„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dónaskapur á KFC í Faxafeni: „Þú ert ekki að gefa mér eitt né neitt því ég er búin að greiða fyrir“

Dónaskapur á KFC í Faxafeni: „Þú ert ekki að gefa mér eitt né neitt því ég er búin að greiða fyrir“

Jóhanna Ósk Krist­jáns­dóttir seg­ist ekki alveg vera búin að jafna mig eftir heim­sókn á einn af skyndi­bita­stöðum KFC.

Segir:

„Málið er að ég ákvað að fara á KFC í Faxafeni og fá fyrir okkur mæðgur 10 leggja­fötu til að borða í kvöld­mat­inn. Fór í bíla­lúg­una og pant­aði leggja­föt­una og bað um að 5 stykki yrðu sett í BBQ sósu, þar sem við mæðgur erum ekki sam­mála hvort er betra.“

Jóhanna Ósk segir allt hafa þarna verið í góðu og „ég borga þetta og fer svo heim. Er við opn­uðum pakk­ana þá blasti við allt annað en leggir (sem áttu að vera)! Vissu­lega voru 5 bit­arnir í BBQ sósu og hinir 5 bara org­inal en það var 1 leggur og allt hitt voru bringu­bitar og held ég 2 vængir!

Ég hringdi til þeirra í Faxa­fen­inu og kvart­aði, því við vildum fá leggi. Þvílíkum dóna­skap hef ég aldrei orðið fyrir á mínum 65 ára lífs­ferli!“ segir Jóhanna Ósk og bætir við:

„Það var stúlka sem svar­aði mér og hún kunni greini­lega alls ekki neina kurt­eisi né mannasiði. Hún svar­aði mér með svo miklum hroka og dóna­skap. Ég sagð­ist hafa pantað 10 leggja fötu og 5 áttu að vera org­inal og 5 í BBQ sósu EN það sem í köss­unum var mest­megnis bringu­bitar og ein­hverjir vængir og 1 leggur! Hún marg­sagði að það gæti alls ekki verið að ég hefði fengið svo marga bringu­bita því þá hefðu þau þurft að steikja yfir 100 kjúklinga og það hefðu þau ekki gert í dag (það er 1 bringa á hverjum fugli og hverri bringu skipt í 4 bita) þannig að það stenst engan veg­inn.

Hún margend­urtók að það gæti alls ekki verið að ég hefði fengið þetta en ég varð svo fjúk­andi vond er ég horfði á þessa bita og hún á hinum end­anum trúði mér alls ekki. Ég sagð­ist bara koma með þetta til að sýna henni. Já endi­lega komdu bara, þú skalt bara gera það! Hún marg­tuggði það og skellti svo á mig!“

Hún fór með bit­ana til baka:

„Jú ég fór með þetta og var alveg fox­andi ill! Er ég kom á stað­inn kom stúlka að afgreiða mig og hún kann­að­ist við málið, opn­aði kass­ana og sagði þetta eru ekki allt bringu­bitar! Ég skal gefa þér leggi í stað­inn!!!! Þú ert ekki að gefa mér eitt né neitt því ég er búin að greiða fyrir 10 leggi svar­aði ég. Er hún kom svo aftur með rétta pöntun spurði ég hana hvort það hefði verið hún sem ég tal­aði við í sím­ann og jánk­aði hún því. Ég sagði henni að hún þyrfti að læra betur bæði almenna kurt­eisi og mann­leg sam­skipti. Hún tuð­aði eitt­hvað en ég fór með mína 10 leggi eins og ég pantað. Ég get alveg sagt ykkur að kvöld­mat­ur­inn var sko alls ekki eins ljúf­fengur og til stóð og það verður ein­hver bið á að ég fari á KFC.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins