„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fyrirlestur ísraelsks hermanns ekki á vegum Þjóðminjasafnsins: „Þetta kemur í gegnum háskólann“

Fyrirlestur ísraelsks hermanns ekki á vegum Þjóðminjasafnsins: „Þetta kemur í gegnum háskólann“
Lassman og Hannes – Ely Lassman þegar hann var í ísra­elska hernum – Myndin er sam­sett

Á mánu­dag­inn var hald­inn fyr­ir­lestur í Þjóð­minja­safni Íslands en sá sem tal­aði á fyr­ir­lestr­inum er Ely Lassman. Hann er fyrr­ver­andi her­maður í ísra­elska hernum. Fyr­ir­lest­ur­inn bar nafnið Ísrael, Arabaríkin og Vest­ur­veldin.

Fyr­ir­lest­ur­inn var lok­aður almenn­ingi en á honum útskýrði Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands, að það hafi verið gert af örygg­is­á­stæðum. Aflýsa þurfti fyr­ir­lestri Lassman fyrr á þessu ári í King’s College í London í kjöl­far líf­láts­hót­anna sem hann fékk.

Í fyr­ir­lestr­inum sagði Lassman meðal ann­ars að Ísrael væri eitt þeirra ríkja sem tryggja hvað mest mann­rétt­indi í heim­inum og kall­aði Mið-Aust­ur­lönd eitt frum­stæð­asta svæði heims. Einnig lýsti hann því yfir að árás Hamas þann 7. októ­ber 2023 kunni að vera sú versta sem um getur. „Ég tel að frá síð­ari heim­styrj­öld­inni, frá hel­för­inni, sé ekki til svo skýrt dæmi um bar­áttu milli góðs og ills,“ hefur Morg­un­blaðið eftir Lassman.

Ekki auka öryggisgæsla

Mannlíf hafði sam­band við Þjóð­minja­safn Íslands til að spyrja um fyr­ir­lest­ur­inn og hvort hann hafi verið á vegum þess.

„Þetta var ekki á okkar vegum, við leigjum út fyr­ir­lestr­ar­sal­inn,“ sagði Kristín Ýr Hrafn­kels­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustu­sviðs Þjóð­minja­safns Íslands, um málið. „Við erum í sam­starfi við háskól­ann eins og aðrar stofn­anir. Þetta kemur í gegnum háskól­ann, það er háskóla E-mail þannig að við gerðum engar athuga­semdir,“ og tók fram að safnið væri í miklu sam­starfi við Háskóla Íslands og aðrar stofn­anir.

Kristín segir að Hannes Hólm­steinn hafi bókað sal­inn í gegnum Háskóla Íslands. „Ég held að þetta hafi verið hann sjálfur í gegnum háskól­ann. Það var alla­vega háskóla E-mail. Þetta var ekk­ert á okkar vegum. Við fáum ekki upp­lýs­ingar um erindi funda og sal­ur­inn er gríð­ar­lega mikið í útleigu hjá okkur.“

Aðspurð um hvort hver sem er geti leigt sal­inn sagði Kristín að safnið sé ekki að blanda sér í mál­efni en það geti þó neitað fólki um að leigja hann.

„Ég myndi hafa fengið vit­neskju um það,“ sagði Kristín um hvort það hafi verið auka örygg­is­gæsla á staðnum í ljósi þess að Lassman hefur áður verið hótað „Við erum með örygg­is­vörð sem í raun á vakt allan sól­ar­hring­inn út af safn­gripum og að sjálf­sögðu passar hann gesti og er til staðar ef ein­hver átök verða. Ég held að það hafi ekki gerst í minni tíð þarna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins