„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mikið ósætti meðal kennara vegna skæruverkfallanna: „Ég er að segja þér að þetta er fjarstæða“

Mikið ósætti meðal kennara vegna skæruverkfallanna: „Ég er að segja þér að þetta er fjarstæða“
Þor­steinn Sæbergþ Mynd: RÚV

Kennarar skipt­ast í tvær fylk­ingar vegna hinna nýju verk­falls­að­gerða sem kosið er nú um. Í öðrum hópnum eru þeir kenn­arar sem finnst þetta frá­bær leið til að knýja fram betri kjör en í hinum hópnum tala menn um sið­leysi.

Til hádegis í dag gefst kenn­urum í leik- grunn og fram­halds­skólum lands­ins að kjósa um fyr­ir­huguð skæru­verk­föll. Kenn­ara­sam­bandið hefur nú valið átta skóla á land­inu og einn tón­list­ar­skóla, þar sem kenn­arar eiga að leggja niður störf, ýmist tíma­bundið eða ótíma­bundið, þar til tekst að semja um betri kjör. Þeir kenn­arar sem Mannlíf hefur rætt við að und­an­förnu segja að fólk innan þeirra raða sé ýmist mjög hlynnt þess­ari nýstár­legu hug­mynd að kenn­ara­verk­föllum eða mjög á móti þeim og hafa jafn­vel gengið svo langt að kalla þetta sið­leysi.

Fjarstæðukenndar sögusagnir

Sögu­sagnir meðal sumra kenn­ara sem Mannlíf hefur rætt við segja að skól­arnir sem valdir voru til að fara í verk­föll, hafi verið valdir þannig að innan skól­anna séu börn full­trúa samn­inga­nefndar Samtaka sveit­ar­fé­lag­anna við nám. Þessu neit­aði Mjöll Matth­í­as­dóttir, for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara í sam­tali við Mannlíf á dög­unum og sagð­ist dást að hug­mynd­ar­flugi fólks.

Í sama streng tekur Þor­steinn Sæberg, for­maður Skóla­stjóra­fé­lags Íslands og með­limur í stjórn Kenn­ara­sam­bands Íslands.  „Ég held þú getir nú svarað þeirri spurn­ingu sjálfur,“ sagði Þor­steinn í sam­tali við Mannlíf og skelli­hló, aðspurður út í sögu­sagn­irnar sem sagt er frá hér að ofan. Bætti síðan við, enn hlæj­andi: „Sko, það kemur bara í ljós á morgun [í dag. inn­skot blaða­manns.] hvaða skólar þetta eru og þá koma örugg­lega fram ein­hverjar kenn­ingar“. Spurður hvort hann neiti þessu alfarið svar­aði Þor­steinn: „Get ég ekki neitað þessu? Ég er bara að segja þér að þetta er fjar­stæða“.

Aðspurður um það hvernig skól­arnir hafi verið valdið svarar Þor­steinn: „Ég get ekk­ert svarað þeirri spurn­ingu einu sinni. Það var bara, hvað á maður að segja? Það voru valdar mis­mun­andi skóla­gerðir til að spegla landið allt og ef þetta gengur ekki þá koma bara aðrir skólar og aðrir skólar. Og það eru engar djúpar pæl­ingar í því. Alls ekki,“ sagði Þor­steinn og hló.

En hvað finnst Þor­steini um sið­ferð­is­legu hlið­ina á skæru­verk­falli kenn­ara, að velja ákveð­inn hóp af börnum til að missa úr námi svar­aði hann: „Þetta svarar sér eig­in­lega sjálft. Það var ágætis umræðu­þáttur á RÚV heyrði ég, skýr­ing fræði­manns á því. Ég ætla ekk­ert að kommentera á þetta, þetta er bara sú aðferð sem við erum að fara til þess að ná árangri fyrir okkar félags­menn og fyrir börnin í land­inu fyrst og fremst. Við erum að fara í slíkar aðgerðir ekki síst fyrir börnin í land­inu.“

En ef kemur til verk­falls mun ákveð­inn hópur missa úr námi ekki satt?

„Ja, svona er bara staðan, þegar grípa þarf til aðgerða þá eru það alltaf ein­hverjir sem lenda fyrir slíku“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kennaraverkfall

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“
Innlent

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“

Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. Kennarar eru í áfalli eftir að Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hafn­aði inn­an­hús­til­lögu sem rík­is­sátta­semj­ari lagði fram í kenn­ara­deil­unni. Einn þeirra, Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla, birti í gær mynd­skeið á Facebook þar sem hann seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. „Hvað gerir maður á...
Telma svarar kennurum fullum hálsi: „Enginn er hafinn yfir gagnrýni“
Innlent

Telma svarar kenn­urum fullum hálsi: „Enginn er haf­inn yfir gagn­rýni“

Telma Lucinda Tómasson svarar fyrir gagn­rýni kenn­ara vegna við­tals sem hún tók við for­mann Kenn­ara­sam­bands Íslands á Stöð 2 en hún segir engan haf­inn undir gagn­rýni. Athygli vakti þegar Telma L. Tómasson, frétta­þulur á Stöð 2, tók við­tal við Magnús Þór Jónsson um kenn­ara­verk­fallið sem er í gangi en mörgum þótti hún vera helst til of ágeng í spurn­ingum sínum....
Risastór stéttarfélög lýsa yfir stuðningi við kennara: „Vanmat á kvennastörfum“
InnlentKennaraverkfall

Risastór stétt­ar­fé­lög lýsa yfir stuðn­ingi við kenn­ara: „Vanmat á kvenna­störfum“

Bæði BSRB og BHM hafa lýst yfir stuðn­ingi við verk­falls­að­gerðir kenn­ara sem standa nú yfir á leik-, grunn- og fram­halds­skóla­stigi en verk­föllin hófust í lok októ­ber en fara aðeins fram í hluta skóla á land­inu. Ekkert þok­ast í við­ræðum Kenn­ara­sam­bands Íslands og SÍS en SÍS telur kenn­ara fram á allt of háa launa­lækkun meðan kenn­arar telja sig vera sár­lega van­metna...
Klúður í Menntaskólanum í Reykjavík
InnlentKennaraverkfall

Klúður í Mennta­skól­anum í Reykja­vík

Ekki var boðað rétt til verk­falls og þurfti því að kjósa aftur um slíkt í Mennta­skól­anum í Reykja­vík en greint er frá þessu á heima­síðu Kenn­ara­sam­bands Íslands. Verkfall hafði verið sam­þykkt í fyrri atkvæða­greiðslu og var það einnig sam­þykkt í síð­ari atkvæða­greiðslu. 85% þeirra sem tóku þetta í atkvæða­greiðsl­unni greiddu atkvæði með verk­falli, 9% sögðu nei og voru auðir seðlar...
Dómur hefur fallið – Verkfallsboðun kennara lögleg
Innlent

Dómur hefur fallið – Verk­falls­boðun kenn­ara lög­leg

Verk­falls­boðun kenn­ara er lög­leg, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Félags­dóms. Kenn­ara­sam­band Íslands var sýknað í morgun í Félags­dómi af kröfu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er taldi verk­falls­boðun kenn­ara ólög­lega. Vísir segir frá mál­inu. SÍS stefndi boðun verk­falls í fjöldi skóla vegna þess að engin kröfu­gerð lág fyrir í kjara­deil­unni en for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, Magnús Þór Jónsson, segir stefn­una ekki hafa áhrif á boðuð verk­föll...
Jón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara: „Gætu veikindi vegna myglu skýrt þetta?“
Innlent

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara: „Gætu veik­indi vegna myglu skýrt þetta?“

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara og kemur með áhuga­verðan punkt varð­andi aukin veik­indi í stétt­inni. Grínist­inn og fram­bjóð­andi Við­reisnar í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum, Jón Gnarr, skrif­aði Facebook-færslu í gær en með færsl­unni birtir hann skjá­skot af frétt mbl.is sem fjall­aði um úttekt Við­skipta­ráðs á skóla­málum. Þar kemst Við­skipta­ráð meðal ann­ars að þeirri nið­ur­stöðu a veik­inda­hlut­fall kenn­ara vera almennt mun...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins