Katrín Oddsdóttir segir forsendubrest vera kominn í sameiningu sveitarfélaga fyrir austan.
Lögfræðingurinn Katrín Oddsdóttir er afar ósátt, eins og 75 prósent Seyðfirðinga, með fyrirætlanir sveitarstjórnar Múlaþings að leyfa sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Bendir lögfræðingurinn á texta sem birtist á heimasíðu hins nýja sveitarfélags þann 25. mars 2022 og þá sérstaklega á eftirfarandi texta: „og um leið er byggðarkjörnunum áfram tryggt ákvörðunarvald í mikilvægum málum sem snerta nærsamfélagið með heimastjórnum á hverjum stað“. Segir Katrín að þar sem nú eigi að leyfa sjókvíeldi í Seyðisfirði þrátt fyrir mikla andstöðu heimamanna, sé nú kominn forsendubrestur fyrir sameiningunni.
Hér má lesa færslu Katrínar:
„SVIKSAMLEG SAMEINING?
Hér er mynd af texta á heimasíðu Múlaþings sem birtist þar þann 25. mars 2022.Nú, tveimur og hálfu ári síðar, á að kúga Seyðfirðinga til þess að sætta sig við mengandi sjókvíaeldi sem 75% bæjarbúa vilja ekki.Sjókvíaeldi sem mun ógna siglingaöryggi heimamanna.Í lögfræðinni væri þetta kallað forsendubrestur.Mikið finnst mér sveitarstjórnarfólk í Múlaþingi vera ósvífið að halda þessum eldisplönum til streitu – væri þetta samningur á almennum markaði myndi þetta vera veruleg vanefnd af hálfu viðsemjenda og hægt að rifta honum af þeirri ástæðu.Ömurleg vanvirðing og ólýðræðisleg framkoma að mínu mati!“

Í athugasemd við eigin færslu, skrifar Katrín aukreitis:
„Margir Seyðfirðingar sem ég þekki segjast hafa kosið með sameiningu á sínum tíma því þeim var sagt að þá kæmu göng undir Fjarðarheiði, sem er auðvitað öryggismál fyrir bæjarbúa.
Það bólar ekki á göngum.Þvert á móti er öryggi þeirra teflt í hættu með sjókvíaeldisáformum sem minnka siglingaröryggi.Ég á vart orð yfir það hvað mér finnst þetta vera lágkúruleg hegðum af Múlaþingi.Ef ég væri Seyðisfjörður myndi ég sækja um “skilnað” úr þessu léléga hjónabandi. Makinn villti massift á sér heimildir, því miður.“

























Athugasemdir