„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áramótaterta sprakk framan í tíu ára son Alexöndru: „Plís hendið öllu sprengjudraslinu“

Áramótaterta sprakk framan í tíu ára son Alexöndru: „Plís hendið öllu sprengjudraslinu“
Dreng­ur­inn slas­að­ist illa á and­liti. Mynd: Facebook

Tíu ára sonur Alexöndru Johansen slas­að­ist á and­liti þegar flug­elda­kaka sem hann hafði fundið úti, sprakk framan í hann. Biðlar hún til fólks að henda „öllu sprengju­draslinu“.

„Elsku mos­fell­ingar…..

Langar að biðja ykkur um að fjar­lægja allar sprengjur/tertur eftir ykkur eða það sem að þið sjáið úti.“ Þannig hefst færsla Alexöndru Johansen sem hún birti á íbúa­síðu Mos­fells­bæjar en færslan hefur vakið gríð­ar­lega athygli og verið dreift víða. Færslan heldur áfram:„Eins oft og maður biður börnin sín að fikta ekki í þessu að þá ger­ast slysin því miður.Strák­ur­inn minn fann ósprengda litla köku úti og ákvað að prófa að kveikja í henni (án þess að full­orð­inn vissi af) og hún sprakk strax beint í and­litið á honum sem end­aði á að hann fór með sjúkra­bíl upp á bráða­mót­töku…..

Vildi setja þennan póst því ég óska engu barni að lenda í þessu svo plís hendið öllu sprengju­draslinu sem liggur ennþá úti á víða­vangi.“ Með færsl­unni lét Alex­andra fylgja tvær ljós­myndir af syni hennar sem sýna alvar­leika slyss­ins.

Dreng­ur­inn hlaut meðal ann­ars slæman skurð fyrir ofan hægra augað.

Í gær upp­færði Alex­andra færslu sína þar sem hún þakkar fyrir öll fal­legu skila­boðin sem hún hefur fengið og útskýrir betur meiðsli sonar síns:

„Takk fyrir öll fal­legu skila­boðin en þar sem margir hérna þekkja litla gutt­ann okkar og hafa auð­vitað miklar áhyggjur af honum að þá vildi ég láta ykkur vita að hann er ekk­ert smá brattur og er búinn að standa sig eins og hetja. Það hefði getað farið mikið verr! Hann fékk ljótan skurð fyrir ofan augað og þurfti að sauma 9 spor, brunn­inn í öllu and­lit­inu en virð­ist vera að allar háræðar og tauga­endar séu í lagi eins og er, hárið öðru megin sviðið af ásamt auga­brúnum og augn­hárum, mjög bólg­inn í and­liti þannig að hann nær ekki að opna annað augað almenni­lega. En augun hans verða skoðuð betur því hann sér óskýrt á bólgna aug­anu og óljóst með þaðEn endi­lega ræðið þetta við gullin ykkar og brýnið fyrir þeim hætt­una sem fylgir þessu­Það er bara krafta­verk að ekki fór mikið verr.“

Mannlíf ræddi við Alexöndru og spurði hana hvernig drengnum vegnar.

Alex­andra svar­aði: „Það er ennþá smá óvissa með annað augað þar sem það er mikil bólga og ekki hægt að skoða það almenni­lega og sér hann blörrað en förum aftur í næstu viku þegar bólgan hefur aðeins hjaðnað. En hann er með ljótan skurð rétt fyrir ofan auga­brún sem þurfti að sauma og brendur í and­lit­inu sem var sem mun sem betur fer gróa.“

Að lokum bætti hún við:

„En hann mun ná sér en núna tekur bara við bata­ferli í ein­hverjar vikur og krossum bara fingrum með augað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins