„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hildur sat þögul fjölmarga fundi um grænu vöruskemmuna í Mjódd: „Um algjört skipulagsslys að ræða“

Hildur sat þögul fjölmarga fundi um grænu vöruskemmuna í Mjódd: „Um algjört skipulagsslys að ræða“
Hildur Björns­dóttir odd­viti

Hildur Björns­dóttir, leið­togi sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, og aðrir borg­ar­full­trúar komu í mörgum til­vikum að afgreiðslu á skipu­lagi og bygg­ingu umdeildrar vöru­skemmu við Álfa­bakka 2a í Suður-Mjódd. Þetta kemur í ljós þegar fund­ar­gerðir Reykja­vík­ur­borgar eru skoð­aðar og rýnt í það hverjir mættu á fundi. Sú hroll­vekja sem nú blasir við var fyr­ir­sjá­an­leg án þess að nokkur hreyfði and­mælum.

Hildur full­yrti í sam­tali við Morg­un­blaðið 14 des­em­ber að breyt­ingar hefðu ekki komið fyrir skipulagráð.
„Þetta er skipu­lag sem hefur tekið breyt­ingum frá 2009 og í minni tíð höfum við ekki fengið breyt­ingar inn til ráðs­ins. Þetta hefur verið að velkj­ast á milli skipu­lags­full­trúa og bygg­ing­ar­full­trúa og ekki komið fyrir ráðið. Ég hef óskað eftir gögnum frá skipu­lags­full­trúa, skrif­stofu borg­ar­stjórnar, en ekki fengið sam­þykkt­ina. Þess vegna reka allir upp stór augu núna þar sem til­lagan var aldrei kynnt kjörnum full­trúum,“ segir Hildur um vöru­húsið sem nú skyggir á fjöl­býl­is­hús við hlið­ina.

Hildur segir að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi ekki sam­þykkt lóða­út­hlut­un­ina við Álfa­bakka þegar hún kom fyrir borg­ar­ráð í júní 2023 og segir þá hafa lengi talað fyrir heild­ar­end­ur­skoðun skipu­lags­ins með það fyrir augum að efla Mjóddina sem þjón­ustu­kjarna og styrkja Breið­holtið.

Maður finnur hræði­lega til

„Það er alveg ljóst að hér er um algjört skipu­lags­slys að ræða og ekki við Haga að sakast, heldur er klúðrið algjör­lega á ábyrgð borg­ar­innar. Maður finnur hræði­lega til með íbúum sem virð­ast hrein­lega staddir í ein­hverjum fanga­búðum eftir að þessi kald­rana­legi járn­veggur reis fyrir framan stofu­glugg­ann hjá þeim. Þetta mál er með öllu óskilj­an­legt.“
Full­yrð­ingar Hildar í Morg­un­blað­inu, 14.12.2024, bls 6:

Hildur sagð­ist ekki finna í sínum gögnum að skipu lags­ráð hafi sam­þykkt þessa bygg­ingu.
„Þetta er skipu­lag sem hefur tekið breyt­ingum frá 2009 og í minni tíð höfum við ekki fengið breyt­ingar inn til ráðs­ins. Þetta hefur verið að velkj­ast á milli skipu­lags­full­trúa og bygg­ing­ar­full­trúa og ekki komið fyrir ráðið. Ég hef óskað eftir gögnum frá skipu­lags­full­trúa, skrif­stofu borg­ar­stjórnar, en ekki fengið sam­þykkt­ina. Þess vegna reka allir upp stór augu núna þar sem til­lagan var aldrei kynnt kjörnum full­trúum.“

Hildur segir að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi ekki sam­þykkt lóða­út­hlut­un­ina við Álfa­bakka þegar hún kom fyrir borg­ar­ráð í júní 2023 og segir þau hafa lengi talað fyrir heild­ar­end­ur­skoðun skipu­lags­ins með það fyrir augum að efla Mjóddina sem þjón­ustu­kjarna og styrkja Breið­holtið.

„Það er alveg ljóst að hér er um algjört skipu­lags­slys að ræða og ekki við Haga að sakast, heldur er klúðrið algjör­lega á ábyrgð borg­ar­innar. Maður finnur hræði­lega til með íbúum sem virð­ast hrein­lega staddir í ein­hverjum fanga­búðum eftir að þessi kald­rana­legi járn­veggur reis fyrir framan stofu­glugg­ann hjá þeim. Þetta mál er með öllu óskilj­an­legt.“

Tímalína máls­ins með fókus á þetta kjör­tíma­bil sem hófst 1. júní 2022:

Við mat á sann­leiks­gildis ofan­greindra full­yrð­inga þarf að skipta tíma­línu máls­ins í þrennt:
Í fyrsta lagi þegar málið er afgreitt í aug­lýs­ingu í lok júní 2022 og svo afgreitt sem nýtt
deiliskipu­lag í októ­ber 2022;

í öðru lagi þegar úthlutun lóðar er sam­þykkt og sala bygg­inga­rétt­ar­ins í borg­ar­ráði í júní
2023;

í þriðja lagi þegar málið er komið til bygg­inga­full­trúa til að afgreiða end­an­lega gerð húss­ins en það ferli er í gangi síð­sum­ars 2023 fram til hausts­ins 2024.

Hinn 6. apríl 2022 fór lóð­ar­haf­inn að Álfa­bakka 2 (þá Höfða­byggð ehf) fram á að fjórar lóðir á svæð­inu yrðu sam­ein­aðar í eina. Beiðnin send að lokum til umhverfis- og skipu­lags­ráðs og tekin fyrir á fundi ráðs­ins 29. júní 2022:

Umhverfis- og skipu­lags­ráð

Ár 2022, mið­viku­dag­inn 29. júní kl. 9:09, var hald­inn 235. fundur umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur. Fund­ur­inn var hald­inn að Borg­ar­túni 12 – 14, 7. hæð, Hofi. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum: Alex­andra Briem, Elísabet
Guðrúnar Jóns­dóttir, Hildur Björns­dóttir, Kjartan Magn­ús­son, Líf Magneu­dóttir, Pawel Bartoszek, Þor­valdur Dan­í­els­son og áheyrn­ar­full­trú­arnir Kolbrún Bald­urs­dóttir og Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir
starfs­menn sátu fund­inn:, Björn Axelsson, Borg­hildur Sölvey Sturlu­dóttir, Bjarni Rúnar Ingv­ars­son, Guð­mundur Benedikt Frið­riks­son, Inga Rún Sig­urð­ar­dóttir, Jóhanna Guð­jóns­dóttir og Sig­ur­jóna Guðna­dóttir.
Fund­ar­rit­ari var Glóey Helgu­dóttir Finns­dóttir.
15. dag­skrár­liður:Álfa­bakki 2A, 2B, 2C og 2D, breyt­ing á deiliskipu­lagi (04.603.6) Mál nr. SN220193
Lögð fram umsókn Álfa­bakka 2 ehf. dags. 6. apríl 2022 varð­andi breyt­ingu á deiliskipu­lagi Suður-Mjóddar vegna lóð­anna nr. 2A, 2B, 2C og 2D við Álfa­bakka. Í breyt­ing­unni felst að lóð­irnar eru sam­ein­aðar í eina lóð og bygg­ing­ar­reitur er lengdur til norð­urs,
sam­kvæmt uppdr. K.J.ARK ehf. dags. 4. apríl 2022. Lagt er til að til­lagan verði afgreidd í aug­lýs­ingu. Samþykkt að aug­lýsa fram­lagða til­lögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr.
skipu­lags­laga nr. 123/2010.
Málinu vísað til borg­ar­ráðs.

Ár 2022, fimmtu­dag­inn 7. júlí, var hald­inn 5669. fundur borg­ar­ráðs. Fund­ur­inn var hald­inn í Ráðhúsi Reykja­víkur og hófst kl. 09:03. Viðstödd voru auk borg­ar­stjóra, Einar Þor­steins­son, Alex­andra Briem, Hildur Björns­dóttir, Pawel Bartoszek, Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, Skúli Þór Helgason og Trausti Breið­fjörð
Magn­ús­son. Einnig sátu fund­inn áheyrn­ar­full­trú­arnir Helga Þórð­ar­dóttir og Líf Magneu­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Theodór Kjart­ans­son og Ívar Vincent Smárason. Fund­ar­rit­ari var Helga Björk Laxdal.
3. dag­skrár­liður Lagt fram bréf umhverfis- og skipu­lags­sviðs, dags. 30. júní 2022, sbr. sam­þykkt umhverfis- og skipu­lags­ráðs frá 29. júní 2022 á aug­lýs­ingu á til­lögu að breyt­ingu á deiliskipu­lagi Suður-Mjóddar vegna lóða nr. 2A, 2B, 2C og 2D við Álfa­bakka, ásamt fylgi­skjölum. MSS22070021
Samþykkt.
Glóey Helgu­dóttir Finns­dóttir og Björn Axelsson taka sæti á fund­inum undir þessum lið með raf­rænum hætti.

Ár 2022, mið­viku­dag­inn 5. októ­ber kl. 09:07, umhverfis- og skipu­lags­ráð Reykja­víkur halda 243. fund sinn. Fund­ur­inn var hald­inn að Borg­ar­túni 12 – 14, 7. hæð, Ráðs­salur. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum: Alex­andra Briem, Birkir Ingi­bjarts­son, Líf Magneu­dóttir, Marta Guð­jóns­dóttir, Pawel Bartoszek, Þor­valdur Dan­í­els­son og áheyrn­ar­full­trú­arnir Ásta Þórdís Skjald­dal Guð­jóns­dóttir og Kolbrún Bald­urs­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Ólöf Örv­ars­dóttir, Ámundi V. Brynj­ólfs­son, Árný Sig­urð­ar­dóttir, Ásdís Ásbjörns­dóttir, Björn Axelsson, Borg­hildur Sölvey Sturlu­dóttir, Eva Krist­ins­dóttir, Halldóra Trausta­dóttir, Hjalti Jóhannes Guð­munds­son, Guð­mundur Benedikt Frið­riks­son, Gunnar Her­sveinn Sig­ur­steins­son, Nikulás Úlfar Másson og Sig­ur­jóna Guðna­dóttir.
Fund­ar­rit­ari var Glóey Helgu­dóttir Finns­dóttir.
Þetta gerð­ist:
Kl. 9:10 tekur Kjartan Magn­ús­son sæti á fund­inum.
Sjöundi dag­skrár­liður: Álfa­bakki 2A, 2B, 2C og 2D, breyt­ing á deiliskipu­lagi
(04.603.6) Mál nr. SN220193 Að lok­inni aug­lýs­ingu er lögð fram að nýju umsókn Álfa­bakka 2 ehf. dags. 6. apríl 2022 varð­andi breyt­ingu á deiliskipu­lagi Suður-Mjóddar vegna lóð­anna nr. 2A, 2B, 2C og 2D við Álfa­bakka. Í breyt­ing­unni felst að lóð­irnar eru sam­ein­aðar í
eina lóð og bygg­ing­ar­reitur er lengdur til norð­urs, sam­kvæmt uppdr. K.J.ARK ehf. dags. 4. apríl 2022.Tillagan var aug­lýst frá 21. júlí 2022 til og með 2. sept­em­ber 2022. Eft­ir­taldir sendu inn athuga­semdir:
Sigurdís Jóns­dóttir dags. 5. ágúst 2022 og Sigurdís Jóns­dóttir og Birgir Rafn Árnason dags. 1. sept­em­ber 2022. Einnig er lögð fram ábend­ing Veitna dags. 30. ágúst 2022 ásamt umsögn skipu­lags­full­trúa, dags. 15. sept­em­ber 2022. Lagt til að til­lagan verði sam­þykkt.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipu­lags­laga nr. 123/2010.
Vísað til borg­ar­ráðs.
Björn Ingi Edvards­son, verk­efna­stjóri tekur sæti á fund­inum undir þessum lið.

Mik­il­vægt gagn fylgdi mál­inu sem lýsir verk­efn­inu sem og and­mælum íbúa.

Ár 2022, fimmtu­dag­inn 13. októ­ber, var hald­inn 5679. fundur borg­ar­ráðs. Fund­ur­inn var hald­inn í Ráðhúsi Reykja­víkur og hófst kl. 08:15. Viðstödd voru, auk borg­ar­stjóra, Einar Þor­steins­son, Hildur Björns­dóttir, Kjartan Magn­ús­son, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir og Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir . Einnig sat fund­inn áheyrn­ar­full­trú­inn Kolbrún Bald­urs­dóttir. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum með raf­rænum hætti með vísan til heim­ildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. sam­þykktar um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011:
Alex­andra Briem og áheyrn­ar­full­trú­inn Líf Magneu­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Þor­steinn Gunn­ars­son, Ebba Schram og Ívar Vincent Smárason.
Fund­ar­rit­ari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerð­ist: Fjórði dag­skrár­liður
Lagt fram bréf umhverfis- og skipu­lags­sviðs, dags. 7. októ­ber 2022, sbr. sam­þykkt umhverfis- og skipu­lags­ráðs frá 5. októ­ber 2022 á til­lögu að breyt­ingu á deiliskipu­lagi Suður-Mjóddar vegna lóð­anna nr. 2A, 2B, 2C og 2D við Álfa­bakka, ásamt
fylgi­skjölum. MSS22070021. Samþykkt.
Borg­a­ráðs­full­trúi Sós­í­alista­flokks Íslands leggur fram svohljóð­andi bókun:
Mik­il­vægt er að fram­tíð­ar­upp­bygg­ing á svæð­inu fari fram í sam­ráði við íbúa svæð­is­ins.

Í gagni sem lagt var fram er að finna athuga­semdir íbúa að Árskógum 7. Hildur Björns­dóttir vís­aði til athuga­semd­anna í útvarps­þætt­inum Sprengisandi 15. des­em­ber 2024 og hag­nýtti
sér þær til að styrkja mál­stað sinn. Þetta lá þó fyrir í gögnum máls­ins þegar borg­ar­ráð tók ákvörð­unin á fundi þess 13. októ­ber 2022. Hún sam­þykkti skipu­lagið á þeim fundi.
Deiliskipu­lagið tekur gildi eftir að aug­lýs­ing nr. 1363/2022 var birt í B-deild Stjórn­ar­tíð­inda 23. nóv­em­ber 2022.

Ár 2023, fimmtu­dag­inn 15. júní, var hald­inn 5707. fundur borg­ar­ráðs. Fund­ur­inn var hald­inn í Ráðhúsi Reykja­víkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru Einar Þor­steins­son, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, Marta Guð­jóns­dóttir, Pawel Bartoszek, Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir. Einnig sátu fund­inn
áheyrn­ar­full­trú­arnir Kolbrún Bald­urs­dóttir og Líf Magneu­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Ebba Schram, Hulda Hólm­kels­dóttir og Þor­steinn Gunn­ars­son. Fund­ar­rit­ari var Ívar Vincent Smárason.
Fimmti dag­skrár­liður
Lagt fram bréf skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara, dags. 12. júní 2023, þar sem óskað er eftir að borg­ar­ráð sam­þykki úthlutun lóðar og sölu bygg­ing­ar­réttar vegna þjón­ustu- og versl­un­ar­hús­næð­islóðar við Álfa­bakka 2a, ásamt fylgi­skjölum. MSS22010247
Samþykkt.
Borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Sós­í­alista­flokks Íslands sitja hjá við afgreiðslu
máls­ins.


Ár 2023, mið­viku­dag­inn 6. sept­em­ber, kl. 9:00
var hald­inn 280. fundur umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur. Fund­ur­inn var hald­inn að Borg­ar­túni 12 – 14, 7. hæð, Hofi. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum: Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son, Hjálmar Sveins­son, Jóhanna Dýrunn Jóns­dóttir, Kjartan Magn­ús­son og Líf Magneu­dóttir. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum með raf­rænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. sam­þykktar um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar varð­andi fjar­funda­heim­ild: Hildur Björns­dóttir og áheyrn­ar­full­trú­arnir Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir og Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son . Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Ólöf Örv­ars­dóttir, Björn Axelsson, Guðbjörg Lilja Erlends­dóttir, Guð­mundur Benedikt Frið­riks­son, Inga
Rún Sig­urð­ar­dóttir og Sig­ur­jóna Guðna­dóttir.

9. dag­skrár­liður, fund­ar­gerðir bygg­inga­full­trúa, 22. og 29. ágúst 2023. Málið alltaf leit­an­legt eftir núm­eri sem kjörnir full­trúar gátu fundið.


Árið 2023, þriðju­dag­inn 22. ágúst kl. 10:15

3. Álfa­bakki 2 – USK23080010 Sótt er um leyfi til að byggja stál­grind­ar­hús, tveggja hæða að hluta, klætt stein­ull­ar­sam­loku­ein­ingum og málm­klæddu yfir­borði á lóð nr. 2 við Álfa­bakka. Stærð, A-rými: 10.764,2 ferm. 75.545,7 rúmm. B rými: 357,2 ferm. Samtals: 11.121,4 ferm., 76.898,3 rúmm. Erindi fylgir bruna­hönnun dags. 20. júlí 2023, mæli­blað dags. 23. mars 2023, hæð­ar­blað dags. 8. júlí 2023 og grein­ar­gerð hönn­un­ar­stjóra um ábyrgð­ar­svið hönn­uða dags. 2. ágúst 2023. Gjald kr. 14.000. Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipu­lags­full­trúa. Engin fyr­ir­spurn eða athuga­semd við þessa afgreiðslu bygg­ing­ar­full­trúa á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs 6. sept­em­ber 2023, samt sat Hildur Björns­dóttir fund­inn.


Ár 2024, mið­viku­dag­inn 6. mars kl. 9:00
var hald­inn 300. fundur umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur. Fund­ur­inn var hald­inn að Borg­ar­túni 12 – 14, 7. hæð, Hofi. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum: Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, Hildur Björns­dóttir, Hjálmar Sveins­son, Kjartan Magn­ús­son, Pawel Bartoszek og áheyrn­ar­full­trú­arnir Ásta Skjald­dal og Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum með raf­rænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. sam­þykktar um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar varð­andi fjar­funda­heim­ild: Líf Magneu­dóttir og Unnur Þöll Bene­dikts­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Ólöf Örv­ars­dóttir, Björn Axelsson, Guðbjörg Lilja Erlends­dóttir, Guð­mundur Benedikt Frið­riks­son, Gunnar Her­sveinn Sig­ur­steins­son,
Inga Rún Sig­urð­ar­dóttir og Hólm­fríður Frosta­dóttir. Fund­ar­rit­ari var Auðun Helgason.
Þetta gerð­ist: Lögð fram fund­ar­gerð afgreiðslu­fundar bygg­ing­ar­full­trúa, dags. 27.
febr­úar 2024.


Árið 2024, þriðju­dag­inn 27. febr­úar kl. 10:10

Álfa­bakki 2A – USK24010088 Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi USK23080010, þannig innra skipu­lagi er breytt auk þess sem bætt er við bíla­kjall­ara undir hús á lóð nr. 2 við Álfa­bakka. Stækku? Erindi fylgir yfir­lit breyt­inga og umsögn skipu­lags­full­trúa
dags. 22. febr­úar 2024. Gjald kr.15.400. Frestað. Vísað í umsögn skipu­lags­full­trúa dags. 22. febr­úar 2024.
Mik­il­vægt gagn, umsögn skipu­lags­full­trúa, er upp­lýsandi, dags. 22. febr­úar
2024. Vel leit­an­legt á net­inu og hægt að finna fyrir kjörna full­trúa.
Frá mars 2024 til sum­ars­ins 2024 fer málið fram og til baka innan emb­ætt­is­manna­kerf­is­ins, bygg­ing­ar­full­trúi er með málið. Svo kemur umhverfis- og skipu­lags­ráð og borg­ar­ráð saman eftir sum­ar­leyfi 2024

Ár 2024, mið­viku­dag­inn 14. ágúst, kl. 9:07 var hald­inn 315. fundur umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur. Fund­ur­inn var hald­inn að Borg­ar­túni 12 – 14, 7. hæð, Hofi. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum: Pawel Bartoszek, Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son, Birkir Ingi­bjarts­son, Hildur Björns­dóttir, Kjartan Magn­ús­son, áheyrn­ar­full­trú­arnir Ásta Þórdís Skjald­dal Guð­jóns­dóttir og Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum með raf­rænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. sam­þykktar um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar varð­andi fjar­funda­heim­ild: Líf Magneu­dóttir, og Elísabet Guðrúnar Jóns­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Ólöf Örv­ars­dóttir, Björn Axelsson, Bjarni Rúnar Ingv­ars­son, Guð­mundur Benedikt Frið­riks­son, Gunnar Her­sveinn Sig­ur­steins­son, Hólm­fríður Frosta­dóttir og Björg Ósk Gunn­ars­dóttir.
Fund­ar­rit­ari var Glóey Helgu­dóttur Finns­dóttir.
1 dag­skrár­liður Lagðar fram fund­ar­gerðir afgreiðslu­fundar bygg­ing­ar­full­trúa, dags. 25. júní 2024, 2. júlí 2024, 9. júlí 2024, 16. júlí 2024, 23. júlí 2024 og 30. júlí 2024. USK24070166


Ár 2024, fimmtu­dag­inn 15. ágúst
, var hald­inn 5749. fundur borg­ar­ráðs. Fund­ur­inn var hald­inn í Ráðhúsi Reykja­víkur og hófst kl. 09:02. Viðstödd voru, auk borg­ar­stjóra, Árelía Eydís Guð­munds­dóttir, Alex­andra Briem, Hildur Björns­dóttir, Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, Skúli Helgason og Þórdís Lóa
Þór­halls­dóttir. Einnig sátu fund­inn áheyrn­ar­full­trú­arnir Líf Magneu­dóttir og Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Björg Magn­ús­dóttir, Hulda Hólm­kels­dóttir og Theodór Kjart­ans­son.
Fund­ar­rit­ari var Helga Björk Laxdal.
15. dag­skrár­liður Lögð fram fund­ar­gerð umhverfis- og skipu­lags­ráðs frá 14. ágúst
2024.
Fylgi­gögn
 Afgreiðslu­fundir bygg­ing­ar­full­trúa 25. júní 2024
 Afgreiðslu­fundir bygg­ing­ar­full­trúa 2. júlí 2024

 Afgreiðslu­fundir bygg­ing­ar­full­trúa 9. júlí 2024
 Afgreiðslu­fundir bygg­ing­ar­full­trúa 16. júlí 2024
 Afgreiðslu­fundir bygg­ing­ar­full­trúa 23. júlí 2024
 Afgreiðslu­fundir bygg­ing­ar­full­trúa 30. júlí 2024
Fund­ar­gerð bygg­inga­full­trúa, 9. júlí 2024:
„Álfa­bakki 2A – USK24010088 Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi USK23080010, þannig að innra skipu­lagi er breytt, auk þess sem bætt er við bíla­kjall­ara undir hús á
lóð nr. 2 við Álfa­bakka. Húsið stækkar um 3.694,0 ferm. og 15.228,9 rúmm. Erindi
fylgir yfir­lit breyt­inga og umsögn skipu­lags­full­trúa dags. 22. febr­úar 2024. Gjald
kr.15.400. Samþykkt. Sam­ræm­ist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Afgreið­ist með sömu
stimplum og stofner­indi. “

Búið að sam­þykkja sjá húsið að Álfa­bakka 2a – Enginn spurð­ist fyrir um málið.


Ár 2024, mið­viku­dag­inn 04. sept­em­ber, kl. 9:00
var hald­inn 317. fundur umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur. Fund­ur­inn
var hald­inn að Borg­ar­túni 12 – 14, 7. hæð, Hofi. Eft­ir­taldir full­trúar tóku sæti á fund­inum: Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son, Hildur Björns­dóttir, Hjálmar Sveins­son, Kjartan Magn­ús­son, Líf Magneu­dóttir, Pawel Bartoszek og
áheyrn­ar­full­trú­arnir Ásta Þórdís Skjald­dal Guð­jóns­dóttir og Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir. Eft­ir­taldir emb­ætt­is­menn og aðrir starfs­menn sátu fund­inn: Ólöf Örv­ars­dóttir, Borg­hildur Sölvey Sturlu­dóttir, Brynjar Þór Jónasson, Guð­mundur Benedikt Frið­riks­son, Inga Rún Sig­urð­ar­dóttir og Guðbjörg Lilja Erlends­dóttir sem tók sæti á fund­inum með raf­rænum hætti, Hólm­fríður Frosta­dóttir og Björg Ósk Gunn­ars­dóttir. Fund­ar­rit­ari var Glóey Helgu­dóttur Finns­dóttir.
6. dag­skrár­liður, fund­ar­gerðir bygg­ing­ar­full­trúa
Afgreiðsla bygg­ing­ar­full­trúa skv. við­auka 2.4 um emb­ætt­is­af­greiðslur bygg­ing­ar­full­trúa við
sam­þykkt um stjórn Reykja­vík­ur­borgar og fund­ar­sköp borg­ar­stjórnar Árið 2024, þriðju­dag­inn
27. ágúst kl. 10:00
Álfa­bakki 2E – USK24070291 Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23080010 með því að
breyta útliti glugga og hand­riða, bæta við fitu­skilju ásamt að skipta hljóð­mön út fyrir hljóð­vegg og fjölga bíla­stæðum auk breyt­inga á innra fyr­ir­komu­lagi á 1. hæð og í bíla­kjall­ara í húsi á lóð nr. 2A við Álfa­bakka. Erindi fylgir greina­gerð bruna­varna dags. 2. júlí 2024 og umsögn skipu­lags­full­trúa dags. 22. ágúst sl.

Af þessu má sjá að Hildur og aðrir borg­ar­full­trúar voru full­kom­lega upp­lýstir um þau mál sem snúa að vöru­skemm­unni í Breið­holti. Enginn gerði athuga­semd og borg­ar­full­trúar geta því ekki hlaup­ist undan ábyrgð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins