„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Össur segir Ingu valdspilltan leiðtoga: „Alltaf með túlann fullan af lýðræðishjali“

Össur segir Ingu valdspilltan leiðtoga: „Alltaf með túlann fullan af lýðræðishjali“
Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Össur Skarp­héð­ins­son lætur Ingu Sæland fá það óþvegið í nýrri Facebook-færslu þar sem hann talar um brott­rekstur Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar og Tómasar A. Tóm­as­sonar úr Flokki fólks­ins.

Færsla hins fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar byrjar á eft­ir­töldum orðum:

„Vald­spilltur leið­togi

Inga Sæland talar sig móða um skort á lýð­ræði – nú síð­ast þegar starfs­stjórn var í myndun – en á sama tíma tekur hún sér alræð­is­vald innan Flokks fólks­ins, þver­brýtur reglur hans og lög og rekur þing­menn úr fram­boði af því þeir dansa ekki alger­lega eftir hennar höfði.Opinber brott­rekstur Jakobs Frímanns (og Tomma í Búllunni) úr fram­boði er ekki aðeins ólýð­ræð­is­legur gjörn­ingur hjá leið­toga sem alltaf er með túl­ann fullan af lýð­ræð­is­hjali heldur hrein­asta vald­níðsla af hennar hálfu. Það sést gjörla þegar rennt er yfir ein­föld og skýr lög Flokks fólks­ins á heima­síðu hans.

Í þeim er sagt svart á hvítu að það sé upp­still­ing­ar­nefnd, skipuð af kjör­dæma­ráði, sem gerir til­lögu að fram­boðs­lista. Í kjöl­farið fjalla kjör­dæm­is­ráð og stjórn um til­lög­una á form­legum fundum. For­mað­ur­inn hefur ekki einu sinni frum­kvæð­is­rétt að til­nefn­ingum – hvað þá til að gefa út til­skip­anir um að til­teknir flokks­menn megi ekki vera í efstu sætum list­anna.“

Segir Össur að brott­rekst­ur­inn súni „fyr­ir­litn­ingu á lýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum“:

„Gjörn­ing­ur­inn felur því ekki aðeins í sér fyr­ir­litn­ingu á þeim lýð­ræð­is­legu vinnu­brögðum sem hún krefst dag hvern úr ræðu­stól Alþingis, heldur líka óvana­lega gróft brot á lögum flokks­ins.“

Össur segir ótrú­legt að þetta sé að ger­ast á Íslandi 2024:

„Að svona ger­ist á Íslandi á þriðja ára­tug 21. ald­ar­innar er með ólík­indum. Kanski á Ítalíu fyrir hund­rað árum – en ekki hér og nú. Fjöl­miðlar, sem eru helsta aðhalds­tæki gegn vald­spilltum leið­togum, hljóta að skýra hvernig þetta sam­ræm­ist lögum flokks­ins og hvort verj­an­legt sé að flokkur undir slíkri stjórn fái tug­millj­ónir frá skatt­borg­urum ár hvert í rekstr­ar­styrki.“

Í loka­orðum sínum dásamar Össur Jakob Frímann og spyr hvort Inga hafi ekki verið ánægð með vin­sældir hans.

„Jakob Frímann er ást­sæll lista­maður sem á vild alls staðar enda merki­legt ein­tak. Enginn hefur náð meiri árangri fyrir kjara­bar­áttu lista­manna en hann. Á sínum tíma var hann hval­reki fyrir Flokk fólks­ins og náði óvæntum og næsta ótrú­legum árangri með afar óhefð­bund­inni kosn­inga­bar­áttu. Í dag er mesta fylgi Flokks fólks­ins einmitt í hans kjör­dæmi.Gæti verið að það sé þyrnir í auga drottn­ing­ar­innar að hann hefur meira fylgi en hún í sínu kjör­dæmi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins