„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Magnús Þórsson prófessor um kannabis: „Getur gert lífið á Íslandi bjartara og betra“

Magnús Þórsson prófessor um kannabis: „Getur gert lífið á Íslandi bjartara og betra“
Magnús Þórsson. Mynd: Aðsend

Hamp­fé­lagið hélt um helg­ina mjög vel heppn­aða ráð­stefnu um iðn­aðar og lyfja hamp (e. medical kanna­bis). Félagið flutti inn 14 þunga­vigtar vís­inda og heil­brigð­is­fólk frá öllum heims­hornum sem héldu fyr­ir­lestra. Tekin voru 12 við­töl en öll voru þau á ensku fyrir utan við­talið sem birti nú hér fyrir neðan:

Auðveldara að rækta kannabis en refi

„Ég hef áhuga á því að hjálpa Íslandi að finna út hvaða reglu­gerð­aum­gjörð virkar best og ég held að Íslandi eigi að gera þetta,“ segir Magnús Þórsson, pró­fessor við háskól­ann Johnson & Wales í Rhode Island-ríki í Banda­ríkj­unum, í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lag­ins, en hann kennir frum­kvöðla­starf í kanna­bis­geir­anum, nám sem er ein­stakt á heims­vísu. Magnús segir að stjórn­völd ættu að ráð­ast í lög­leið­ingu á kanna­bis enda muni það stuðla að sjálf­bærum atvinnu­rekstri, nýsköpun og ótal tæki­færum fyrir Íslend­inga, til að mynda í gegnum skatt­heimtu af grein­inni.

Í frum­kvöðla­nám­inu er farið djúpt ofan í laga­lega, félags­lega og við­skipta­lega þætti kanna­bis­fram­leiðslu og sam­einar það vís­indi, við­skipti og nýsköpun. „Ástæða þess að ég hann­aði þetta nám er sú að ég hef verið að stúd­era sjálf­bærni og verið að kenna sjálf­bærni og sá að það var margt sam­bæri­legt þegar litið er til sjálf­bærni og lyfja­hamps. Það voru svipuð öfl sem börð­ust á móti þróun í bæði sjálf­bærni og lög­leið­ingu, mikið var um rangupp­lýs­ingar og ég sá að þetta bitn­aði helst á við­kvæmum sam­fé­lags­hópum. Einnig sá ég að umfangið var að aukast mikið og ég sá tæki­færi til að mennta fólk í þessum geira.“

Magnús við kennslu.

Námið byggir á umfangs­mik­illi rann­sókn­ar­vinnu og skiln­ingi á mögu­leikum í kanna­bis­við­skiptum og segir Magnús að víða um heima vanti veru­lega aðgengi­legar upp­lýs­ingar fyrir almenn­ing um kanna­bis sem byggðar eru á vís­inda­stað­reyndum. Hvað varðar stöð­una á Íslandi segir Magnús að stjórn­völd verði að horfa á málið frá öllum hliðum. „Áfeng­is­lög­gjöfin á Íslandi er þannig að skatt­ur­inn sem lagður er á áfengi á að dekka kostn­að­inn við að leyfa verslun með áfengi því að það er afleiddur kostn­aður sem fylgir því. En kostn­að­ur­inn við að leyfa verslun með kanna­bis er eng­inn. Það hefur ekki kostað þjóð­fé­lagið neitt. Það hafa ekki verið nein dauðs­föll og fólk er ekki að keyra undir áhrifum. Það hefur ekki sama kostnað í för með sér og er þar af leið­andi hag­kvæmara að selja kanna­bis en áfengi.“

Spurður nánar út í þá full­yrð­ingu að fólk aki ekki undir áhrifum kanna­bis í Banda­ríkj­unum segir Magnús: „Ef við tölum um rang­hug­myndir þá var þetta ein þeirra, að það yrðu bara allir að keyra undir áhrifum og slys úti um allt. En það hefur ekki orðið nein aukn­ing á því að fólk keyri undir áhrifum.“

Gerir lífið á Íslandi bjartara og betra

Magnús segir að rækta eigi lyfja­hamp á Íslandi og nota arð­inn af fram­leiðsl­unni og söl­unni í þágu þjóð­fé­lags­ins. „Þetta er skap­andi iðn­grein. Þetta er auð­veld­ara en ref­arækt og auð­veld­ara en margar hlið­ar­bú­greinar. Hamp­ur­inn hefur mörg not og ég held að það væri gott í þágu Íslands að rík­is­stjórnin myndi horfa á þetta í heild sinni. […] Það er ekki erfitt að gera sam­an­burð, það er svo mikið af upp­lýs­ingum frá Banda­ríkj­unum, um það hvað hefur virkað vel og hvað ekki. Við erum með frá­bæra stétt lækna og hjúkr­un­ar­fólks sem þarf að taka þátt í þessu og allir hags­muna­að­ilar þurfa að vera sam­stiga til að stuðla að iðn­aði sem er sjálf­bær. Með góðri umgjörð þá ætti þetta að vera Íslandi í hag.“

Magnús segir ljóst að kanna­bis sé ekki fyrir alla að nota en engu að síður geti efnið hjálpað mörgum. „Það eru til þjóð­fé­lags­tölur þar sem kanna­bis er lög­legt og þar hafa aðstæður í þjóð­fé­lag­inu batnað. Fólk getur verið lengur í vinnu vegna þess að þetta linar þján­ingar þeirra. Fólk hefur öðl­ast sjálfs­traust til að vera lengur í vinnu undir lok starfsæv­innar því það er hægt að vera með þetta í verkja­still­andi formi sem hefur ekki vímu­á­hrif, linar bara þján­ingar. Og það er betra fyrir íslenskt þjóð­fé­lag að hafa fólk í vinnu lengur. […] Kannabis er ekki fyrir alla og ekk­ert undra­lyf en ef þetta er notað sam­kvæmt ráð­legg­ingum lækna þá getur kanna­bis gert lífið á Íslandi bjart­ara og betra. […] Viljum við eyða pen­ingum í lög­gæslu eða gera þetta lög­legt og njóta góðs af tekj­unum.“

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan en einnig má hlusta á hann á öllum streym­isveitum eins og https://open.spotify.com/episode/4higBb00WqpMi3gsUzVgYk?si=5P5YdqjvT6e6TczzEiNRbw.

Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Magnús, Andri Karel sá um frétta­skrif og Mickael Lakhlifi sá um tækni­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hampfélagið

Kannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði
Menning

Kannabis mætir skorti á blóð­vökva – Viðtal við sér­fræð­ing á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði

„Árleg áætluð eft­ir­spurn eftir blóð­vökva hefur verið um 160 millj­ónir lítra en um 100 millj­ónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sér­fræð­ingur á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði, en fyr­ir­tæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjör­bylt heil­brigð­is­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með dokt­ors­próf í lækn­is­fræði frá Charles háskól­anum í...
Hampfélagið stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu: „Ísland er Eden fyrir kannabisræktun“
Innlent

Hamp­fé­lagið stendur fyrir alþjóð­legri ráð­stefnu: „Ísland er Eden fyrir kanna­bis­ræktun“

„Með okkar ódýru orku, góða vatn, kalda veðrið og lít­inn raka höfum við full­komna blöndu til að verða stór­þjóð í kanna­bis­ræktun inn­an­húss. Við þurfum bara kjarkinn í það,“ segir Sigurður Jóhanns­son, for­maður Hamp­fé­lags­ins. „Það er mik­ill áhugi á Íslandi erlendis frá og margir að skoða mögu­leik­ann á að setja upp vinnslu­stöðvar hér á landi.“ Sigurður er gestur í nýjasta þætti...
Robert C. Clark í viðtali við Hampfélagið: „Íslendingar þurfa eigið afbrigði af kannabis“
Menning

Robert C. Clark í við­tali við Hamp­fé­lagið: „Íslend­ingar þurfa eigið afbrigði af kanna­bis“

„Í sann­leika sagt þá er þetta ekki réttur staður á jarð­kringl­unni. Þið eruð of nálægt pólnum,“ segir banda­ríski rit­höf­und­ur­inn og fræði­mað­ur­inn Robert C. Clark í nýjasta þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins, um ræktun kanna­bis­plönt­unnar á Íslandi. Robert hefur rann­sakað kanna­bis frá því snemma á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og fylgt eftir gríð­ar­legum breyt­ingum á lands­lag­inu þegar kemur að kanna­bis í Banda­ríkj­unum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins