Einar Steingrímsson stærðfræðingur sendi Skattinum skondinn tölvupóst vegna tíðra skilaboða frá stofnuninni inn á island.is til Einars.
Það eru fáir jafn afkastamiklir færsluhöfundar á Facebook og Einar Steingrímsson, stærðfræðingur og samfélagsrýnir. Þar gagnrýnir hann, að margra mati, réttilega eitt og annað sem betur má fara í samfélaginu en yfirleitt skín kaldhæðnin og húmorinn í gegn. Í gær birti hann tölvupóst sem hann sendi á Skattinn vegna síendurtekinna skilaboða sem Einari hefur borist undanfarið frá stofnuninni. Segir hann að kona hans, Eva Hauksdóttir, lögmaður og aðgerðarsinni, sé farið að gruna að hann eigi í „leynilegu ástarsambandi“ við Skattinn. Biður hann að lokum um að Skatturinn takmarki sendingarnar í ein skilaboð á mánuði. Hér fyrir neðan má lesa hinn skondna tölvupóst:
„From: Einar Steingrimsson
Date: Sat, Nov 30, 2024 at 1:01 PMSubject: Við verðum að hætta þessum tíðu samskiptum … To:
Kæri SkatturinnÍ gær fékk ég fimm pósta um að þú hefðir sent skilaboð í pósthólfið mitt á island.is. Þessir póstar fjölluðu allir um kílómetragjald. Þetta er að verða mjög óþægilegt; konuna mína er farið að gruna að ég eigi í leynilegu ástarsambandi við þig vegna þessara endalausu skilaboða.Gætirðu reynt að takmarka þessar skeytasendingar við svo sem eina í mánuði?Kærar kveðjur … Einar“


























Athugasemdir