„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Uppljóstrun: Bjarni bað um útilokun Jóns sama dag og upptakan fór í dreifingu

Uppljóstrun: Bjarni bað um útilokun Jóns sama dag og upptakan fór í dreifingu
Jón Gunn­ars­son

Bjarni Bene­dikts­son til­kynnti ráðu­neyt­is­stjóra í mat­væla­ráðu­neyt­inu að Jón Gunn­ars­son ætti ekki að koma nálægt útgáfu eða vinnu við hval­veiði­leyfa, sama dag og leyni­upp­tökur fóru í dreif­ingu, þar sem sonur Jóns segir frá sam­komu­lagi milli Jóns og Bjarna varð­andi útgáfu hval­veiði­leyfa. Bjarni hafnar því að hafa gert slíkt sam­komu­lag.

Sjálfur sagði Jón, sem er nýskip­aður aðstoð­ar­maður Bjarna í mat­væla­ráðu­neyt­inu, við fjöl­miðla að eitt af því sem hann myndi skoða í ráðu­neyt­inu væru hval­veiðar.

Bjarni Bene­dikts­son sagði í við­tali við Morg­un­blaðið að það hafi „fyr­ir nokkru síðan“ sem hann hafi beðið ráðu­neyt­is­stjór­ann um taka fyrir það að Jón kæmi að vinnslu við hval­veiði­leyfa. Í við­tali við Vísi sagð­ist hann ekki muna hvort það hafi verið í síð­ustu viku eða þeirri þar­síð­ustu.

Heim­ildin upp­ljóstrar því í dag að það hafi verið síð­asta fimmtu­dag, þann 7. nóv­em­ber sem Bjarni beindi þeim fyr­ir­mælum til Bryn­dísar Hlöðvers­dóttur ráðu­neyt­is­stjóra, að Jón skyldi ekki koma nálægt vinnu við hval­veiði­leyfin. Hafði Heim­ildin þetta eftir svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn sinni.

Einnig kemur fram í svar­inu að umsókn Hvals hf. um hval­veiði hafi borist ráðu­neyt­inu 23. októ­ber, degi áður en til­kynnt var um end­ur­komu Jóns á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar og aðstoð­ar­manna­stöðu hans í Mat­væla­ráðu­neyt­inu. Þetta þýðir að 15 dagar liðu frá því að umsókn Hvals barst ráðu­neyt­inu og þar til Bjarni bað Bryndísi um að Jón kæmi ekki að vinnslu hval­veiði­leyfa.

Á leyni­upp­töku óþekktra erlendra sam­taka, sem Heim­ildin sagði frá heyr­ist sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns, Gunnar Bergmann fast­eigna­sali, lýsa því nákvæm­lega hvernig faðir hans þáði fimmta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gegn því að fá stöðu til að vinna að hval­veiði­um­sóknum hjá mat­væla­ráðu­neyt­inu.

Heyrist Gunnar segja Bjarna hafa sagt við föður sinn: „Þú verður að taka sæti á list­anum“.

Gunnar hélt áfram: „En eina sætið sem var eftir var fimmta sætið. Svo hann sagði „ókei“ og tók sér nokkra daga. Á end­anum sagði hann: „Allt í lagi, ég er til­bú­inn að taka fimmta sætið. En þú verður þá að gera eitt­hvað fyrir mig. Ég þarf ein­hverja stöðu.“ Faðir minn sagði við hann [Bjarna Bene­dikts­son]: „Ókei ef ég tek fimmta sætið þá verð ég þinn maður í þessu“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins