„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ekki marktækur munur á Viðreisn og Samfylkingunni: „Þetta er náttúrulega alveg risa stökk“

Ekki marktækur munur á Viðreisn og Samfylkingunni: „Þetta er náttúrulega alveg risa stökk“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra

Fylgi Við­reisnar mælist nú álíka hátt og fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, í nýrri könnun Maskínu sem gerð var fyrir Vísi. Hætta er á að met­fjöldi atkvæða falli niður dauður, sam­kvæmt pró­fessor í stjórn­mála­fræði.

Talsverð hreyf­ing er á fylgi flokka sam­kvæmt könnun Maskínu sem gerð var frá 1. til 6. nóv­em­ber en Sam­fylk­ingin tapar einu og hálfu pró­sentu­stigi á milli kann­ana. Flokk­ur­inn fer úr 22,4 pró­sentum niður í 20,9 pró­sent. Svipað tap er hjá Mið­flokk­inum sem fer úr 16 pró­sentum nður í 14,9 pró­sent.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins lækkar lít­il­lega, fer úr 14 pró­sentum niður í 13,3 pró­sent. Munurinn á fylgi Mið­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ekki mark­tækur.

Samkvæmt könnun Maskínu er Viðreisn á hraðri upp­leið og bætir við sig þremur pró­sentum á milli kann­ana. Flokk­ur­inn var í 16,4 pró­sentum í síð­ustu könnun en mælistn ú með 19,4 pró­sent. Vísir ræddi við Eirík Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst, en hann telur mesta fréttin vera aukn­ing á fylgi Við­reisnar.

„Þetta er nátt­úru­lega alveg risa stökk sem flokk­ur­inn hefur núna verið að taka yfir nokkrar kann­anir. Hún er nú kom­inn nokkurn veg­inn jafn­fætis Sam­fylk­ingu sem hefur verið að trapp­ast niður,“ segir Eiríkur við Vísi.

Ef gengið yrði til kosn­inga nú, næðu Sam­fylk­ingin og Viðreisn sam­an­lagt 31 þing­manni og því mjög nálægt því að geta myndað tveggja flokka stjórn. Telur Eiríkur þó að þriggja flokka stjórn sé lík­legri sviðs­mynd og nefnir Framsókn sem lík­legan þriðja flokk. Sá flokkur er eini flokk­ur­inn sem bætir við sig fylgi, sam­kvæmt könn­unn­ini, fer úr 69, pró­sentum og upp í 7,5 pró­sent.

Eiríkur segir: „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn réttir örlítið úr kútnum eftir útspil for­manns­ins til varnar inn­flytj­endum og aðkomu­fólki í land­inu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er alltaf væn­legur sam­starfs­flokkur í öllum rík­is­stjórnum og hefur verið það í gegnum sög­una. Þetta eru aðeins önnur mögu­leg stjórn­ar­mynstur sem birt­ast í þess­ari könnun miðað við það sem við höfum verið að sjá að und­an­förnu.“

Inga Sæland og félagar hennar í Flokki fólks­ins eru á svip­uðum stað og í síð­ustu könnun Maskínu, með 8,9 pró­sentu­stig. Þá ná fimm flokkar ekki manni á þing, sam­kvæmt könn­unn­ini en Píratar eru þó á hægri upp­leið, með 4,9 pró­sent fylgi. VG sekkur enn dýpra og mælist nú aðeins með 3,2 pró­sent á meðan Sós­í­alistar mæl­ast með 4,5 pró­sent. Þá mælist Lýð­ræð­is­flokk­ur­inn aðeins með 1,7 pró­sent fylgi og Ábyrg fram­tíð, sem aðeins bíður fram í Reykja­vík norður, mælist með 0,8 pró­sent.

Eiríkur telur að útlit sé á því að met­fjöldi dauðra atkvæða verði í kosn­ing­unum eftir þrjá vikur:„Það gæti verið þannig að met­fjöldi atkvæða falli niður dauður í þessum kosn­ingum ef eng­inn þess­ara þriggja flokka nær inn á þing. Ég hefði nú fyr­ir­fram gert ráð fyrir því að ein­hver þess­ara flokka myndi ná yfir þrösk­uld en þetta er farið að mæl­ast sem ansi við­var­andi staða. Þannig að það er kannski ekki úti­lokað að þeir falli hrein­lega bara allir út af þingi.“ Bætir hann við að taktísk kosn­ing hljóti að vera áhyggju­efni, eins og talað var um í for­seta­kosn­ing­unum síð­asta vor:

„Hin taktíska atkvæða­greiðsla gengur ein­fald­lega út á það fólk vill ekki kasta atkvæði sínu á glæ. Þannig að fólk er tregt til að veita stjórn­mála­flokki stuðn­ing sem miklar líkur eru á að nái ekki inn, því þá nýt­ist atkvæðið ekki. Flokk­ur­inn verður að virð­ast að hafa ágætis von um að geta náð þing­sæti til að fólk sé yfir höfuð til­búið að styðja hann. Þegar flokkar falla svona langt fyrir neðan þrösk­uld, eins og til dæmis í til­felli Vinstri Grænna núna, verður sí erf­ið­ara að sann­færa kjós­endur um að ljá þeim atkvæði sitt.,“ segir Eiríkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins