„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brynjar er búinn: „Nú er komið að leiðarlokum, ætli ég hafi slegið nýtt met í að hætta í pólitík?“

Brynjar er búinn: „Nú er komið að leiðarlokum, ætli ég hafi slegið nýtt met í að hætta í pólitík?“
Brynjar Níelsson. Mynd/Skjáskot

Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn og fyrrum þing­mað­ur­inn Brynjar Níelsson seg­ist vera orð­inn vanur því „að sofna inni en vakna úti. Slíkt gerð­ist ekki hjá okkur Soffíu í gamla daga. En nú er loks­ins komið að leið­ar­lokum hjá mér í stjórn­málum. Soffía sagði við mig þegar ég vakn­aði að ég hefði hvort eð er ekki getað verið á þing­inu án Pírata. Ég hefði bara reytt hár mitt og klórað mig til blóðs að þurfa hlusta á alla þessa þing­menn sem ætla að gera allt fyrir alla og lækka verð­bólgu og vexti í leið­inni.“

Brynjar hefur verið lengi að í stjórn­mál­unum og seg­ist hvorki vera „sár né svekktur enda vissi ég að brekkan var brött og löng. Ég vil þakka þeim sjálf­stæð­is­mönnum sem lögðu dag við nótt í kosn­inga­bar­átt­unni og sýndu ótrú­lega elju­semi og bar­áttu­vilja. Ég mun mest sakna þeirra. Nú mun ég leita á önnur og ólík mið því and­legt og lík­am­legt atgervi mitt er enn gott þótt margir gætu haldið annað. Ég mun sakna ykkar líka, kæru vinir, meira að segja gamla veg­hef­ils­stjór­ans, Hall­mundar mikla Guð­munds­sonar frá Hvamms­tanga, og þó.“

Að leið­ar­lokum er því komið hjá Brynjari í stjórn­mál­unum og kapp­inn er ánægður með unnin störf:

„Ég er mjög sáttur við þessi ár mín í stjórn­málum. Var hluti af meiri­hluta­sam­starfi síð­asta ára­tug­inn sem náði góðum árangri og oft­ast við erf­iðar aðstæður. Náð að skapa umhverfi fyrir atvinnu­lífið til að blómstra með til­heyr­andi kaup­mátt­ar­aukn­ingu allra þrátt fyrir erf­ið­leika eftir banka­hrunið og síðan heims­far­aldur og loks nátt­úru­ham­farir. Veit ekki til þess að aðrar þjóðir hafi náð við­líka árangri, alla­vega ekki þær sem eru í ESB með lágu vext­ina.“

Brynjar telur að flokkur hans -Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn – þurfi „að fara í nafla­skoðun eftir þessar kosn­ingar. Dugir skammt í mínum huga að benda á marga nýja flokka hægri megin við miðj­una, sem eru ekki einu sinni til hægri þegar betur er að gáð. Ef flokk­ur­inn ætlar að vera áfram leið­andi í íslenskri póli­tík þarf hug­rekki, tala skýrt fyrir stefn­unni og lesa sal­inn. Þá er ég að tala um eigin sal en ekki sali ann­arra til að reyna að þókn­ast öllum.“

Hann spyr að lokum:

„Ætli ég hafi slegið nýtt met í að hætta í póli­tík?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins