„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga Vala rífur nýju Útlendingalögin í sig: „Ekki trúa öllu sem stjórnmálafólk segir“

Helga Vala rífur nýju Útlendingalögin í sig: „Ekki trúa öllu sem stjórnmálafólk segir“
Helga Vala Helga­dóttir.

„Ekki trúa öllu sem stjórn­mála­fólk segir. Þegar þau halda því fram að þau séu að skapa skil­virkara og ódýr­ara kerfi í mál­efnum útlend­inga þá eru þau að gera þver­öf­ugt.Núna streyma út úr Útlend­inga­stofnun ákvarð­anir um synjun á áfram­hald­andi leyfi fólks sem hefur verið hér árum saman, á vernd­ar­leyfum, á hér fjöl­skyldu og hefur starfað hér allan tím­ann.“ Þannig hefst Facebook-færsla Helgu Völu Helga­dóttur lög­manns og fyrrum alþing­is­manns. Þar segir hún frá nýjum breyt­ingum á Útlend­inga­lögum.

„Þetta ger­ist vegna nýrra breyt­inga á Útlend­inga­lögum sem fyr­ir­skipar end­ur­skoðun á öllum leyfum á nokk­urra ára fresti þannig að það þurfi enn að vera grund­völlur til að veita vernd, þótt fólk sé ekki í neinni þjón­ustu sem því fylgir,“ skrifar Helga Vala og útskýrir síðan lögin:

„Í stað þess að lög­gjaf­inn veiti stofn­un­inni heim­ild til að leið­beina fólki inn á „rétt leyfi“ þá er búið til alveg ótrú­legt flækju­stig bjúrókrasíu með til­heyr­andi kostn­aði fyrir skatt­greið­endur vegna starfs­fólks ÚTL sem nú þarf að leggj­ast yfir hverja og eina umsókn um end­ur­nýjun á nýjum grund­velli sem kallar á margra mán­aða og jafn­vel ára vinnslu. En það leggst líka kostn­aður á fjöl­skyldur sem töldu sig loks­ins vera búnar að eign­ast gott og eðli­legt líf, fjöl­skyldur í fullri vinnu og með börn í leik­skóla og skóla.Lög um útlend­inga eru mjög tak­mörkuð þegar kemur að því að fá leyfi á öðrum grunni, sértu frá landi utan EES. Atvinnu­leyfi er ekki ekki veitt nema ef skortur er á starfs­fólki í því til­tekna starfi eða þú hafir umtals­verða sér­fræði­þekk­ingu sem finnst ekki hjá öðrum íbúum hér á landi. Leyfi vegna sér­stakra tengsla eru líka mjög tak­mörkuð og virð­ist ekki duga að hafa verið hér í hálfan ára­tug í fullri vinnu. Ung börn leiða ekki til þess að um sé að ræða við­kvæmar aðstæður og fjöl­skyldu­sam­ein­ing er það ekki þegar henda á heilu fjöl­skyld­unum út.“

Að lokum skýtur Helga Vala föstum skotum á síð­ustu rík­is­stjórn og þá flokka sem studdu hin nýju lög og spyr hvort öryrkjar verði enn og aftur gerðir að söku­dólgum þegar skortur á starfs­fólki verður ljós þegar búið er að senda erlent fólk úr landi.

„Þetta höfum við fengið í boði rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sóknar og VG með stuðn­ingi flokka sem virð­ast ekki hafa haft þekk­ingu til að skilja hvað þau voru að sam­þykkja heldur tóku undir söng­inn um að „inn­við­irnir þoli ekki meira“Innviðir okkar þola það alls ekki ef mann­ekla skap­ast á lyk­il­stöðum. Hjúkr­un­ar­heim­ili, sjúkra­stofn­anir, skól­arnir og bygg­ing­ar­iðn­aður þolir ekki að missa allar þessar vinn­andi hendur. Hverjum á þá að kenna um? Verða það þá öryrkjarnir sem aftur fá að vera í sviðs­ljósi söku­dólganna eins og við sáum hér á árum áður?Þessi nýju lög búa til ofboðs­legt álag á Útlend­inga­stofnun með til­heyr­andi töfum á afgreiðslu leyfa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins