„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dóra Björt var lögð í einelti af kennurum: „Við megum ekki skera niður okkar fegurstu blóm“

Dóra Björt var lögð í einelti af kennurum: „Við megum ekki skera niður okkar fegurstu blóm“
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir. Mynd: Facebook

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir var lögð í ein­elti af kenn­urum á sínum yngri árum. Um þetta opn­aði hún í Facebook-færslu rétt í þessu.

Pírata­fram­bjóð­and­inn Dóra Björt Guð­jóns­dóttir segir frá því í nýrri Facebook-færslu að hún hafi hlotið þann heiður að ávarpa ráð­stefnu ADHD-sam­tak­anna nýlega og segir frá því í leið­inni að hún sjálf sé með ADHD.

„Ég hlaut þann heiður að ávarpa ráð­stefnu ADHD-sam­tak­anna nýverið sem fjall­aði um ADHD og konur, og tók þátt í að veita Hljóð­bóka­safn­inu heið­ursverð­laun sam­tak­anna.

Ég er jú kona með ADHD. Það kynti undir lágu sjálfs­mati í gegnum minn upp­vöxt.“

Dóra Björt seg­ist hafa fengið að finna fyrir því í námi að vera með ADHD:

„Þegar ég mætti nei­kvæðu við­horfi er ég tók of mikið pláss hvort sem það var í skóla eða á öðrum vett­vangi, átti erfitt með tíma­stjórnun, þegar ég tal­aði of mikið, gat ekki klárað verk­efni vegna þess að ég gat ekki ein­beitt mér innan um þögla sam­nem­endur mína.. og hví­lík sóun á tíma að sitja klukku­tímum saman verk­laus. Þegar ég var lögð í ein­elti af kenn­urum. Þegar mér fannst ég oft hverfa vegna óör­yggis því varn­ar­gríman til að fela hisp­urs­leysið var svo aðþrengj­andi. ADHD! Þetta kom allt heim og saman.“

Segist hún enn finna fyrir þess­ari „grímu“ en að áhrifin hafi minnkað:

„Þessi gríma á enn til að gægj­ast á svæðið en áhrif hennar hafa þó mild­ast með meiri sjálfsmildi og sjálfs­þekk­ingu. Að við séum að rífa af okkur það sem gerir okkur ein­stök er ekki bara leið­in­legt heldur líka ákveð­inn missir fyrir sam­fé­lagið. En hvað á barn að gera sem fær stans­laust að finna að það sé of mikið, tali of mikið, taki of mikið pláss? Það auð­vitað minnkar sig.Þess vegna þarf sam­fé­lagið að stækka. Skapa meira pláss og meira rými. Við megum ekki skera niður okkar feg­urstu blóm.“

Að lokum seg­ist hún hafa unnið sig í gegnum hin nei­kvæðu áhrif með hjálp sál­fræð­inga og talar fyrir ódýr­ara aðgengi að sál­fræði­þjón­ustu.

„Að vinna mig í gegnum þessi nei­kvæðu áhrif með aðstoð sál­fræð­inga hefur gert mig örugg­ari í sjálfri mér og róað innri gagn­rýn­and­ann. Það eru lífs­gæði sem gera mér kleift að starfa áfram á mínum vett­vangi þar sem þú þarft að geta sýnt þér mildi þegar gagn­rýnin dynur á. Það eru lífs­gæði sem ekki verða metin til fjár.En það eru tímar hjá sál­fræð­ingum hins­vegar, þeir eru rán­dýrir en þjón­ustan svo dýr­mæt og mik­il­væg. Geð­heil­brigði þarf sömu virð­ingu og alúð og lík­am­legt heil­brigði. Aðgengi að ódýr­ari sál­fræði­þjón­ustu er ekki lúxus eða pjatt heldur lífs­nauð­syn.Ég minni á að próf­kjöri Pírata lýkur í dag klukkan 16. Margir frá­bærir fram­bjóð­endur eru í boði og sam­keppnin því mikil en ég veit að lífið velur mér leið­ina, hvað sem svo sem er í kort­unum fyrir mig. Öll geta kosið í öllum kjör­dæmum með að skrá sig á

x.piratar.is

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skólamál

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“
Innlent

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“

Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. Kennarar eru í áfalli eftir að Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hafn­aði inn­an­hús­til­lögu sem rík­is­sátta­semj­ari lagði fram í kenn­ara­deil­unni. Einn þeirra, Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla, birti í gær mynd­skeið á Facebook þar sem hann seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. „Hvað gerir maður á...
Dómur hefur fallið – Verkfallsboðun kennara lögleg
Innlent

Dómur hefur fallið – Verk­falls­boðun kenn­ara lög­leg

Verk­falls­boðun kenn­ara er lög­leg, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Félags­dóms. Kenn­ara­sam­band Íslands var sýknað í morgun í Félags­dómi af kröfu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er taldi verk­falls­boðun kenn­ara ólög­lega. Vísir segir frá mál­inu. SÍS stefndi boðun verk­falls í fjöldi skóla vegna þess að engin kröfu­gerð lág fyrir í kjara­deil­unni en for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, Magnús Þór Jónsson, segir stefn­una ekki hafa áhrif á boðuð verk­föll...
Jón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara: „Gætu veikindi vegna myglu skýrt þetta?“
Innlent

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara: „Gætu veik­indi vegna myglu skýrt þetta?“

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara og kemur með áhuga­verðan punkt varð­andi aukin veik­indi í stétt­inni. Grínist­inn og fram­bjóð­andi Við­reisnar í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum, Jón Gnarr, skrif­aði Facebook-færslu í gær en með færsl­unni birtir hann skjá­skot af frétt mbl.is sem fjall­aði um úttekt Við­skipta­ráðs á skóla­málum. Þar kemst Við­skipta­ráð meðal ann­ars að þeirri nið­ur­stöðu a veik­inda­hlut­fall kenn­ara vera almennt mun...
Magnús Þór um úttekt Viðskiptaráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjónarhorn þau hafa valið sér“
Innlent

Magnús Þór um úttekt Við­skipta­ráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“

Magnús Þór Jónsson, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands ætlar að fara yfir úttekt Við­skipta­ráðs, í róleg­heit­unum og „sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“. Við­skipta­ráð segir meðal ann­ars í úttekt sinni að íslenska grunn­skóla­kerfið sé dýrt í alþjóð­leg­um sam­an­b­urði, kennslu­skylda lít­il og fjöldi nem­enda á hvern kenn­ara er einn sá lægsti þekk­ist. Þá er veik­inda­hlut­fall kenn­ara sagt vera almennt mun hærra en...
Svarar ekki hvernig verkfallsskólarnir átta voru valdir: „Ég dáist að hugmyndarflugi fólks“
Innlent

Svarar ekki hvernig verk­falls­skól­arnir átta voru valdir: „Ég dáist að hug­mynd­ar­flugi fólks“

Mjöll Matth­í­as­dóttir, for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara kann­ast ekki við að börn fólks í samn­inga­nefnd rík­is­ins séu nem­endur í þeim átta skólum sem kosið er nú um hvort loka þurfi vegna verk­falla kenn­ara. Mannlífi barst ábend­ing þar sem full­yrt var að þeir átta skólar sem valdir hafa verið fyrir verk­föll kenn­ara og kosn­ing stendur nú yfir um, séu skólar þar sem börn...
400 grunnskólanemar festust í Vík í Mýrdal – Gengu heim í dag
Menning

400 grunn­skóla­nemar fest­ust í Vík í Mýrdal – Gengu heim í dag

Um fjögur hund­ruð nem­endur í Varm­ár­skóla luku í dag hring­ferð sinni um Ísland, þegar gengið var sem svarar fjar­lægð­inni milli Víkur í Mýrdal og Mos­fells­bæjar. Megnið af hring­veg­inum var hlaupið í gær þegar nem­endur skól­ans hlupu sam­an­lagt vel yfir eitt þús­und kíló­metra vega­lengd. Hlaupið var í til­efni af evr­ópskri íþrótta­viku en að þessu sinni var ákveðið að setja það mark­mið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins