„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Súfistinn lokar eftir 30 ára rekstur: „Nú er komið að leiðarlokum“

Súfistinn lokar eftir 30 ára rekstur: „Nú er komið að leiðarlokum“
Súfist­inn og fjöl­skyldan sem á hann. Mynd: Facebook

Kaffi­húsið Súfist­inn í Hafn­ar­firði lokar fyrir fullt og allt föstu­dag­inn 17. jan­úar. Þar með líkur 30 ára starf­semi kaffi­húss­ins.

Eigendur Súfist­ans til­kynntu í gær að rekstri kaffi­húss­ins yrði hætt þann 17. jan­úar en hjónin Birgir Finn­boga­son og Hrafn­hildur Blom­ster­berg stofn­uðu Súfist­ann árið 1994. Síðustu árin hefur kaffis­húsið verið rekið af dætrum hjón­anna en Súfist­inn hefur verið í sama húsi öll árin.

Laug­ar­dag­inn 18. jan­úar verður opið hús í Súfist­anum þar sem gestir geta komið og kvatt eig­end­urnar og kaffi­húsið og fengið sér síð­ustu kaffi­boll­ana.

Hér má lesa til­kynn­ing­una í heild sinni:

Kaffi­húsið Súfist­inn var stofnað árið 1994 af hjón­unum Birgi Finn­boga­syni og Hrafn­hildi Blom­ster­berg og hefur verið rek­inn af þeim og fjöl­skyldu þeirra frá upp­hafi. Súfist­inn fagn­aði 30 ára afmæli sínu í sumar en hann hefur alla tíð verið stað­settur í einu elsta stein­húsi Hafn­ar­fjarðar að Strand­götu 9.

Nú er komið að leið­ar­lokum í rekstri Súfist­ans. Birgir og Hrafn­hildur stofn­uðu stað­inn með tvær ungar dætur sem báðar hafa tekið virkan þátt í rekstr­inum í gegnum tíð­ina. Val­gerður, eldri dóttirin, kom mikið að rekstr­inum fyrr á árum en síð­ast­liðin ár hefur yngri dóttirin, Hjördís, séð um allan almennan rekstur Súfist­ans. Barna­börnin hafa alist upp og unnið á Súfist­anum og eiga margar góðar minn­ingar frá staðnum og dyggum við­skipta­vinum hans. Nú ætlar fjöl­skyldan að snúa sér að öðrum verk­efnum.

Súfist­inn lokar því dyrum sínum fyrir við­skipti fyrir fullt og allt í lok dags föstu­dag­inn 17. jan­úar eftir 30 ára ævin­týri.

Laug­ar­dag­inn 18. jan­úar verður opið hús fyrir alla við­skiptavini Súfstans milli kl. 13:00 og 18:00 þar sem heitt verður á könn­unni og við­skipta­vinir geta hist, kvatt stað­inn, eig­endur og starfs­fólk.

Þann dag mun Halldór Árni Sveins­son opna mál­verka­sýn­ingu með nýjum verkum frá Hellis­gerði sem hann mál­aði sér­stak­lega fyrir veggi Súfist­ans. Sýningin verður aðgengi­leg út jan­úar. Tíma­setn­ingar koma síðar.

Við fjöl­skyldan göngum stolt frá þessu 30 ára starfi okkar og þökkum fyrir allar góðar sam­veru­stundir.

Hjartans kveðjur,

Birgir, Hrafn­hildur, Hjördís, Steinarr, Val­gerður, Davíð Smári og barna­börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins