„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

KSÍ sækir um vínveitingaleyfi: „Ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu“

KSÍ sækir um vínveitingaleyfi: „Ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu“
Leik­ur­inn fór fram á Laug­ar­dals­velli – Mynd: KSI.is

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands sótti um vín­veit­inga­leyfi í sumar og hefur sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu umsókn­ina til með­ferðar.

Eins og staðan er í dag er sala áfengis bönnuð í íþrótta­mann­virkjum í Reykja­vík en und­an­farin ár hefur KSÍ fengið und­an­þágu frá reglum borg­ar­innar. Þykir sumum sér­stakt að sam­bandið sem hefur í gegnum árin lagt mikla áherslu á lýð­heilsu skuli á sama tíma vera selja áfengi.

Umboðs­maður barna segir nei

Í fram­haldi af umsókn KSÍ ákvað Reykja­vík­ur­borg að leita til hags­muna­að­ila og spyrja þá álits um hvort það ætti mögu­lega að breyta reglum borg­ar­innar um áfeng­is­sölu í íþrótta­mann­virkjum eða jafn­vel fella þær alveg úr gildi. Einn af þeim hags­muna­að­ilum sem um ræðir er umboðs­maður barna.

„Umboðs­maður barna telur alls ekki að fella eigi ákvæði 11. gr. niður eða breyta því. Ákvæðið leggur bann við veit­ingu áfengis í íþrótta­mann­virkjum og telur umboðs­maður ekki undir neinum kring­um­stæðum að breyt­ingar, sem hafa í för með sér aukna áfeng­is­neyslu eða áfeng­is­veit­ingar á íþrótta­við­burðum þar sem börn eru við­stödd eða taka þátt, geti sam­rýmst þeirra bestu hags­munum,“ segir í umsögn umboðs­manns barna um málið.

Borgin óskaði eftir umsögn frá ÍBR, ÍSÍ, UMFÍ, Embætti land­læknis, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, Barna­heill, Samtökum atvinnu­lífs­ins, Samtökum ferða­þjón­ust­unnar, Alþýðu­sam­bandi Íslands, Umboðs­manni barna, Félagi áhuga­fólks um for­varnir og heilsu­efl­ingu, IOGT, Reykja­vík­ur­ráði ung­menna, vel­ferð­ar­ráði og mann­réttinda­ráði.

Laug­ar­dals­völlur sagður umfangs­lít­ill

Athygli vekur að KSÍ sótti um rekst­ar­leyfi í flokki II en undir það flokk­ast „umfangslitlir áfeng­is­veit­inga­staðir þar sem starf­semin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenn­inu svo sem með háværri tón­list og staðir sem kalla ekki á mikið eft­ir­lit og/eða lög­gæslu,“ en á lands­leiki Íslands í knatt­spyrnu mæta reglu­lega þús­undir ein­stak­linga og þá er Laug­ar­dals­völlur stað­settur við hlið­ina á íbúða­hverfi.

Í sam­tali við Mannlíf sagði Eysteinn Pétur Lárusson, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, að reynsla sam­bands­ins af áfeng­is­sölu væri mjög jákvæð og KSÍ líti á hana sem sjálf­sagða þjón­ustu.

Málið verður tekið fyrir á fundi menn­ingar- og íþrótta­ráði borg­ar­innar á föstu­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins