Ísland er ekki undanskilið í stríði, brjótist út vopnuð átök utan landamæra Úkraínu samkvæmt fyrrverandi skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu Íslands.
Fram kemur í mbl.is í dag að vegna stríðsins í Úkraínu og aukinnar spennu á alþjóðavísu, standi Ísland nú frammi fyrir gjörbreyttu landslagi þegar kemur að varnarmálum.
Fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, Arnór Sigurjónsson, segir í Morgunblaðinu í dag að þörf sé á sérstöku varnarmálaráðuneyti sem og varnarmálanefnd á Alþingi. Málaflokkinn þarf að taka mun alvarlegar, sérstaklega í ljósi síaukinnar spennu í Evrópu.
Segir hann að ef vopnuð átök brjótist út utan landamæra Úkraínu, mun landfræðileg lega Íslands valda því að landið verði beinn þátttakandi í stríðinu, hvort sem Íslendingum líkar það betur eða verr. Staðsetning Íslands sé „mjög mikilvæg“ fyrir eftirlit með skipa og kafbátaumferð sem og með birgðaflutningum frá Norður-Ameríku til Evrópu.




















Athugasemdir