„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hætta við umdeilda lagabreytingu um afnám persónuafsláttar örorku- og lífeyrisþega erlendis

Hætta við umdeilda lagabreytingu um afnám persónuafsláttar örorku- og lífeyrisþega erlendis
Alþingi Íslend­inga

Hætt hefur verið við að afnema per­sónu­af­slátt örorku- og elli­líf­eyr­is­þega sem búa erlendis, í bili að minnsta kosti.

RÚV segir frá því að afar umdeild laga­breyt­ing sem sam­þykkt var á Alþingi á síð­asta ári, nái ekki fram að ganga á þessu þingi. Fyr­ir­ætlun stjórn­valda var að afnema per­sónu­af­slátt þeirra örorku- og elli­líf­eyr­is­þega sem búa erlendis. Ölli sam­þykktin reiði margra en nú hefur verið ákveðið að fresta gild­is­töku lag­anna, svo hægt verði að skoða málið nánar. Meiri­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis leggur nú til að hætt verði alfarið við breyt­ing­una.

Þegar Trygg­inga­stofnun birti til­kynn­ingu um breyt­ing­una á heima­síðu sinni í fyrra varð uppi fótur og fit meðal fólks sem fékk örorku­líf­eyri og urðu margir reiðir, enda sáu þeir fram á að gild­is­tök lag­anna myndi snar­lækka hag þeirra. Á ári er 100 pró­sent per­sónu­af­sláttu 779 þús­und krónur á ári. Tekin var sú ákvörðun að fresta gild­is­töku lag­anna um ár og skoða málið nánar.

Fjár­mála­ráðu­neytið sagði, er hin umdeildu lög voru sam­þykkt, að per­sónu­af­sláttur væri almennt ein­ungis í boði í því landi sem fólk byggi og að í ein­hverjum til­fellum hefði fólk mis­notað kerfið þannig að það fengi afslátt­inn bæði hér á landi og í því landi sem það byggi. Þá sagði ráðu­neytið aukreitis að þó að fólk sem byggi erlendis fengi per­sónu­af­slátt­inn þýddi það ekki endi­lega batn­andi fjár­hags­staða því það borg­aði þá hærri skatta í land­inu sem það byggi í.

RÚV segir frá því í frétt sinni að í svari fjár­mála­eft­ir­lits­ins við spurn­ingar frétta­stof­unnar í febr­úar, hafi komið fram að áhrifin á örorku- og elli­líf­eyr­is­þegar erlendis höfðu ekki verið skoðuð sér­stak­lega. Rétt tæpum tveimur mán­uðum eftir að laga­breyt­ingin var sam­þykkt sendi ráðu­neytið frá sér eft­ir­far­andi: „Verið er að skoða hvort til­vik eru um að fólk njóti engra per­són­uí­viln­ana.“

Í minn­is­blaði fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins til efna­hags- og við­skipta­nefndar í byrjun nóv­em­ber kemur þó í ljós að laga­breyt­ingin gæti haft mikil en tíma­bundin áhrif á líf­eyr­is­þegar sem búa í útlöndum, sér í lagi þeirra sem búi ann­ars staðar en á Norð­ur­lönd­unum. Per­sónu­af­slátt­ur­inn hefði fallið niður hjá þeim ein­stak­lingum um næstu ára­mót og þeir fengið minna útborgað um hver mán­að­ar­mót sem nemur per­sónu­af­slætt­inum. Þá væri fólkið á sama tíma að greiða skatta vegna síð­asta árs í land­inu þar sem það býr. Hins­vegar myndi fólk greiða sama sem ekk­ert í skatt í búsetu­land­inu á öðru ári, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

„Þessi tíma­bundnu áhrif, sem bundin eru við fyrsta árið, geta komið illa við ákveðna hópa og þá einkum þá sem eru að fá örorku­líf­eyri,“ segir í minn­is­blaði fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins