„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einar sakar Jónas Sen um einelti: „Láti af mykjudreifingu yfir íslenska tónlistarmenn“

Einar sakar Jónas Sen um einelti: „Láti af mykjudreifingu yfir íslenska tónlistarmenn“
Bríet fékk slæman dóm frá Jónasi Sen

Fátt hefur verið rætt jafn mikið hjá íslenskum tón­list­ar­mönnum und­an­farin sól­ar­hring en dómur sem Jónas Sen birti um tón­leika sem söng­kona Bríet hélt síð­ustu helgi. Dómurinn þykir nokkuð nei­kvæður og fengu tón­leik­arnir aðeins tvær og hálfa stjörnu af fimm mögu­legum. Margt tón­list­ar­fólk hefur í gegnum tíð­ina þótt Jónas vera of nei­kvæður þegar hann gagn­rýnir verk ann­arra.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Einar Scheving er einn af þeim sem kann ekki að meta skrifa Jónasar og sakar hann meðal ann­ars um ein­elti í sinn garð.

„Nokkuð hefur verið rætt á sam­fé­lags­miðlum í dag um ósmekk­lega gagn­rýni Jónasar Sen um jólatón­leika Bríetar. Allir sem eitt­hvert vit hafa á tón­list átta sig á því að Bríet er ein af hæfi­leik­a­rík­ustu tón­list­ar­konum sem við Íslend­ingar eigum og lætur hún því von­andi þetta nið­ur­rif Jónasar sem vind um eyru þjóta,“ skrifar Einar í færslu á Facebook.

Meint aðför að Einari

„Það er jákvætt að fólki sé mis­boðið skrif sem þessi, en stað­reyndin er sú að þessi dap­ur­legi mykju­dreif­ari hefur farið mun óvæg­ari höndum um fjölda ann­arra lista­manna í gegnum tíð­ina. Stóra vanda­málið er senni­lega hversu umburð­ar­lyndir Íslend­ingar eru gagn­vart nið­ur­rifi og ein­elti og það er ekki fyrr en þeir sem eru „heppnir“ með dóma frá honum hætta að hampa þeim á sam­fé­lags­miðlum að nið­ur­rifið og ein­eltið missir flugið.

Þótt Jónas hafi aldrei skrifað um neina af mínum tón­leikum, þá tók hann þátt í ein­elti í minn garð síð­ast­liðið sumar með beinum og óbeinum hætti. Já, ein­elti kall­ast sú aðför sem und­ir­rit­aður varð fyrir í hinu stór­und­ar­lega jazz-Lúk­asar­máli, sem óþarfi er að rifja upp frekar. Og ef ég skyldi dirfast að halda tón­leika í nán­ustu fram­tíð, þá ætla ég að biðja mykju­dreifar­ann Jónas Sen um að halda sig víðs fjarri, enda er hann ekki vel­kom­inn,“ en sú aðför sem Einar vísar til í færsl­unni er sú að fyrr á árinu sak­aði jass­tón­list­ar­mað­ur­inn Sunna Gunn­laugs­dóttir hann um að vera karl­remba en ekki liggur fyrir hvernig Jónas Sen teng­ist því máli.

„Fyrir mörgum árum kenndi Jónas elsta syni mínum á píanó. Það var ekki yfir neinu að kvarta, enda virt­ist Jónas sam­visku­samur kenn­ari og náði hann ágæt­lega til sonar míns. Ég vona því að hann haldi sig við þann starfs­vett­vang sem greini­lega hentar honum vel, en að hann láti af mykju­dreif­ingu yfir íslenska tón­list­ar­menn,“ skrifar trommar­inn svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins