„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hrafnhildur Guðfinna er látin

Hrafnhildur Guðfinna er látin
Kerti Mynd: Manoj Dewangan – pexels.com

Hrafn­hildur Guðfinna Thorodd­sen lést á Land­spít­al­anum í Fossvogi þann 16. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hún var 51 árs.

Fram kemur í frétt mbl.is að Hrafn­hildur fædd­ist 18. apríl 1973 í Reykja­vík en for­eldrar hennar eru Auður Guð­jóns­dóttir, skurð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur, fædd 1948 og Ólafur E. Thorodd­sen hæsta­rétt­ar­lög­maður, fæddur 1945, dáinn 2023 en þau skildu.

Hef­bund­inni skóla­göngu lauk Hrafn­hildur frá Grunn­skól­anum á Sel­tjarn­ar­nesi og stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð árið 2002. Árið 1989 lenti hún í alvar­legu bílslysi og lam­að­ist fyrir neðan mitti. Kín­verskur skurð­læknir að nafni Zhang Shaocheng, kom til Íslands árin 1995 og 1996 og gerði til­rauna­skurð­að­gerðir á Hrafn­hildi ásamt Halldóri Jónssyni bækl­un­ar­lækni sem þá var yfir­læknir bækl­un­ar­deildar Land­spít­al­ans. Þær aðgerðir snéru að því að tengja milli­rifja­taugar fram hjá mænu­skað­anum og tengja þær ásamt tauga­bút úr fæti við mænu­taglið.

Að því er fram kemur hjá mbl.is fór Hrafn­hildur eftir þetta í nokkrar lækn­is­með­ferðir til Bret­lands, Frakk­lands og Rúss­lands og gat eftir það gengið í spelkum fyrir neðan hné í göngu­grind. Þá fór að bera á bein­þynn­ingu sem allir lam­aðir fá en hún fór að fót­brotna og eftir að hún hafði brotnað sex sinnum ákvað hún að not­ast alfarið við hjóla­stól.

Hrafn­hildur, auk móður hennar, stofn­aði árið 2007 Mænu­skaða­stofnun Íslands sem hefur það hlut­verk að vekja athygli á mænu­skaða sem og að þrýsta á lækn­ingu við honum. Starfaði Hrafn­hildur á ýmsum vinnu­stöðum í gegnum ævina en lengst af í Íþrótta­húsi Sel­tjarn­ar­ness.

Seinni maður Auðar, móður Hrafn­hildar, er Bjarni Hall­dórs­son skip­stjóri, fæddur 1944. Hrafn­hildur á tvær systur en sú eldri er Ólöf Jónína Thorodd­sen hönn­uður, fædd 1969 en hún á tvö börn. Yngri systir hennar er Guðrún Dóra Bjarna­dóttir geð­læknir, fædd 1982 og á hún þrjú börn.

Útför Hrafn­hild­ar fer fram föstu­dag­inn 24. janú­ar frá Nes­kirkju við Haga­torg kl. 13. Þeim sem vilja minn­ast henn­ar er bent á Mænu­skaða­stofn­un Íslands, kt. 411007-1030, reikn. 311-26-81030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins