„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Útlendingastofnun afturkallar dvalarleyfi fjölda innflytjenda:„Er þetta það sem við stöndum fyrir?“

Útlendingastofnun afturkallar dvalarleyfi fjölda innflytjenda:„Er þetta það sem við stöndum fyrir?“
Claudia A Wilson Molloy. Mynd: Facebook

Mann­rétt­inda­lög­mað­ur­inn Claudia A. Wilson Molloy segir stöð­una í inn­flytj­enda­málum á Íslandi vera „alvar­lega og for­dóma­lausa“ og bendir á að fjöl­margir ein­stak­lingar hafi und­an­farið fengið til­kynn­ingu um að dval­ar­leyfi þeirra hafi verið dregið til baka, þrátt fyrir að þau hafi búið á land­inu síð­ast­liðin fjögur ár.

Claudia skrif­aði tvær færslur á Facebook þar sem hún vekur athygli á Útlend­inga­stofnun sé þessa dag­ana að senda inn­flytj­endum sem búið hafa lög­lega á land­inu síð­ustu ár, bréf um að dval­ar­leyfi þeirra hafi verið dregið til baka. Segir hún að um sé að ræða meðal ann­ars börn „frá Venes­ú­ela, Sómalíu, Sýrlandi og Írak (hingað til) sem hafa búið LÖGLEGA á Ísland í meira en 4 ár.“

Lög­mað­ur­inn spyr í seinni færsl­unni hvort inn­flytj­endur skipi máli á Íslandi:

„Skipta inn­flytj­endur máli hér á landi?

Við erum að upp­lifa afar alvar­lega og for­dæma­lausa stöðu núna, til komna vegna stefnu núver­andi rík­is­stjórnar og útlend­inga­yf­ir­valda hér á landi!Þessi staða mun hafa áhrif á HUNDRUÐ ef ekki ÞÚSUND ein­stak­linga!Skrif­stofa mín hefur borist ógrynni af sím­tölum og heim­sóknum frá örvænt­ing­ar­fullu fólki sem hefur verið búsett hér á landi í meira en fjögur ár, en því var að ber­ast ákvarð­anir eða til­kynn­ingar um fyr­ir­hug­aða ákvörð­un­ar­töku um að dval­ar­leyfi þeirra og barna þeirra verði aft­ur­kall­aðar!“

Segir Claudia í færsl­unni, sem skrifuð var í gær, að alls hafi tíu ein­stak­lingar leitað hjálpar hjá henni á einum degi.

„Um 10 ein­stak­linga hafa komið við á skrif­stof­unni í dag, í leit að hjálp.HVAÐ ER Í GANGI?Er þetta það sem við stöndum fyrir? Komum við svona fram við fólk?Þið getið verið viss um að ég og teymið mitt munum sinna okkar vinnu í þessum mála­flokki.“

Að lokum spyr Claudia hver verði næst fyrir barð­inu:

„Ég tel það hins vegar afar mik­il­vægt að almenn­ingi sé gerð grein fyrir þess­ari for­dóma­lausu stöðu, þar sem lög­legir inn­flytj­endur eru orðnir að skot­marki stjórn­valda!Hverjir verða fyrir barð­inu næst?Ein­stak­lingar af erlendum upp­runa sem hafa öðl­ast rík­is­borg­ara­rétt hér á landi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins