„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þórunn þakkar Einari borgarstjóra: „Við erum frek“

Þórunn þakkar Einari borgarstjóra: „Við erum frek“
Einar Þor­steins­son fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur

Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri er senni­lega óvinur númer eitt hjá kenn­urum lands­ins í dag og þá sér­stak­lega í Reykja­vík eftir ummæli sem hann sé falla fyrir helgi.

„Mér finnst ein­hvern veg­inn öll töl­fræði, til dæmis bara um skól­ana okkar, benda til þess að við séum að gera eitt­hvað alger­lega vit­laust. Að kenn­ar­arnir séu að biðja um það að fá að vera minna með börnum, en eru samt veik­ari en nokkru sinni fyrr. Kenna minna og með fleiri und­ir­bún­ings­tíma,“ sagði borg­ar­stjór­inn á fjár­mála­ráð­stefnu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Ekkert nema let­ingjar

Þórunn Sif Böðv­ars­dóttir kenn­ari í Reykja­vík birti fyrr í dag kald­hæðn­is­legan pist­ill en sá er stíl­aður á Einar.

„Takk fyrir að benda okkur kenn­ara­let­ingj­unum á hvað við erum frek og nennum ekki að vinna vinn­una okkar. Þessi ræða þín verður örugg­lega til þess að nú hunskast allir kenn­arar, ef kenn­ara skyldi kalla, til að fara að vinna vinn­una sína,“ skrifar Þórunn til Einars í pistl­inum sem birt­ist á Vísi.

„Takk fyrir að benda kenn­urum á hvað það er dýrt fyrir sveit­ar­fé­lögin að þeir séu svona mikið veikir, ég er viss um að ræðan þín verði nú til þess að við förum nú að hætta því ves­eni. Fussum svei! Það er svo ótrú­lega dýrt fyrir sveit­ar­fé­lögin að vera með svona lata kenn­ara sem nenna ekki að vinna vinn­una sína.

Takk fyrir að benda okkur á að það er nú hel­ber óþarfi að vera með „ein­hverja“ und­ir­bún­ings­tíma eins og þú orð­aðir það svo fag­mann­lega. Við ættum nú bara að geta staðið óund­ir­búin fyrir framan 25 manna hóp og talað í átta tíma á dag. Þú sýndir það og sann­aðir með ræðu þinni að það er hægt að standa og tala fyrir framan nokkur hund­ruð manns alveg óund­ir­bú­inn og upp­skera lófa­klapp!“

Kennslan er lúxusstarf

Þá þakkar Þórunn fyrir að kenn­urum hafi verið sýnt að þeir séu góðum höndum Einars og hann beri mikla virð­ingu fyrir starfs­mönnum borg­ar­innar.

„Takk fyrir að opna augu okkar kenn­ara­let­ingj­anna fyrir því að 690 þús­und króna laun (fyrir skatt) eftir fimm ára háskóla­nám eru full­boð­leg fyrir svona lúxusjobb. Ég er sann­færð um að þessi ræða þín verði til þess að við kenn­arar, ef kenn­ara skyldi kalla, girði sig nú í brók og hætti þess­ari heimtu­frekju. Að nýút­skrif­aðir kenn­arar sem hafa farið til betur laun­aðra starfa sjái nú villu síns vegar og flykk­ist aftur inn í skól­ana.

Takk!“ skrifar Þórunn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins