Í dag voru samþykkt skæruverkföll kennara en þeir eru þessar mundir að reyna semja um betri kaup og kjör en eins og staðan er núna fara kennarar í verkfall 29. október. Það verða þó ekki allir kennarar en verkfallið takmarkast við átta skóla. Þeir leikskólar sem um er að ræða eru leikskólarnir Leikskóli Seltjarnarness, Holt í Reykjanesbæ, Drafnarsteinn í Reykjavík og Ársalir á Sauðárkróki, grunnskólarnir eru Áslandsskóli í Hafnarfirði, Laugalækjaskóli í Reykjavík og Lundarskóli á Akureyri. Þá var einnig samþykkt boðun um verkfall í Fjölbrautaskóla Suðurlands í Árborg.
Atkvæðagreiðsla er ennþá í gangi í níunda skólanum, sem er tónlistarskóli, en atkvæðagreiðsla hófst degi á eftir hinum.
Mannlíf spyr því lesendur: Styður þú skæruverkföll kennara?
| Svar | Hlutfall |
|---|---|
| Já 88.47% | 88,47% |
| Nei 11.53% | 11,53% |
Könnun þessari lýkur klukkan 15:00 föstudaginn 11. október.

























Athugasemdir