„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lögreglumaður fundinn sekur um manndráp – Skaut 95 ára langömmu með rafbyssu

Lögreglumaður fundinn sekur um manndráp – Skaut 95 ára langömmu með rafbyssu

Lög­reglu­maður sem stuð­aði 95 ára gamla heila­bil­aða langömmu til bana á hjúkr­un­ar­heim­il­inu þar sem hún bjó hefur verið fund­inn sekur um mann­dráp af gáleysi.

Kristian White, sem er 34 ára, not­aði vopn sitt, raf­byssu, á Clare Nowland eftir að hún fannst ráf­andi um Yallambee Lodge umönn­un­ar­heim­ilið í bænum Cooma, bæ sem er um 275 km suður af Canberra í Ástralíu, 17. maí 2023. Lögregla og sjúkra­lið voru kölluð á vett­vang um klukkan fjögur um nótt í kjöl­far frétta um að frú Nowland hefði gengið um heim­ilið með tvo steik­ar­hnífa.

Hinn átak­an­legur dauði frú Nowland vakti mikla reiði almenn­ings, en hinn hátt­setti lög­reglu­þjónn, White hélt því fram að vald­beit­ing hans væri sann­gjörn og hóf­leg í rétt­ar­höld­unum. Sak­sókn­arar héldu því fram að engin hætta hafi stafað af frú Nowland fyrir lög­reglu­mann­inn og að „óþol­in­móður“ White hefði haft umönn­un­ar­skyldu gangvart hinni öldr­uðu langömmu, sem vó aðeins 48 kg.

Þó hún hafi ekki verið opin­ber­lega greind með heila­bilun, hafði frú Nowland sýnt merki um vit­ræna hnignun mán­uðum saman fyrir and­lát sitt og hafði áður hegðað sér á árás­ar­gjarnan hátt gagn­vart heil­brigð­is­starfs­mönnum. Hún hafði á einum tíma­punkti farið inn í her­bergi ann­ars heim­ilis á hjúkr­un­ar­heim­il­inu á meðan hún hélt á hníf­unum, en hann sagði fyrir dómi að hann hafi ekki ótt­ast um öryggi sitt.

Í öðru til­viki hafði hún kastað hníf að starfs­manni. Þegar hún fann langömm­una sagð­ist lög­reglan hafa beðið hana ítrekað um að sleppa hníf sem hún hélt í hægri hönd og reynt að afvopna hana eftir að hafa klætt sig í þykka hanska. Upptökur voru sýndar í rétt­ar­salnum, sem sýndu kon­una nota göngu­grind­ina sína til að færa sig einn metra, sem tók hana eina mín­útu, áður en hún stopp­aði til að lyfta hnífnum.

White ákvað þá að skjóta á kon­una með raf­byssu eftir að hann hafði lyfti vopni sínu og beint því að henni og varað hana við, áður en hann sagði „skítt með það“ og tók í gikk­inn. Nowland var enn í meira en metra fjar­lægð frá lög­reglu­mann­inum en hún féll í gólfið eftir að hún var stuðuð, og fékk við fallið höf­uð­högg sem olli ban­vænni blæð­ingu í heila.

Lög­reglu­mann­inum þótti stafa ógn af hinni 95 ára langömmu.

Brett Hatfield, sak­sókn­ari krún­unnar, sagði við kvið­dóm­endur: „Hverja gæti hún hafa sært á því augna­bliki? Engan.“ Sak­sókn­ari hélt því fram að White hafi „ekki verið reiðu­bú­inn að bíða lengur“ og því skotið á frú Nowland. Lög­reglu­mað­ur­inn hélt því fram í skrif­legri skýrslu að hann hefði notað raf­byssu sínu þar sem hann taldi „ofbeld­is­verkn­aður yfir­vof­andi“.

Lög­reglu­mað­ur­inn sagð­ist einnig ekki hafa talið að hún myndi slasast illa og að dauði hennar hefði ollið því að hann væri „eyði­lagður“ en verj­endur hans vitn­uðu í sönn­un­ar­gögn frá sjúkra­liðum og lög­reglu­fé­laga White, sem sögð­ust hafa fund­ist ógn stafa af hinni öldr­uðu langömu. Dómarar dæmdu White að lokum sekan um mann­dráp af gáleysi. Fjöl­skylda Nowland þakk­aði þeim sem tóku þátt í mál­inu fyrir störf þeirra.

Í yfir­lýs­ingu frá lög­fræð­ingi fjöl­skyld­unnar segir: „Fjöl­skyldan mun taka nokkurn tíma að átta sig á þeirri stað­fest­ingu kvið­dóms­ins um að dauði Clare af hendi starf­andi lög­reglu­manns í NSW hafi verið vegna glæp­sam­legs og órétt­læt­an­legs athæfis.

Karen Webb, lög­reglu­stjóri NSW, sagði að störf White hjá lög­regl­unni væri enn til skoð­unar. Hún bætti við að raf­byssu­stefna og þjálfun lög­reglu­sveit­ar­innar hefði einnig verið end­ur­skoðuð, en þær reynd­ust við­eig­andi.

„Dauði Clare Nowland er hræði­legur harm­leikur … þetta hefði aldrei átt að ger­ast,“ sagði hún. White, sem er enn laus gegn trygg­ingu, mun hljóta dóm síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Manndráp

Kominn á Vernd innan við ári eftir manndrápsdóm: „Ég hef ekki orðið fyrir neinu ónæði“
InnlentManndráp

Kominn á Vernd innan við ári eftir mann­dráps­dóm: „Ég hef ekki orðið fyrir neinu ónæði“

Ungur karl­maður sem dæmdur var í 12 ára fang­elsi fyrir mann­dráp við Fjarð­ar­kaup í apríl í fyrra er laus úr fang­elsi og afplánar nú á vernd. Ýmislegt þarf að koma til svo fólk þurfi ekki að aflána heilan fang­els­is­dóm að sögn fang­els­is­mála­stjóra. Maðurinn, sem er 19 ára, var dæmdur í fang­elsi í nóv­em­ber í fyrra en frá refs­ingu hans dregst...
Kvendansari kyrktur af kærastanum í kynlífsleik: „Við erum algjörlega niðurbrotin“
HeimurManndráp

Kvend­ans­ari kyrktur af kærast­anum í kyn­lífs­leik: „Við erum algjör­lega nið­ur­brotin“

Atvinnu­dans­ari lést á hrylli­legan hátt þegar hún var kyrkt í miðjum kyn­lífs­at­höfnum. Kærasti hennar tók sitt eigið líf stuttu síðar. Hin 26 ára Georgia May Brooke, frá Ossett í Vestur Jór­vík­ur­skíri lést föstu­dag­inn 4. febr­úar árið 2022. Kærasti hennar, Luke Cannon, fannst lát­inn seinna þann dag en hann hafði þá framið sjálfs­víg. Dán­ar­dóm­stjóri sagði frá nið­ur­stöðu sinni í dag en...
Viðurkennir að hafa stungið 87 ára gamlan mann til bana – Gerandinn nýsloppinn úr fangelsi
HeimurManndráp

Við­ur­kennir að hafa stungið 87 ára gamlan mann til bana – Ger­and­inn nýslopp­inn úr fang­elsi

Maður hefur við­ur­kennt sök í mann­dráps­máli en hann stakk 87 ára gamlan mann sem var á raf­skutlu. Hinn 45 ára Lee Byer, stakk hinn 87 ára gamla Thomas O´Halloran í háls­ins og bring­una í Grenn­ford í Vestur-Lundunum, í ágúst 2022. Bryer hefur á bak­inu fjöldi dóma en nokkrum dögum fyrir árás­ina hafði hann verið lát­inn laus úr Wormwood Scrubs fang­els­inu....
Dagbjört ákærð fyrir manndrápið í Bátavogi
InnlentManndráp

Dagbjört ákærð fyrir mann­drápið í Bátavogi

Dagbjört Rún­ars­dóttir, 42 ára, hefur verið ákærð af hér­aðs­sak­sókn­ara, fyrir mann­drápið í Bátavogi. Arn­þrúður Þór­ar­ins­dóttir, sak­sókn­ari hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, stað­festi að búið sé að ákæra grun­aðan sak­born­ing í Báta­vogs­mál­inu, fyrir mann­dráp. Samkvæmt DV er sú ákærða Dagbjört Rún­ars­dóttir, 42 ára. Ekki verður ákæran birt fjöl­miðlum fyrr en sak­born­ingi hefur verið birt hún. Dagbjört er ásökuð um að hafa banað 58...
Tíu ára fangelsi fyrir manndráp
InnlentManndráp

Tíu ára fang­elsi fyrir mann­dráp

Ungur karl­maður var í dag dæmdur fyrir mann­dráp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness og var hann dæmdur í tíu ára fang­elsi en mann­drápið átti sér stað á bíla­stæði Fjarð­ar­kaupa í apríl. Tveir karl­menn fengu tveggja ára dóm og 17 ára stúlka fékk 12 mán­aða skil­orðs­bundin dóm. Samkvæmt heim­ildum Vísis kom upp ósætti milli manns og hóps­ins, sem hlaut dómana, vegna fíkni­efna­neyslu á...
Gæsluvarðhaldi framlengt um tvær vikur
InnlentManndráp

Gæslu­varð­haldi fram­lengt um tvær vikur

Gæslu­varð­haldi yfir konu sem grunuð er um að hafa orðið karl­manni að bana í fjöl­býl­is­húsi við Bátavog, hefur verið fram­lengt um tvær vikur, eða til 18. októ­ber. Samkvæmt til­kynn­ingu frá lög­regl­unni hefur gæslu­varð­haldi yfir konu, 42 ára, verið fram­lengt til 18. októ­ber en það átti að renna út í dag. Konan er grunuð um mann­dráp en sam­býl­is­maður hennar fannst lát­inn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“