Nú er búið að kynna alla þá flytjendur sem taka þátt í Söngvakeppninni 2025 og mun siguratriðið taka þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands í Sviss í maí. Mörg góð lög eru í boði eins og venjan er og verður erfitt fyrir þjóðina að gera upp hug sinn.
En við spurðum lesendur Mannlífs: Hvaða atriði vilt þú senda í Eurovision 2025.
Niðurstaðan er sú að tæplega 34% þeirra sem tóku þátt vilja að Stebbi JAK fari í Eurovision fyrir hönd Íslands og er BIRGO í 2. sæti með 15% atkvæða.
Það verður forvitnilegt að sjá hvort keppnin endar á þann máta.
| Svar | Hlutfall |
|---|---|
| Stebbi JAK með lagið Frelsið Mitt / Set Me Free 33.83% | 33,83% |
| BIRGO með lagið Ég flýg í storminn / Stormchaser 15.04% | 15,04% |
| Júlí og Dísa með lagið Eldur / Fire 14.29% | 14,29% |
| VÆB með lagið RÓA 13.53% | 13,53% |
| Bjarni Arason með lagið Aðeins lengur 6.02% | 6,02% |
| BIA með lagið Norðurljós / Northern Lights 5.26% | 5,26% |
| Dagur Sig með lagið Flugdrekar / Carousel 4.51% | 4,51% |
| Ágúst með lagið Eins og þú / Like You 3.76% | 3,76% |
| Tinna með lagið Þrá / Words 2.26% | 2,26% |
| Bára Katrín með lagið Rísum upp / Rise Above 1.50% | 1,50% |

























Athugasemdir