„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ugla lætur Bjarna heyra það: „Svona stjórnmál eru hættuleg lýðræðinu“

Ugla lætur Bjarna heyra það: „Svona stjórnmál eru hættuleg lýðræðinu“
Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir. Mynd/Sharon Kil­gannon

„Nýjasta áhyggju­efni Bjarna Ben um að hann megi ekki lengur vera afi út af lít­il­svægri breyt­ingu í laga­texta er klassíkt dæmi um það sem kall­ast ótta­stjórn­mál.Ótta­stjórn­mál eru þegar ein­hver mál sem eru ekki raun­veru­legt vanda­mál eru látin sýn­ast rosa­leg aðför, árás eða útrým­ing hug­mynda, tungu­máls eða gilda. Þá eru mik­il­vægar breyt­ingar fyrir til­tekna minni­hluta­hópa oft teknar úr sam­hengi til þess að vekja til ótta, hræðslu og tor­tryggni í þeirra garð.“ Þannig hefst Facebook-færsla Uglu Stefaníu Krist­jönu­dóttur Jóns­dóttur, fram­bjóð­anda Pírata fyrir kom­andi kosn­ingar.

Í pistl­inum vísar Ugla í færslu Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum X, þar sem hann hélt því fram að Píratar hefðu lagt fram frum­varp sem bann­aði notkun á orð­unum afi og amma og að taka ætti upp for­eldri for­eldris. Hlaut Bjarni fyrir það skammir fjöldi manns sem taldi hann ein­falda málið um of.

Sjá einnig: Bjarni Ben fékk það óþvegið frá Pírötum: „Af hverju ertu svona? Þarftu alltaf að ljúga?“

Ugla heldur áfram:

„Það er aug­ljós veru­leiki að hvorki Bjarni Ben né aðrir afar hætta að vera afar þrátt fyrir ein­hverja lít­il­svæga breyt­ingu í laga­texta. Að halda ein­hverju öðru fram er auð­vitað bara vit­leysa.Breyt­ingin er hluti af stærra frum­varpi sem snýr að allt öðru, en sem hluta af því þá er lagt til að orða­lagi í lögum verði breytt þá leið að ófeðrað barn geti verið kennt við stór­for­eldri (e. grand­parents), í stað þess að geta bara kennt við afa sinn.Það þýðir að börn geta t.d. verið kennd við ömmu sína eða for­eldri for­eldris sem er með kyn­hlut­lausa kyn­skrán­ingu. Það er ekki það sama og að afar megi ekki lengur vera afar. Það segir sig sjálft.“

Segir Ugla að Bjarni viti þetta alveg en sé að beita ótta­stjórn­málum.

„En auð­vitað veit Bjarni Ben þetta alveg.Ótta­stjórn­mál ganga nefni­lega sjaldan út á raun­veru­legar stað­reyndir eða veru­leikan eins og hann er. Þau snú­ast um að vekja til ótta, hræðslu og tor­tryggni í garð minni­hluta­hópa og laga­breyt­inga sem tryggja vernd, öryggi eða inn­gild­ingu þeirra.Þetta sjáum við ekki bara í mál­efnum hinsegin fólks, heldur líka gagn­vart inn­flytj­endum, flótta­fólki, fötl­uðu fólki og í tengslum við rétt­indi kvenna og jafn­rétt­is­bar­áttu almennt.Svona þróun í stjórn­málum er ekki bara óásætt­an­leg, heldur bein­línis hættu­leg—og henni þurfum við öll að hafna. Við græðum ekk­ert á því sem sam­fé­lag að taka undir hana eða taka þátt í henni. Hún ýtir bara undir frek­ari skautun, ójöfnuð og mis­munun í sam­fé­lag­inu. Svona stjórn­mál eru hættu­leg lýð­ræð­inu.“

Að end­ingu kemur Ugla með skila­boð til kjós­enda:

„Það er löngu kom­inn tími til þess að við kjósum öðru­vísi, og hættum að leiða flokka til valda sem stunda svona óheið­ar­leg og bein­línis hættu­leg stjórn­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins