„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigurjón dæmdur fyrir ítrekaðar nauðganir á fatlaðri konu – Starfaði sem verslunarstjóri Hagkaupa

Sigurjón Ólafsson, sem dæmdur var í gær í átta ára fang­elsi fyrir að nauðga ítrekað and­lega fatl­aðri konu, starf­aði sem versl­un­ar­stjóri í Hag­kaupum um ára­bil. Þá var hann versl­un­ar­stjóri Byko í skamma stund áður en málið kom á borð lög­reglu.

Sigurjón Ólafsson, ríf­lega fimm­tugur, hefur verið dæmdur í átta ára fang­elsi fyrir að hafa ítrekað nauðgað and­lega fatl­aðri konu á árunum 2016 til 2020 sem og fyrir að láta aðra menn hafa við hana kyn­ferð­is­mök. Þá braut hann einnig kyn­ferð­is­lega á and­lega fötl­uðum syni hennar og kær­ustu hans, þegar pilt­ur­inn var á ung­lings­aldri.

Mannlíf sagði frá mál­inu fyrst allra miðla í byrjun nóv­em­ber á síð­asta ári en nú hefur verið dæmt í mál­inu.

Sjá einnig: Versl­un­ar­stjóri grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn fatl­aðri starfs­konu sinni

Í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur kemur fram að vegna alvar­leika brot­anna sé refs­ingin ekki skil­orðs­bund­inn.

Í dóm­inum kemur fram að Sigurjón hafi not­fært sér að konan, sem var und­ir­maður Sig­ur­jóns, hafi ekki getað spornað við verkn­að­inum vegna and­legrar fötl­unar sinnar og hafi beitt hana ólög­mætri nauð­ung með því að nýta sér yfir­burði sína og aðstöðumun, sem og traust hennar vegna stöðu hans gagn­vart henni, þar sem Sigurjón var yfir­maður hennar þegar brotin áttu sér stað.

Tekið er fram í dóm­inum að Sigurjón hafi mis­notað gróf­lega þá aðstöðu sína að hún var háð honum í atvinnu sinni. Sigurjón fékk einnig aðra karl­menn til að eiga við kon­una kyn­mök en þeir eru ekki ákærðir.

Vegna óút­skýrða tafa á rann­sókn máls­ins var ekki hægt að hafa dóm­inn þyngri en hann var.

Í frétt RÚV frá því í des­em­ber kom fram að Sigurjón sé giftur og eigi börn og barna­börn.

Auk hinna átta ára fang­els­is­vist­unar, er honum gert að greiða kon­unni fimm millj­ónir króna, og syni hennar, sem einnig er and­lega fatl­aður, 1,2 millj­ónir króna. Þarf hann aukreit­ist að greiða kær­ustu son­ar­ins hálfa milljón.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á fram­kvæmd­ar­stjóra Hagkaupa í nóv­em­ber þar sem beðið var um stað­fest­ingu á að Sigurjón hefði starfað þar sem versl­un­ar­stjóri en svarið sem barst var eft­ir­far­andi:

„Hagkaup hyggst ekki tjá sig um ein­stak­linga, þar á meðal starfs­fólk sitt eða fyrr­ver­andi starfs­fólk.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs starf­aði Sigurjón sem versl­un­ar­stjóri hjá Byko þegar lög­reglan fékk málið á sitt borð. Var honum sagt upp um leið og það gerð­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins