„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Erum við svo komin á Íslandi að við þekkjum ekki annað en peningalykt?“

„Erum við svo komin á Íslandi að við þekkjum ekki annað en peningalykt?“
Sjó­kvía­eldi – Mynd: Arnarlax Myndin tengist ekki fréttinni beint.

Stefán Ómar Stef­áns­son van Hagen spyr hvort Íslend­ingar þekki ekki annað en pen­inga­lykt.

Stefán Ómar, sem er upp­al­inn Seyð­firð­ingur búsettur í Kaup­manna­höfn, skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann talar um mis­mun­andi gæði laxa, eftir því hvort um sé að ræða villta laxa eða þá sem koma úr „drullugum kvíum“.

Stefán Ómar.

„Hjá Birni í Brekku­koti í annál Halldórs Laxness kost­aði fisk­ur­inn alltaf það sama, hvernig sem fram­boði ann­ars var háttað. Þannig var þegar lítið var fram­boð og fiskur dýr var hann ódýr­ari hjá Birni, en þegar vel gafst og mikið fram­boð var og verð á mark­aði lækk­aði, var hann dýr­ari hjá Birni. Þeir sem versl­uðu við hann héldu því þó áfram, enda voru gæði fisks­ins hans talin öllu betri en hjá stór­út­gerð­inni.

Þetta er skrifað 1956.“ Þannig hefst færsla Stefáns Ómars en næsta setn­ing und­ir­strikar meg­in­mál færsl­unnar: „Lax úr eldi er mun síðri vara en villtur lax. En það virð­ast mann­rétt­indi nú til dags að fá lax á diskinn sinn.“

Því næst segir Stefán Ómar það sama gilda um lamba­kjöt:

„Einnig elska Íslend­ingar lamba­kjötið sitt. Og það er hvergi betra. Satt best að segja fékk ég guð­dóm­legt lamb í Suður-Afríku á 29 ára afmæl­inu mínu, 2012. Það er lamb sem hefur gengið á fjöllum, nán­ast villt eins og heima. Og auð­vitað væri lamb sem væri alið í búri á korni og fæðu­bóta­efni mun síðra en lambið sem beit fjalla­grös allt sum­arið. Og í annarri Laxness-sögu er sagt að rollur sem ganga í fjör­unum bragð­ist mun verr en þær af fjöllum, þara­bragðið.“

Að lokum spyr Stefán Ómar áleit­inna spurn­inga:

„Erum við svo komin á Íslandi að við þekkjum ekki annað en pen­inga­lykt? Og er okkur sama um gæði þeirrar vöru sem við leggjum okkur til matar? Eða viljum við kaupa hjá Birni í Brekku­koti og hans fólki, ferskan villtan fisk úr alvöru sjó, frekar en úr drullugum kvíum?“

Ríflega 6.000 manns hafa skrifað nafn sitt við und­ir­skrift­ar­lista gegn sjó­kvía­eldi á Seyð­is­firði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjókvíaeldi

Katrín rakst á Jens Garðar á barnum: „Sagði ekki mögulegt að stöðva sjókvíaeldi í Seyðisfirði“
Innlentsjókvíaeldi

Katrín rakst á Jens Garðar á barnum: „Sagði ekki mögu­legt að stöðva sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði“

Katrín Odds­dóttir seg­ist hafa rek­ist á Jens Garðar Helgason sem tjáði henni að ekki væri mögu­leiki á að stöðva fyr­ir­hugað sjó­kvía­eldi í Seyði­firði. Und­ir­skriftir gegn þeim áformum eru orðnar fleiri en 10.000. „Rakst á Jens Garðar á barnum í gær og hann sagði að það væri ekki mögu­legt að stöðva sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði,“ skrif­aði lög­fræð­ing­ur­inn og aðgerð­ar­sinn­inn Katrín Odds­dóttir á...
Blammerar Múlaþing:„Ef ég væri Seyðisfjörður myndi ég sækja um skilnað úr þessu léléga hjónabandi“
Innlentsjókvíaeldi

Blammerar Múlaþing:„Ef ég væri Seyð­is­fjörður myndi ég sækja um skilnað úr þessu léléga hjóna­bandi“

Katrín Odds­dóttir segir for­sendu­brest vera kom­inn í sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga fyrir austan. Lög­fræð­ing­ur­inn Katrín Odds­dóttir er afar ósátt, eins og 75 pró­sent Seyð­firð­inga, með fyr­ir­ætl­anir sveit­ar­stjórnar Múla­þings að leyfa sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði. Bendir lög­fræð­ing­ur­inn á texta sem birt­ist á heima­síðu hins nýja sveit­ar­fé­lags þann 25. mars 2022 og þá sér­stak­lega á eft­ir­far­andi texta: „og um leið er byggð­ar­kjörn­unum áfram tryggt ákvörð­un­ar­vald...
Seyðfirðingar drógu línu í sjóinn – Friðlýstu fjörðinn með neyðarblysum
Landið

Seyð­firð­ingar drógu línu í sjó­inn – Frið­lýstu fjörð­inn með neyð­ar­blysum

Þann 12. októ­ber síð­ast­lið­inn var hald­inn sam­stöðu­fundur gegn sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði undir heit­inu „Við drögum línu í sjó­inn – Verndum Seyð­is­fjörð“. Á fund­inum var sýnt nýtt mynd­band sem sýnir sam­stöðu­gjörn­ing þar sem kajakræð­arar draga línu í sjó­inn með því að raða sér upp í röð, kveikja á neyð­ar­blysum og loka þannig firð­inum með tákn­rænum hætti. Lagið Oral sem Björk Guð­munds­dóttir...
Kæra MAST fyrir að veita Arnarlaxi rekstrarleyfi: „Stofnanir hafa ekki sjálfstæðan vilja“
Innlent

Kæra MAST fyrir að veita Arn­ar­laxi rekstr­ar­leyfi: „Stofn­anir hafa ekki sjálf­stæðan vilja“

Íslenski nátt­úru­vernd­ar­sjóð­ur­inn, auk NASF, land­eig­endur og íbúar á Vest­fjörðum hafa nú kært útgáfu MAST á rekstr­ar­leyfi handa Arn­ar­laxi fyr sjó­kví­elda á laxi í Ísa­fjarð­ar­djúpi. „Við hjá Íslenska nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum höfum ásamt NASF, land­eig­endum og íbúum á Vest­fjörðum kært til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála útgáfu Mat­væla­stofn­unar (MAST) á rekstr­ar­leyfi handa Arn­ar­laxi fyrir sjó­kvía­eldi á laxi í utan­verðu Ísa­fjarð­ar­djúpi, út af Drangs­vík, Eyjahlíð...
Vill halda þjóðfund um sjókvíaeldi: „Lagasetningin fullkomlega fáranlegt að mínu mati“
Innlentsjókvíaeldi

Vill halda þjóð­fund um sjó­kvía­eldi: „Laga­setn­ingin full­kom­lega fár­an­legt að mínu mati“

Katrín Odds­dóttir stingur upp á þjóð­fund um sjó­kvía­eldi. Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur, segir Artic Fish vera rústa íslenskri nátt­úru. Lög­fræð­ing­ur­inn og bar­áttu­konan Katrín Odds­dóttir hefur verið einn ötul­asti and­stæð­ingur sjó­kvía­eld­is­frum­varps­ins sem lagt var fram í vor af mat­væla­ráð­herra Vinstri grænna. Og hún hefur ekk­ert gefið eftir í and­stöðu sinni þó að afgreiðsla frum­varps­ins hafi frest­ast fram á haust. Í nýrri Facebook-færslu...
Segir sögusagnir um ánægðju með lagareldisfrumvarpið ósannar: „Þetta má aldrei verða að lögum!“
Innlent

Segir sögu­sagnir um ánægðju með lagar­eld­is­frum­varpið ósannar: „Þetta má aldrei verða að lögum!“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir segir orðróm í gangi um að nátt­úru- og land­vernd­ar­sam­tök séu ánægð með breyt­ingar sem gerðar hafi verið á lagar­eld­is­frum­varp­inu, ósannan. Hvetur hún Íslend­inga til að skrifa nafn sitt á und­ir­skrift­ar­lista gegn frum­varp­inu. „Tæplega 7000 manns hafa skrifað undir og nú verður fólk að spíta í lóf­ana og skrifa undir og deila eins og mest það má. Und­ir­skrifta­lista...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins