„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Árni Grétar var einn fremsti raftónlistarmaður Íslands: „Hann var hlý sál“

Árni Grétar var einn fremsti raftónlistarmaður Íslands: „Hann var hlý sál“
Árni Grétar spil­aði í þætt­inum Stúdíó A – Mynd: Skjáskot

Eins og greint var frá fyrr í dag lést tón­list­ar­mað­ur­inn Árni Grétar Jóhann­es­son í gær en hann var þekktur und­ir­lista­manns­nafn­inu Futuregrap­her.

Árni hafði um ára­bil verið einn af fremstu raf­tón­list­ar­mönnum Íslands og hafa fáir íslenskir tón­list­ar­menn gefið út jafn mikið af tón­list og hann gerði þrátt fyrir að hafa verið aðeins 41 árs gam­all við and­lát. Auk þess að búa til tón­list hjálp­aði hann öðrum tón­list­ar­mönnum að koma sinni tón­list á fram­færi og var einn af stofn­endum Möller Records og þá stofn­aði hann útgáfu­fyr­ir­tækið Móatún 7 árið 2018 sem hefur gefið út tón­list eftir lista­menn á borð við Jóhannes Pálmason, Myoptik og BioFusion.

Hann kom reglu­lega fram á tón­leikum og spil­aði meðal ann­ars á Iceland Airwaves, Sonar Reykja­vík, Aldrei fór ég suður og Extreme Chill auk þess að spila erlendis með reglu­legu milli­bili.



Í ein­lægu við­tali sem Árni veitti Morg­un­blað­inu árið 2016 ræddi hann meðal ann­ars erf­ið­leika sem hann hafði gengið í gegnum en hann hafði glímt við átröskun frá 2004 „Mamma mín dó árið 2004 en þá var pabbi minn líka lát­inn. Þegar ég missti hana fór ég að leita að til­gangi í líf­inu. Ég leidd­ist út í neyslu en út frá því byrj­aði þetta stöðuga sjálfs­nið­ur­rif út af mínu út­liti, að ég væri ekki nógu flott­ur og ekki í nógu góðu formi. Ég var stans­laust að hugsa ein­hverj­ar svona hugs­an­ir þangað til haustið 2004, þá kastaði ég fyrst upp eft­ir mat­ar­lotug­ræðgik­ast,“ sagði Árni Grét­ar í við­tal­inu.

„Það sem er ein­kenn­andi fyr­ir þenn­an sjúk­dóm er að maður er í svo rosa­lega mik­illi af­neit­un. Sjálfs­blekk­ing­in er svo gíf­ur­lega sterk að maður er í raun­inni að ljúga að sjálf­um sér, þetta verður bara al­gjör sýra.“

Árna lét taka til sín á fleiri sviðum en hann starf­aði sem leið­bein­andi á leik­skól­anum Brák­ar­borg í langan tíma. „Reyni mitt besta í að kenna börnum og að vera til fyr­ir­myndar. Gleymi oft mörgu, en þá er gott að hafa börnin í kringum sig sem minna mann á,“ sagði hann um vinnu sína á leik­skól­anum á Facebook.

„Árni var frá­bær sam­starfs­maður. Það var alltaf hægt að treysta á hann og hann veitti manni allan þann stuðn­ing sem hægt var að biðja um á erf­ið­ustu dög­unum í vinn­unni. Ég á eftir sakna hans gíf­ur­lega mikið. Hann fékk mig til að brosa á hverjum degi og hann var hlý sál,“ sagði fyrrum sam­starfs­maður Árna við Mannlíf um and­lát hans.

Árni lætur eftir sig unn­ustu og tvö börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“
Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugn­an­legar lík­kistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

DJ Khaled er orð­inn nýj­ast stjarnan til að fá afhenta óhugn­an­lega lík­kistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka send­ingu á höfð­ingja­setur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggu­lega lík­kista var send að heim­ili Khaleds í Miami síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, af tveimur mann­eskjum sem keyrðu trukki til örygg­is­varðar, og sögð­ust vera frá send­ing­ar­fyr­ir­tæki, sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu. Eftir að þeim...
Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórn­ar­lömb þjóð­ar­morðs­ins á Gaza

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza. Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT! Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var...
The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“
Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tíma­lausum smellum og anda kán­trítón­listar“

Fyrir fjöru­tíu árum, árið 1985, varð kán­trítón­listar saga sköpuð þegar fjórir af bestu tón­lista­mönnum allra tíma, Johnny Cash, Waylon Jennings, Willie Nelson og Kris Kristoffer­son, komu saman til að stofna The Highwaymen. Samstarf þeirra var sam­stundis far­sælt, leiddi til upp­seldra tón­leika, toppplatna og var­an­legrar arf­leifðar sem mót­aði fram­tíð kán­trítón­listar. Kraft­mik­ill og hjart­næmur hljómur þeirra ómaði um allan heim og nú,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza