„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Milljarðar færðir til í Grindavík – Börnin skipta á milli sín togurunum

Milljarðar færðir til í Grindavík – Börnin skipta á milli sín togurunum
Tómas Þor­valds­son GK-10 Mynd: Grindavik.is skjáskot úr drónamynd Jóns Steinars

Bylting verður í rekstri stór­fyr­ir­tæk­is­ins Þor­bjarnar hf. í Grinda­vík um mán­að­ar­mótin þegar börn stofn­end­anna skipta á milli sín tog­urum fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta kemur í fram­haldi þess að land­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins í Grinda­vík er hætt.

Gunnar Tómasson, einn eig­enda Þor­bjarnar, upp­lýsti þetta í sam­tali við Morg­un­blaðið. Fram kemur að þrír hópar barna skipta á milli sín skipum og kvóta sem eru gríð­ar­leg verð­mæti. Hver hópur verður með sjálf­stæða starf­semi í fyr­ir­tækjum sem eru millj­arða­virði.

„Nið­ur­staða eig­enda Þor­bjarn­ar hf. var sú að skipta fyr­ir­tæk­inu upp í þrjú rekstr­ar­fé­lög, sem hvert og eitt ein­blín­ir á út­gerð eins skips. Eign­ar­hald fyr­ir­tækj­anna þriggja verður það sama og er í Þor­birni hf,“ segir Gunnar við Morg­un­blaðið.

Synir Gunnars Tóm­as­sonar taka við út­gerð tog­ar­ans Hrafns Svein­bjarna­son­ar GK með því sem til­heyr­ir, svo sem veiði­heim­ild­um.

Syn­ir Ei­ríks Tóm­as­son­ar heit­ins, verða með rekst­ur Tóm­as­ar Þor­valds­son­ar GK.

Gerður Sig­ríður Tóm­as­dótt­ir og syn­ir henn­ar hafa með hönd­um rekst­ur þriðja fyr­ir­tæk­is­ins sem mun gera út nýtt skip, Huldu Björns­dótt­ur GK.

Nýja skipið, Hulda Björns­dóttir GK, fellur í hlut Gerðar Tóm­as­dóttur og barna hennar.

Gunnar útskýrir þessa breyt­ingu með því að breyt­ingin sé gerð til þess að fleiri fjöl­skyldu­með­limir kom­ist að í rekstr­inum.

„Svo var komið að marg­ir í okk­ar fjöl­skyldu vildu taka þátt í rekstri Þor­bjarn­ar og svo all­ir fengju að njóta sín var farið í þessa upp­skipt­ingu, sem nú er að kom­ast til fram­kvæmda. Vissu­lega töp­um við ein­hverri sam­legð og hag­ræð­ingu með þess­ari ráð­s­töf­un, en fáum í stað­inn meðal ann­ars starfs­krafta ungs fólks með kraft og nýj­ar hug­mynd­ir,“ seg­ir Gunn­ar við Morg­un­blaðið.

Faðir Gunnars, Tómas Þor­valds­son, stofn­aði fyr­ir­tækið á sínum tíma. Það er í dag eitt af stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins í sjáv­ar­út­vegi.

Samherji hf. fór ekki ólíka leið þegar fyr­ir­tæk­inu var skipt upp í þágu barna stofn­end­anna sem fengu afhent gríð­ar­leg auð­ævi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins