Björn Birgisson segir gróða stóru bankanna vera á kostnað heimila landsins.
Samfélagsrýnirinn Björn Birgisson skrifaði Facebook-færslu í gær sem vakið hefur athygli en þar talar hann um „okurvexti“ bankanna sem séu að „knésetja heimilin“. Færslan byrjaði á eftirfarandi hátt:
„Okurvextir að knésetja heimilin, en skila stóru bönkunum sífellt meiri ofsagróða.
Stóru bankarnir hafa grætt sem nemur 242 þúsundum á hvern mann á kjörskrá!Þetta er orðið verulega ógeðfellt og ógeðslegt.Um 75% af tekjum stóru bankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins voru vaxtatekjur af lánum.Hvað var þetta mikið?Ekki nema tæpir 63 milljarðar!Sextíu og þrjú þúsund milljónir!Í stað þess að lækka vaxtamuninn stungu bankarnir þrír ávinningnum af ástandinu í vasann.Þeir notuðu ofsagróðann til að auka arðsemi sína, og þar með hluthafa sinna, en skildu almenning eftir í kviksyndi spillingarinnar sem einkennir rekstur þeirra.“Björn setur að lokum up dæmi um „viðbjóðinn sem hér er á ferðinni“:„Hér er lítið uppsett dæmi um viðbjóðinn sem hér er á ferðinni.Senn göngum við að kjörborði til að velja nýtt fólk til að stjórna landinu og bönkunum líka, setja þeim reglur og stoppa bullið sem nú viðgengst.Á kjörskrá verða líklega um 260 þúsund manns, 18 ára og eldri.Ef þeirri tölu er deilt upp í 63ja milljarða ofsagróða bankanna kemur í ljós að hver og einn sem er á kjörskrá hefur að meðaltali lagt bönkunum til rúmlega 242 þúsund krónur sem innlegg í ofsagróðann á þessu 9 mánaða tímabili!Vitaskuld er þetta ekki svona, fyrirtækin eru blóðmjólkuð líka.Dæmið er tilbúið til að draga fram hvað hér er á ferðinni.Er fólk svo hissa á að heimilin séu að brotna og fólk farið að hugsa til annarra landa til framtíðarbúsetu?“

























Athugasemdir