„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bjarni Ben fékk það óþvegið frá Pírötum: „Af hverju ertu svona? Þarftu alltaf að ljúga?“

Bjarni Ben fékk það óþvegið frá Pírötum: „Af hverju ertu svona? Þarftu alltaf að ljúga?“
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: RÚV-skjáskot

Bjarni Bene­dikts­son fékk aldeilis að heyra það á sam­fé­lags­miðl­inum X (áður Twitter) en hann skrif­aði færslu þar í fyrra­dag þar sem hann skaut á Pírata.

„Í dag er pabba og afa­dagur í leik­skól­anum. Ég mæti í kaffi sem stoltur afi. Það er ótrú­legt en satt að nokkrir þing­menn vildu breyta kenn­inöfnum í manna­nafna­lögum. Ég væri ekki lengur afi heldur for­eldri for­eldris. Vit­leysan ríður ekki við einteym­ing.“ Þannig hljóð­aði færsla Bjarna og við hana birti hann skjá­skot af frum­varpi Pírata sem má sjá hér fyrir neðan.

Píratar og aðrir and­stæð­ingar Bjarna voru ekki lengi að svara for­sæt­is­ráð­herra og sök­uðu hann um vill­andi fram­setn­ingu.

Söng­konan Salka Sól Eyfeld end­ur­birti færslu Bjarna og skrif­aði:

„Þessir drengir sem geta ekki lesið sér til gagns..hann fékk þó að fara í leik­skól­ann, mín börn eru að fara inní vikur þrjú í verk­falli og honum er bara drull.“

Andrés Ingi Jónsson, einn af þeim sem lagði frum­varpið fram svar­aði Bjarna og sagði hann snúa út úr mál­inu:

„Leið­in­legt að sjá þig snúa svona út úr máli sem snýst um að auka sveigj­an­leika í manna­nafna­lögum. Frekar en að mega bara kenna ófeðrað barn til afa síns erum við víkka það út til allra stór­for­eldra (stór­gott nýyrði sem kom eftir þessa fyrstu birt­ingu máls­ins).“

Erlendur nokkur svar­aði einnig og spurði hvað Bjarni hefði á móti ömmum:

„Tillagan sner­ist nú bara um það að breyta þessu þannig að heim­ilt væri að kenna við afa eða ömmu, en ekki bara við afa eins og nú er. Hvað hefur þú á móti íslenskum ömmum?“ Bætti hann einnig við skjá­skoti máli sínu til stuðn­ings.

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, fram­bjóð­andi Pírata svar­aði for­sæt­is­ráð­herr­anum einnig:

„Þetta er bara ekki rétt. Ég veit ekki alveg hvort er verra — að þú snúir vilj­andi út úr til að veiða ein­hver atkvæði með að ýta undir ein­hvern ímynd­aðan ótta, eða að þú sem stjórn­mála­maður og fyrr­verr­andi for­sæt­is­ráð­herra hafir ekki betri lesskiln­ing á frum­varpi.“

Stein­grímur Arason sak­aði Bjarna um lág­kúru:

„Þú veist betur en þetta en kýst engu að síður að koma með þetta svona fram. Lágkúra.“

Friðrik Jónsson spurði Bjarna áleit­inna spurn­inga:

„Af hverju ertu svona? Þarftu alltaf að ljúga?“

Heiðar nokkur er nokkuð ómál­efna­legur í sínu svari til Bjarna:

„Ertu að beita barna­barn­inu þínu í áróður gegn jafn­rétt­is­sjón­ar­miði? við­bjóð­ur­inn þinn.“

Fifi ein­hver tjáði sig einnig í athuga­semda­kerf­inu:

„Hélt þú værir maður frelsis ein­stak­lings­ins. En það er eins og áður bara ein­hver frasi útí loftið.“

Guð­laugur Jón tal­aði tæpitungu­laust í sínu svari:

„Ég veit að þú ert ekki svona vit­laus, en bara til að árétta: Það á EKKI að banna orðin afi og amma. Það ætlar ENGINN að breyta því hvernig fólk talar. Það er verið að breyta orða­lagi í örfáum máls­greinum til að lögin nái yfir breið­ari hóp. Afar og ömmu eru áfram afar og ömmur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins