„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Egill segir líf sitt hafa breyst: „Þetta er annað líf, eins og að tengja aftur við sjálfan sig“

Egill segir líf sitt hafa breyst: „Þetta er annað líf, eins og að tengja aftur við sjálfan sig“

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason segir ein­fald­lega að líf hans hafi „breyst. Ég var far­inn að lesa nán­ast allt af skjá – fannst það þægi­legra vegna þess að ég gat stækkað text­ann og nátt­úr­lega fer ekki mikið fyrir lest­ölvum. Var bæði með Kindle og iPad.“

Bætir þessu við:

„En svo var ég far­inn að taka eftir tvennu: Ég var orð­inn skrít­inn í aug­unum, gúglaði, og komst að því að lík­lega væri þetta skjá­þreyta. Og svo fann ég að ég mundi verr það sem ég hafði lesið á skjá, þetta átti við um nöfn höf­unda, titla bóka og texta. En mér fannst ég sjá illa á text­ann í prent­uðum bókum, bölv­aði því að letrið yrði alltaf smærra.“

Egill segir að „frekar dauf lestr­ar­gler­augu hafa breytt þessu. Ég set þau upp og er aftur far­inn að lesa eig­in­legar bækur. Þetta er allt annað líf, eins og að tengja aftur við sjálfan sig. Ég man betur hvað ég les – og líka titl­ana og höf­undana. Ég krassa vissu­lega í bæk­urnar og brýt upp á blað­síð­urnar – það er eig­in­lega nauð­syn­legt vegna starfs míns. Og svo er það upp­lifunin við að hand­fjatla bók – því bók ekki bara text­inn sem í henni er, heldur líka útlitið, papp­ír­inn, þyngd hennar, við­mótið.“

Hann færir í tal að hann hafi „átt í vand­ræðum með bækur. Ég á mikið af þeim, mér ber­ast ókjör af bókum á hverju ári. Í geymslu vestur á Granda er ég með eina 120 kassa af bókum síðan ég flutti nýskeð. Ég get ekki komið heim með allar bæk­urnar sem ég fæ. Þyrfti heila skemmu ef ég ætti að safna þeim. Einhvern veg­inn þarf ég að tína þær heim smátt og smátt – og kannski láta annað frá mér. Hverju heldur maður eftir við slíka grisjun?“

Segir að lokum:

Ragnar Helgi Ólafsson rit­höf­undur.

„Vinur minn Ragnar Helgi Ólafsson skrif­aði heila bók um þetta vanda­mál, afar vit­ur­lega. En alt­ént, ég spæni í mig bækur þessa dag­ana. Raun­veru­leg ein­tök, með blað­síðum og kápu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins