„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja leyfa hvalveiðar strax – Bjarni milli steins og sleggju

Þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja leyfa hvalveiðar strax – Bjarni milli steins og sleggju
Hvalur – mynd teng­ist frétt­inni ekki beint

Bjarni Bene­dikts­son, sitj­andi mat­væla­ráð­herra, er undir miklum þrýst­ingi þing­manna sinna um að leyfa hval­veiðar nú þegar. Ráð­herr­ann hefur enn ekki tekið ákvörðun um það hvort hann skrifi undir umsókn Hvals hf. og ann­arra sem hafa sótt um leyfi til veiða.

Bjarni Bene­dikts­son.

Allar for­sendur eru til staðar til þess að veita leyfið. Haf­rann­sókna­stofnun mælir með veið­unum og hefur lagt til þann fjölda sem heim­ilt er að veiða. Lögum sam­kvæmt ber ráð­herra mála­flokks­ins að afgreiða umsóknir strax. Heim­ildir Mannlífs herma að þing­menn flokks­ins leggi hart að Bjarna að skrifa undir. Þá hafa hags­muna­sam­tök á borð við Verka­lýðs­fé­lag Akraness lagt hart að Bjarna að aflétta óviss­unni um hval­veiðar. Brynjar Níelsson, fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í Silfrinu á RÚV í gær­kvöld að ráð­herr­anum bæri laga­leg skylda til að afgreiða málið.

Gunnar Bergmann Jónsson

Í leyni­upp­tökum sem Heim­ildin birti í gær segir Gunnar Bergmann Jónsson, sonur Jóns Gunn­ars­sonar, að faðir hans hafi gert samn­ing við Bjarna Bene­dikts­son for­mann um að hann færi inn í ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs­mála sem aðstoð­ar­maður gegn því að setj­ast í fimmta sæti á lista flokks­ins og myndi tryggja fram­gang umsóknar Hvals um veiðar. Gunnar talar jafn­framt um van­hæfi Bjarna sem af fjöl­skyldu­á­stæðum geti ekki skrifað undir. Það myndi því falla í hlut Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra að skrifa undir. Árið 2019 greindi Stundin frá því að for­eldrar Bjarna, Benedikt heit­inn Sveins­son og Guðríður Jóns­dóttir ættu rúm­lega 2,3 pró­sent í Hval. Óljóst er hvort hlut­ur­inn er ennþá inni í dán­ar­búi Bene­dikts. Mannlíf hefur sent fyr­ir­spurn á Bjarna vegna þess máls. Jón hefur sagt að sonur hans hafi sagt ósatt um þessi mál og ekk­ert sé til í því að hann hafi átt umrædd hrossa­kaup.

Bjarni tvístígur

Hermt er að Bjarni sé mjög tví­stíg­andi í mál­inu og sé milli steins og sleggju. Eftir upp­ljóstr­anir Heim­ild­ar­innar er það nán­ast póli­tískur ómögu­leiki að gefa úr leyfið. Kosn­inga­bar­áttan myndi þá snú­ast upp í umræðu um hrossa­kaup og inn­komu Jóns Gunn­ars­sonar í mat­væla­ráðu­neytið með ófyr­ir­sjá­an­legu tjóni fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem nú þegar skrapar botn­inn í skoð­ana­könn­unum.

Á hinn bóg­inn tekur Bjarni þá áhættu að bíða og feta sömu slóð og ráð­herrar VG, Svandís Svav­ars­dóttir og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir fór með því að fylgja ekki þeim ferlum sem taldir eru eðli­legir í stjórn­sýsl­unni og geta kallað skaða­bóta­skyldu yfir íslenska ríkið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins