„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ugla uggandi yfir Trump: „Ógnar bókstaflega lýðræðinu og heimsöryggi eins og það leggur sig“

Ugla uggandi yfir Trump: „Ógnar bókstaflega lýðræðinu og heimsöryggi eins og það leggur sig“
Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna Mynd: JOE RAEDLE / Getty Images via AFP

„Það sem er auð­vitað mest ógn­vekj­andi við vígslu Trump til for­seta er ekki bara það að hann ætli sér að taka öll laga­leg rétt­indi af trans fólki og helst þurrka þau út í laga­legum skiln­ingi — heldur er það sú stað­reynd að það er fólk sem kaus hann til valda, vit­andi að hann stendur á móti öllu sem teng­ist jafn­rétti og mann­rétt­inda­bar­áttu. Svo djúpt sokkin er Banda­ríska þjóðin í and­stöðu við fram­farir, upp­lýs­inga­óreiðu og algleymsku á heim­sög­unni.“ Þannig hefst Facebook-færsla Uglu Stefaníu Krist­jönu­dóttur Jóns­dóttur, sem vakið hefur gríð­ar­lega athygli frá því að hún birt­ist í gær.

Ugla, sem sjálf er trans kona segir að nú muni trans fólk muni neyð­ast til að vera í skápnum og muni upp­lifa aukið ofbeldi:

„Auðvitað er stað­reyndin sú að trans fólk mun aldrei hætta að vera til, sama hvaða laga­bók­stafur er inn­leiddur, eða hversu oft fólk heldur því fram að þau séu það ekki. Trans fólk mun ein­fald­lega neyð­ast til að vera í skápnum, upp­lifa aukið ofbeldi og neyð­ist til að flýja á brott, ef þau hafa yfir höfuð tök á. Hið sama gildir um aðra minni­hluta­hópa sem mun verða vegið að harka­lega í kom­andi for­seta­tíð Trump.“

Þá segir Ugla að málið snú­ist ekki aðeins um trans fólk því um sé að ræða yfir­hylm­ingu yfir „allt hitt“.

„En auð­vitað snýst þetta ekk­ert bara um trans fólk — það er bara yfir­hylm­ing yfir allt hitt. Hann ætlar sér nefni­lega að ganga úr Par­ís­ar­sátt­mál­anum á tímum skæðrar lofts­lags­váar, hefur talað um að „kaupa“ Grænland, og margt fleira sem ógnar bók­staf­lega lýð­ræð­inu og heims­ör­yggi eins og það leggur sig.“

Enn­fremur segir hún að fólk eins og Trump noti „við­kvæma hópa sem blór­ar­böggla og sem skot­mörk“:

„Það er nefni­lega þannig að fólk eins og Trump notar við­kvæma hópa sem blór­ar­böggla og sem skot­mörk — og færir sig svo ofar á skaftið og ýtir frek­ari öfga­stefnu fram. Hægt og rólega fær­ast mörkin, og fyrr en við vitum eru mörkin komin að öryggi allra borg­ara, en ekki bara þeirra við­kvæm­ustu. Það sér það allt heil­vita­fólk að Trump og stefnur hans eru öfga­stefnur, og ekk­ert annað en fas­ismi.“

Spyr Ugla í færsl­unni hvort fólk ætli að leyfa sög­unni að end­ur­taka sig:

„Við þekkjum alveg þessa sögu — hún er fast­lega rituð í sögu­bæk­urnar. Spurn­ingin er bara hvort við ætlum virki­lega að leyfa sög­unni að end­ur­taka sig, eða hvort við ætlum að gera okkar allra besta til að sjá til þess að slíkt ger­ist ekki.“

Að lokum segir Ugla það skipta máli að hafa stjórn­völd sem berj­ist gegn þró­un­inni í sam­starfi við aðrar þjóðir:

„Þar skiptir máli að hafa stjórn­völd sem taka höndum saman við önnur lönd og stuðla að því að ríkir kyn­ferð­is­af­brota­menn með dóma á bak­inu og með mik­il­mennsku­brjál­æði í þokka­bót rústi ekki þeim fram­förum sem hefur tekið alltof langan tíma að ná.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

transréttindi

Alexandra áhyggjufull vegna tilskipunar Trump: „Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð“
Innlenttransréttindi

Alex­andra áhyggju­full vegna til­skip­unar Trump: „Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð“

„Jæja, það er alveg orðið óum­deil­an­legt og ljóst að nýr banda­ríkja­for­seti er ekki bara kom­inn bein­línis í stríð við trans fólk og okkar rétt­indi, hann er bein­línis spenntur fyrir því að fara í hart í þeirri bar­áttu.“ Þannig hefst Facebook-færsla Alexöndru Briem sem hún birti í gær. Þar deilir hún áhyggjum sínum vegna nýrrar til­skip­unar Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta sem segir...
Grímur tekur upp hanskann fyrir transfólk: „Sprettur úr sama ranni: fáfræði og hræðslu“
Innlenttransréttindi

Grímur tekur upp hansk­ann fyrir trans­fólk: „Sprettur úr sama ranni: fáfræði og hræðslu“

Grímur Atlason tekur upp hansk­ann fyrir trans­fólk og skýtur fast á Eld Smára Krist­ins­son í leið­inni. Fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar, Grímur Atlason, blandar sér í umræð­una sem skap­að­ist eftir að Snorri Másson skrif­aði grein þar sem hann ver tján­ing­ar­frelsi Elds Smára Krist­ins­sonar, for­manns Sam­tak­anna 22, sem Samtökin 78 hafa kært fyrir hat­urs­orð­ræðu. Jóhannes Þór Skúlason, stjórn­ar­maður Sam­tak­anna 78, skrif­aði síðan grein þar...
Alexandra Briem: „Ef þú styður Trump, þá ertu andstæðingur minna réttinda“
Innlent

Alex­andra Briem: „Ef þú styður Trump, þá ertu and­stæð­ingur minna rétt­inda“

Alex­andra Briem segir að þeir sem styðji Donald Trump, verð­andi Banda­ríkja­for­seta, séu and­stæð­ingar rétt­inda hennar, en hún er er trans­kona. Fram­bjóð­andi Pírata fyrir kom­andi kosn­ingar, Alex­andra Briem skrif­aði Facebook-færslu þar sem hún birtir setn­ingu frá fram­boðs­síðu Donalds Trump, þar sem kemur fram að hann muni biðja Banda­ríkja­þing að sam­þykkja frum­varp sem kveður á um að rík­is­stjórnin við­ur­kenni aðeins tvö kyn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins