„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Páll skipstjóri kærir Símamálið til saksóknara: Krafa um að útvarpsstjóri svari fyrir símakaup

Páll skipstjóri kærir Símamálið til saksóknara: Krafa um að útvarpsstjóri svari fyrir símakaup
Páll Stein­gríms­son og Þóra Arn­órs­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks. Myndin er sam­sett

Páll Stein­gríms­son skip­stjóri hefur vísað Síma­mál­inu svo­kall­aða til rík­is­sak­sókn­ara og krefst þess að lög­reglu verði gert að taka málið upp að nýju. Páll sættir sig ekki við að ákvörðun lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra um að hætta rann­sókn máls nr. 316 2021-003997 standi. Rannsókn máls­ins stóð árum saman og var vinnu­lagið for­dæmt af fjöl­miðla­mönnum sem voru með stöðu grun­aðra ekki síður en Páls sem er þol­andi í mál­inu. Mannlíf hefur bréfið undir höndum.

Rannsókn máls­ins varð­aði þjófnað á far­síma Páls þar sem hann lá á sjúkra­beði eftir meinta byrlun. Þóra Arn­órs­dóttir, þáver­andi rit­stjóri Kveiks, er talin hafa verið í aðal­hlut­verki við að taka við sím­anum og láta afrita hann í þágu ann­arra fjöl­miðla. Í bréfi til sak­sókn­ara er málið reifað af Evu Hauks­dóttur lög­manni og ástæðum þess að þess er kraf­ist að lög­reglan verði gerð aft­ur­reka með ákvörðun sína er lýst:

1. Rannsókn í ofan­greindu máli lýtur að meintri lyfja­byrlun, síma­þjófn­aði, brotum gegn frið­helgi einka­lífs og dreif­ingu á efni sem leynt á að fara, auk staf­rænum kyn­ferð­is­brotum. Skjól­stæð­ingur minn, og brota­þoli í
ofan­greindu máli, telur engin efni til að hætta rann­sókn enda langt frá því að það sé fullrann­sakað og þó þegar
fyrir hendi ástæður sem gefa fullt til­efni til ákæru á hendur a.m.k. einum sak­born­inga.

Einnig telur brota­þoli að enda þótt afglöp lög­reglu kynnu að leiða til refsi­leysis vegna fyrn­ingar, myndi það ekki rétt­læta það að lög­reglan láti hjá líða að upp­lýsa málið. Bent er á að mörg dæmi eru um að lög­regla hafi rann­sakað mál þótt þau brot sem kærð hafa verið séu löngu fyrnd, það á a.m.k. við um kyn­ferð­is­brot. Þess heldur er ástæða til að ljúka rann­sókn á lífsógn­andi lyfja­byrlun og frið­helgi­brotum sem tengj­ast grun um
lyfja­byrlun.

Í bréf­inu er gerð sér­stök athuga­semd við heim­færslu lög­reglu til laga, hvað varðar grun um lyfja­byrlun. Í nið­ur­fell­ing­ar­bréfi lög­reglu­stjóra kemur fram að til rann­sóknar hafi verið brot gegn 217. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940 (alm. hgl.). Samkvæmt því lítur lög­reglan á lyfja­byrlun sem getur leitt til stór­kost­legs lík­ams­tjóns og jafn­vel dauða sem minni­háttar lík­ams­árás. Þessi heim­færsla er stórfurðu­leg. vísað er til þess að sak­born­ing­ur­inn Þórunn Hall­dórs­dóttir hafi játað að eigin frum­kvæði að hafa sett slævandi lyf í drykk brota­þola án vit­undar hans.

Þess er kraf­ist í bréf­inu að að tekin verði vitna­skýrsla af Stefáni Eiríks­syni, sem var útvarps­stjóri þegar keypt var óskráð síma­númer fyrir sjón­varps­þátt­inn Kveik, að því er virð­ist í þeim til­gangi að vista afrit af síma brota­þola í mál­inu. Þá er því lýst að taka þurfi vitna­skýrslu af Kristni Hrafns­syni, rit­stjóra Wikileaks, sem hefur aug­ljós­lega hafi séð einka­gögn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins