„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bjarni Ben við Stefán Einar: „Ég skal segja þér hvað Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn mun gera“

Bjarni Ben við Stefán Einar: „Ég skal segja þér hvað Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn mun gera“

Formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, telur að fyr­ir­ætlan­ir nýrr­ar rík­is­stjórn­ar í Evr­ópu­mál­um eigi geta endað með öðru en ósköp­um fyr­ir stjórn­ina sjálfa; segir að málið sé barasta „allt á röng­unni.“

Þetta og fleira kem­ur fram í ansi ít­ar­legu við­tali við Bjarna á vett­vangi þátt­ar­ins Spurs­mála.

Bjarni seg­ir að Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn muni beita sér af hörku gegn aðild að ESB.

„Það helst sem ég hef við þetta að at­huga er hvernig menn eru að nálg­ast þetta hug­mynda­fræði­lega. Það er ekki óvænt að þeir vildu ýta þessu á und­an sér vegna þess að þau sjá það öll að það er glapræði. Það er eng­inn stuðn­ing­ur við, ef það væri ein­hver stuðn­ing­ur við að ganga í Evr­ópu­sam­bandið núna þá hefðu þau auð­vitað bara viljað klára það núna í janú­ar. Vegna þess að all­ir væru bara að kalla á það að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Hver hefði viljað fresta því í tvö ár eða annað?“

Bjarni Bene­dikts­son.

„Hug­mynda­fræði­lega er þetta al­veg ótrú­lega dap­urt mál. Vegna þess að þeir sem í hjarta sínu trúa því að við eig­um að er­indi inn í Evr­ópu­sam­bandið að það sé hags­muna­mál fyr­ir okk­ur til lengri tíma að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Þeir ættu að segja: Það er þangað sem við ætl­um að fara, við verðum að fara þangað. Það er þarna sem hags­mun­um okk­ar er best borgið. Til þess að leggja af stað í þá veg­ferð og ljúka þeim svo með samn­ing­um þá ætl­um við að bera málið und­ir þjóð­ina í þjóðar­at­kvæði og við ætl­um að sjálf­sögðu að berj­ast fyr­ir því að það verði farið í Evr­ópu­sam­bandið. Og leggja eitt­hvað und­ir, að setja stefnu­mál sitt í kosn­ingu með því að segja þetta er það sem við stönd­um fyr­ir og við ætl­um að standa og falla með því. Nei, það er ekki það sem þau gera. Þau segja: það er svo mik­il­vægt að fram­kalla þjóðar­vilj­ann ein­hvern veg­inn með kosn­ingu og við ætl­um ekk­ert að hafa skoðun á því, við ætl­um ekki að segja fólki hvað það eigi að kjósa. Þetta er bara mál sem er fram­kvæmd­ar­legt atriði. Mik­il­vægt að það fari fram þjóðar­at­kvæða­greiðsla fyrst Jó­hönnu­stjórn­in lét hana ekki fara fram árið 2009 eins og hún átti að gera. Og svo sjá­um við bara hvað kem­ur út úr þessu. Þetta er bara ein­hver furðu­hug­mynd. Þetta hef­ur hvergi verið gert, það hef­ur hvergi nokk­urs staðar verið gert.“

Fáni ESB.

Bjarni er spurður – hvernig end­ar þetta?

„Þetta get­ur ekki endað nema með ósköp­um fyr­ir stjórn­ina. Vegna þess að stjórn­in er að segja að hún ætli að efna til þjóðar­at­kvæða­greiðslu um mál sem hún hef­ur enga sér­staka skoðun á. Ætlar ekk­ert að leggja neitt að veði til þess að fá ein­hverja niður­stöðu með þetta. Þetta er allt sam­an á röng­unni, þetta stend­ur allt sam­an á haus. Enda lagði ég það til að málið færi til þjóðar­inn­ar þegar Jó­hanna og Stein­grím­ur ósk­uðu eft­ir því við þingið að fá að sækja um þá sagði ég hvort við ætt­um ekki að spyrja þjóð­ina fyrst þetta er það sem þið viljið gera. En að segj­ast ætla að boða til þjóðar­at­kvæða­greiðslu án þess að leggja nokkuð und­ir og í sjálfu sér án þess að vera með neitt þing­mál til þess að að setja umræð­una af stað.“

Aftur er Bjarni spurður: Er þetta ekki klókt af þeim?

„Þetta er auð­vitað þannig að það er ekki að halda neinu áfram. Það verður auð­vitað að taka málið upp frá rót­um. Það er al­veg aug­ljóst. Ef þú held­ur að það sé klókt þá segi ég að þetta mun allt enda með ósköp­um, ef það er svona sem menn ætla að halda á þessu. Al­veg eins og all­ar at­kvæða­greiðslur þar sem menn eru bara að fara í gegn­um ein­hver forms­atriði með því að láta kjósa. Þetta er svona, við sáum þetta auð­vitað ger­ast þegar fyrri Ices­a­ve-at­kvæða­greiðslan fór fram þá töl­uðu þau þetta allt sam­an niður, sögðu að þessi at­kvæða­greiðsla væri bara óþarfi, enda fengu þau 98% á móti sér. Og mér finnst bara eng­in brag­ur á því. Ef menn vilja láta kjósa um Evr­ópu­mál­in þá verða menn að setja hjartað í málið.

Ég skal segja þér hvað Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn mun gera.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei í sögu Gallup mælst með minna fylgi.

Hann mun berj­ast gegn því að rík­is­stjórn­in fái heim­ild til þess að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu að nýju. Vegna þess að við erum stjórn­mála­flokk­ur sem hef­ur skoðun á þessu máli. Við eig­um er­indi við þjóð­ina, við höf­um rödd, við höf­um hug­sjón­ir, við ætl­um að leggja þær hug­sjón­ir fyr­ir fólk og biðja það að íhuga hvað það eigi að gera með at­kvæði sitt. Við ætl­um ekki að standa á kant­in­um og segja, ja, hér er bara mál sem er þannig vaxið að við treyst­um okk­ur ekki til að hafa skoðun.“

Spurning til Bjarna: Mun þessi stjórn sitja fjög­ur ár?

„Ég ætla engu að spá fyr­ir um það. Hingað er kom­in stjórn sem hef­ur meiri­hluta á þing­inu og það er mikið und­ir þeim sjálf­um komið hvernig úr spil­ast. Það er ein stjórn sem hef­ur haldið út. Það er rík­is­stjórn­in sem við vor­um í. Hún hélt ekki bara út, hún sat í sjö ár sem er al­gjört met.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins