„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brynjar hæðist að ríkisstjórn Kristrúnar: „Ég er æðislegur og hef þjóðina með mér“

Brynjar hæðist að ríkisstjórn Kristrúnar: „Ég er æðislegur og hef þjóðina með mér“
Inga, Þor­gerður og Kristrún – Mynd: Facebook

Brynjar Níelsson hæð­ist að nýju rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur og segir hana meðal ann­ars lofa upp í erm­ina á sér.

Brynjar Níelsson, Socius parla­menti emeritus, eða upp­gjafa­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins skrif­aði rétt í þessu færslu á Facebook sem er löðr­andi í kald­hæðni og jafn­vel bit­urð gagn­vart nýju rík­is­stjórn Val­kyrj­anna svoköll­uðu. Hæðist Brynjar að rík­is­stjórn­inni í færsl­unni en þó undir rós, lít­illi rós en rós er rós er rós eins og Geir­þrúður sagði um árið.

Færslan hefst á eft­ir­far­andi hátt:

„Eftir 40 ára sam­felldan valda­tíma Soffíu á heim­il­inu tók ég völdum á sama tíma og ný rík­is­stjórn. Soffía er mjög hugsi yfir þessum valda­skiptum og telur, eins og Sjálf­stæð­is­flokku­irnn , og að allt fari í skrúf­una án aðkomu hennar. Segir mig reynslu­lausan, þekk­ingin lítil sem engin og ég lofi upp í erm­ina á mér. Gagnrýni og ábend­ingum taki ég mjög illa og ýmist hreyti í hana ónotum eða bresti í söng.“

Brynjar segir hafa þjóð­ina með sér og að hann hafi opnað sam­ráðs­gátt.

„En ég er æðis­legur og hef þjóð­ina með mér. Soffía veit ekki að ég hef plan. Ég hef opnað sam­ráðs­gátt til að fá til­lögur frá þjóð­inni hvernig hægt sé að spara í heim­il­is­rekstr­inum án þess að draga úr áfengis- og nikótínsneyslu for­stjór­ans eða golf­ferðum hans. Einu brúk­legu til­lög­urnar hingað til eru að hætta að kaupa brenni­víns­álfinn frá SÁÁ í tonna­tali, hætta að fjár­magna upp­eldi og menntun barna um allan heim og leggja auð­linda­gjöld á börnin og barna­börnin. Svo hefur mér verið bent á að löngu tíma­bært sé að hætta smokka­kaupum og annarri eyðslu í getn­að­ar­varnir.“

Að lokum seg­ist Brynjar hafa fund­ist hann þurfa að til­kynna for­stjóra­skiptin.

„Ég var búinn að ákveða að taka mér hlé frá skrifum en fannst að ég þyrfti að láta þjóð­ina vita af þessum for­stjóra­skiptum á heim­il­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húmor

Ónefndur þingmaður kvartaði yfir buxum Jóns: „Svona geta nú umræðurnar á Alþingi verið gáfulegar“
Menning

Ónefndur þing­maður kvart­aði yfir buxum Jóns: „Svona geta nú umræð­urnar á Alþingi verið gáfu­legar“

Kvartað var undan klæða­burði Jóns Gnarr á Alþingi í gær. Jón Gnarr, þing­maður Við­reisnar, skrif­aði Facebook-færslu í gær­kvöldi þar sem hann segir frá því að þing­maður hafi kvartað í gær yfir klæða­burði Jóns á þing­inu en Jón dirfð­ist að mæta í galla­buxum. „Síðan ég hóf störf á Alþingi hef reynt að til­einka mér snyrti­mennsku í klæða­burði. Ég ber mikla virð­ingu...
Grímur geldur fyrir sentimetrana: „Flest er dýrara fyrir þannig menn“
Menning

Grímur geldur fyrir senti­metrana: „Flest er dýr­ara fyrir þannig menn“

Grímur Atlason er yfir tveir metrar á hæð og fær að kenna á því dag­lega. Fram­kvæmda­stjóri hjá Lands­sam­tök­unum Geðhjálp, Grímur Atlason skrif­aði spaugi­lega Facebook-færslu í morgun þar sem hann kvartar sáran undan því að Icelandair hafi neitað honum um sæti við neyð­ar­út­gang. „Flugvél dags­ins er Bola­fjall. Smá jákvæðni í kjöl­far ann­ars leið­inda byrjun dags en Icelandair neit­aði mér um mögu­leik­ann...
Anna er feimið og viðkvæmt blóm: „Hlógu bara að heilsuleysi mínu þar sem ég lá fyrir dauðanum“
Menning

Anna er feimið og við­kvæmt blóm: „Hlógu bara að heilsu­leysi mínu þar sem ég lá fyrir dauð­anum“

Anna Krist­jáns­dóttir er hálf sár út í les­endur sínar en hugg­aði sig við áhorf á Séð og heyrt þáttum Þor­steins J. Í nýjust dag­bók­ar­færslu sinni skrifar vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir um þynnku og Séð og heyrt. Í fyrri hluta færsl­unnar seg­ist hún hafa verið að leit­ast eftir vor­kunn þegar hún skrif­aði í gær um þynnku sem hún þjáð­ist af...
Dagur gantast í umhverfisráðherra: „Fyrirspurnartímanum hefur verið frestað vegna veðurs“
Menning

Dagur gant­ast í umhverf­is­ráð­herra: „Fyr­ir­spurn­ar­tím­anum hefur verið frestað vegna veð­urs“

Dagur B. Egg­erts­son sló á létta strengi í til­efni þess að fyrsti starfs­dagur hans sem Alþing­is­þing­maður var í gær. Þingið hófst loks­ins í gær, eftir að hafa verið í ansi löngu hléi vegna kosn­inga og jóla­fría en þing­menn kepp­ast nú við að byrja ljós­myndir af sér á sam­fé­lags­miðl­unum frá fyrsta vinnu­degi sínum. Óvenju­margir nýliðar eru á þingi þetta kjör­tíma­bil en...
Stefán Pálsson tengir við Dag Sigurðsson: „Stemningin gat orðið ansi stirð á göngum skólans“
Menning

Stefán Pálsson tengir við Dag Sig­urðs­son: „Stemn­ingin gat orðið ansi stirð á göngum skól­ans“

Stefán Pálsson rifjar upp þegar hann var feng­inn til að þjálfa Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti í Morfís-ræðu­keppn­inni þegar hann var á loka­ári hjá Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Setur hann það í sam­hengi við svekk­elsi margra með að Dagur Sig­urðs­son hafi slegið Ísland út úr HM í hand­bolta á dög­unum. Sagn­fræð­ing­ur­inn og gáfu­mennið Stefán Pálsson skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann talar...
Brynjar þjáist af minnisleysi: „Líklega blanda af sljóleika og almennum sauðshætti“
Menning

Brynjar þjá­ist af minnis­leysi: „Líklega blanda af sljó­leika og almennum sauðs­hætti“

Brynjar Níelsson þjá­ist af minnis­leysi og vill að hin nýja rík­is­stjórn geri eitt­hvað í málum minn­is­lausra. „Minni mitt er afar bág­borið og á það bæði við um lang­tíma- og skamm­tíma­minni. Sér­fræð­ingar eru á einu máli að þetta sé ekki heila­bilun því ég hef alltaf verið svona. Líklega ein­hvers konar athygl­is­brestur eða blanda af sljó­leika og almennum sauðs­hætti.“ Þannig hefst Facebook-færsla...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza