttir, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í þriðja sinn við við­ur­kenn­ingu Jafn­vægis­vog­ar­innar á við­ur­kenn­ing­ar­at­höfn verk­efn­is­ins. Jafn­vægis­vogin er hreyfi­afls­verk­efni Félags kvenna í atvinnu­líf­inu (FKA), í sam­starfi við hag­að­ila, að því er kemur fram í til­kynn­ingu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á Facebook. Við­ur­kenn­ing­arnar eru veittar til þeirra fyr­ir­tækja og stofn­ana sem náð hafa mark­mið­miðum um sem jafn­ast hlut­fall kynja í...
Morðtilraun í Mosfellsbæ: „Það er eins og við séum komin í sláturhús“
Innlentlögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Morð­til­raun í Mos­fellsbæ: „Það er eins og við séum komin í slát­ur­hús“

Eins og Mannlíf greindi frá í gær var ráð­ist á ungan mann inn á heim­ili kær­ustu hans í Mos­fells­bænum á aðfara­nótt mið­viku­dags á meðan börn þeirra sváfu í næsta her­bergi en árás­ar­menn­irnir voru tveir. Parið telur að um morð­til­raun sé að ræða. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festi í sam­tali við Mannlíf að hún væri með málið til rann­sóknar en vildi að...
Fantar gengu í skrokk á sofandi heimilisföður um miðja nótt í Mosfellsbæ
Innlentlögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Fantar gengu í skrokk á sof­andi heim­il­is­föður um miðja nótt í Mos­fellsbæ

Tveir ein­stak­lingar réð­ust inn á heim­ili pars í Mos­fells­bænum á aðfara­nótt mið­viku­dags og réð­ust á mann þar sem hann lá í rúmi sínu við hlið konu sinnar. Í næsta her­bergi við parið sváfu ung börn þeirra. Maðurinn er sagður vera mjög illa far­inn, sér­stak­lega í and­lit­inu, eftir árás­ina, og þurfti hann fara upp á sjúkra­hús þar sem gert var að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins