„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ungir umhvefissinnar senda tvo fulltrúa á COP29: „Aðgerðarleysi Íslands í loftlagsmálum er ærandi“

Ungir umhvefissinnar senda tvo fulltrúa á COP29: „Aðgerðarleysi Íslands í loftlagsmálum er ærandi“

Ungir umhverf­is­sinnar (UU) senda tvo full­trúa á 29. aðilda­ríkja­þing Sþ. um lofts­lags­breyt­ingar (COP29) sem haldið verður á næst­unni í Baku, Aserbaidjsan til að fylgj­ast grannt með ákvörð­unum sem þar verða teknar. UU sendu einnig full­trúa á COP26, COP27 og COP28 og hafa því góða reynslu af því hvernig best er að taka þátt og miðla upp­lýs­ingum frá þessum vett­vang, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá UU. Á ráð­stefn­unni munu full­trúar UU taka þátt í ýmsum við­burðum, halda kynn­ingar, fylgj­ast með samn­inga­við­ræðum, veita sendi­nefnd Íslands aðhald, funda með öðru ungu fólki, ýmsum sam­tökum og ráða­fólki. Nánari upp­lýs­ingar um mark­mið UU á COP29 má finna hér.

Kröfur UU til stjórnvalda í aðdraganda COP29

Við krefj­umst þess að íslensk stjórn­völd:

  1. Uppfæri lands­fram­lag sitt til að stefnt sé að 55% sam­drætti í heild­ar­losun Íslands fyrir árið 2030 m.v. 1990. Við viljum að þetta verði gert strax og að lands­fram­lag­inu verði skilað inn til ramma­samn­ings Sþ. um lofts­lags­breyt­ingar á COP29 eins og fjöl­mörg önnur ríki hyggj­ast gera.
  2. Taki virk­ari þátt í samn­inga­við­ræð­unum og þrýsti mark­visst á metn­að­ar­fullar nið­ur­stöður á aðilda­ríkja­þing­inu.
  3. Þrýsti sér­stak­lega á að lofts­lags­rétt­læti verði haft að leið­ar­ljósi í öllum ákvörð­unum á þing­inu.
  4. Auki þátt­töku ungs fólks í ákvarð­ana­töku sem teng­ist lofts­lags­málum.
  5. Sýni gott for­dæmi hér heima með því að grípa til mun rót­tæk­ari mót­væg­is­að­gerða til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi sem staðið hefur í stað und­an­farin ár.

„Aðgerð­ar­leysi Íslands og ann­arra vest­rænna ríkja í lofts­lags­málum er ærandi. Sumarið 2024 var heitasta sumar sem hefur mælst á norð­ur­hveli jarðar en samt sem áður er umfjöllun um lofts­lags­breyt­ingar að minnka og þær settar á aftasta bekk­inn hjá nán­ast öllum íslenskum stjórn­mála­flokkum. Rík lönd í for­rétt­inda­stöðu eins og Ísland þurfa að opna augun og átta sig á alvar­leika loft­lagskrís­unnar sem ríkir á heims­vísu. Ísland þarf að grípa til rót­tækra aðgerða til að koma í veg fyrir verstu afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga. Þessar breyt­ingar eru þegar farnar að hafa áhrif á nátt­úru­far og lífs­skil­yrði fólks á Íslandi, sem skapar vax­andi áskor­anir fyrir efna­hag, sam­fé­lag og nátt­úru— og þetta er bara byrj­unin. Við getum enn tak­markað hlýnun jarðar við 1,5°C og í því fel­ast gríð­ar­leg tæki­færi til að bæta sam­fé­lagið okkar í leið­inni.“ Þetta segir Laura Sólveig Lefort Scheefer, hringrása­full­trúi Ungra umhverf­is­sinna í frétta­til­kynn­ing­unni.

Þá segir  Hrefna Guð­munds­dóttir, nefnd­ar­með­limur í Ungum umhverf­issinnum að allir þurfi að leggja hönd á plóg.

„Við þurfum öll að taka höndum saman og leggja okkar af mörkum til að tryggja far­sæld og fram­tíð jarð­ar­innar. Til að ná því mark­miði þarf skýrar og raun­veru­legar aðgerðir, þar sem allir leggja hönd á plóg. Við verðum að horfast í augu við þessa sam­eig­in­legu áskorun og stilla saman strengi, því fram­tíð jarð­ar­innar er í okkar höndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Gengur hægt að ná saman um stóru málefnin á COP29: „Ég er sjálf ekki bjartsýn“
Innlentloftlagsmál

Gengur hægt að ná saman um stóru mál­efnin á COP29: „Ég er sjálf ekki bjart­sýn“

Hægt gengur að ná saman um stóru mál­efnin á COP29. Ungir umhverf­is­sinnar (UU) eru með tvo full­trúa á 29. aðilda­ríkja­þingi Sþ. um lofts­lags­breyt­ingar (COP29) sem er haldið í Baku, Aserbaidjsan milli 11.-22. nóv­em­ber til að fylgj­ast grannt með ákvörð­unum sem þar verða teknar. Á ráð­stefn­unni hafa full­trú­arnir tekið þátt í ýmsum við­burðum, talað í pall­borðum, haldið kynn­ingu um Sólina sem...
Aldraðir aðgerðasinnar réðust á Magna Carta skjalið: „Er ríkisstjórnin hafin yfir lög?“
Heimur

Aldraðir aðgerða­sinnar réð­ust á Magna Carta skjalið: „Er rík­is­stjórnin hafin yfir lög?“

Tveir lofts­lags­að­gerð­ar­sinnar á níræð­is­aldri reyndu að brjóta gler sem ver Magna Carta laga­bálk­inn á British Library í Lundúnum, með hamri. Séra Sue Parfitt, 82 ára, og Judy Bruce, 85 ára líf­fræði­kenn­ari á eft­ir­launum, gengu inn á bóka­safnið og reyndu að mölva gler­búrið sem verndar hið sögu­lega skjal með hamri og meitil. Tvíeykið, sem er hluti af Just Stop Oil mót­mæla­hópnum,...
Greta fer yfir ástand heimsins: „Við erum örmagna en erum líka full af ást og bræði“
Heimur

Greta fer yfir ástand heims­ins: „Við erum örmagna en erum líka full af ást og bræði“

Greta Thunberg hvetur til auk­innar sam­stöðu og ábyrgðar á nýju ári. Frægasti aktí­visti heims, hins sænska Greta Thunberg birti tvær ljós­myndir af sér á Instagram og skrif­aði sterk skila­boð við færsl­una, þar sem hún fór yfir árið 2023 og ósk hennar fyrir árið 2024. Telur hún upp allt það slæma sem ein­kenndi árið, loft­lags­ham­farir, stríð, kúgun og auk­inn ójöfn­uður en...
Rándýr reisa ríkisstarfsmanna til Dúbaí
Innlentloftlagsmál

Rándýr reisa rík­is­starfs­manna til Dúbaí

Áætlaður kostn­aður fyrir hvern þátt­tak­anda umhverfis-, orku- og loftsla­gráðu­neyt­is­ins á COP28 er frá 900.000 krónur og upp í tvær millj­ónir króna. COP28 loft­lags­ráð­stefn­unni í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum lýkur á morgun en gríð­ar­lega margir Íslend­ingar eru þar sem full­trúar rík­is­ins, Reykja­vík­ur­borgar, fyr­ir­tækja og félaga­sam­taka og fleiri aðila sem við kemur lofts­lags­mál. Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa umhverfis-, orku- og loftsla­gráðu­neyt­is­ins, Önnu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins