„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Karlmaður elti 13 ára stúlku í Laugardalnum: „Hún öskraði á hann og hljóp í átt að Laugarásvegi“

Karlmaður elti 13 ára stúlku í Laugardalnum: „Hún öskraði á hann og hljóp í átt að Laugarásvegi“

Þrettán ára stúlka hljóp undan karl­manni í Laug­ar­dalnum í gær­kvöldi en mað­ur­inn hefur ekki enn fund­ist.

Kona nokkur sagði frá því í íbúða­hópi Lang­holts­hverfis á Facebook í gær að þrettán ára dóttir hennar hafi verið á leið heim til sín eftir íþrótta­æf­ingu um klukkan 18:00. Hún hafi verið að ganga í átt að Áskirkju, nærri Grasa­garð­inum þegar hún heyrði karl­mann sem faldi sig bak­við tré segja „komdu“. „Hún öskr­aði á hann og hljóp í átt að Laug­ar­ás­vegi og hann á eftir henni,“ skrif­aði móð­irin.

Segir hún að fólk í hlaupa­hópi hafi stoppað til að hjálpa dóttur hennar og að þau hafi leitað að mann­inum en hann hafði þá falið sig ein­hvers­staðar utan göngu­stígs­ins. Stúlkan hljóp síðan í ofvæni heim án þess að líta til baka. Samkvæmt stúlkunni var mað­ur­inn mjög hávax­inn og sterk­byggður og með lága rödd. Hann hafi verið klæddur í svarta eða dökka úlpu eða hettu­peysu með hett­una uppi en hún hafi ekki séð mikil smá­at­riði í myrkr­inu.

„Vildi bara láta þig vita svo við getum fylgst með þessu og haldið börnum okkar öruggum,“ skrif­aði móð­irin að lokum.

Mannlíf heyrði í Unnari Má Ást­þórs­syni, aðal­varð­stjóra lög­reglu­stöðv­ar­innar á Hverf­is­götu og spurði hann út í málið. Stað­festi hann um að lög­reglan hafi brugð­ist skjótt við til­kynn­ing­unni en að mað­ur­inn hafi ekki fund­ist. Næstu skref sé að athuga hvort örygg­is­mynda­vélar hafi verið á svæð­inu en telur hann ólík­legt að svo sé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins