„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óútskýrð geimför og uppljóstrarinn – Birtu myndbönd af fljúgandi furðuhlutum yfir Íslandi

Óútskýrð geimför og uppljóstrarinn – Birtu myndbönd af fljúgandi furðuhlutum yfir Íslandi
Alvarps­drengirnir.

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir félag­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áfram­hald­andi umræðu um fljúg­andi furðu­hluti. 

Í þætt­inum fóru strák­arnir yfir nokkrar nýjar frá­sagnir Íslend­inga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafn­leynd og tals­vert myndefni fylgdu frá­sögn­unum. Það sem vakti mestu athygl­ina voru mynd­bönd sem tekin voru í Njarðvík og Graf­ar­vogi í nóv­em­ber og des­em­ber á síð­asta ári.

Dularfullir hnettir

Mynd­böndin sýna það sem virð­ist vera óvenju skærar stjörnur en þegar þysjað er inn sést að ekki er um hefð­bundnar stjörnur að ræða. Það sem sést er að um svo­kallað hnetti eða það sem á ensku kall­ast orbs að ræða en þeir virð­ast iða af ein­kenni­legri orku eða jafn­vel af ein­hverju virð­ast vera hrein orka. Strák­arnir veltu því fyrir sér hvort eins­konar „plasma“ væri það sé þeir væru að horfa á en Gunnar sagði Arnóri frá við­tali sem hann heyrði við mann Vest­an­hafs sem sagði að það sem við erum að sjá í þessum hnöttum sem sjást útum allan heim þessa dag­ana sé truflun í segul afli sem skapað er með tækni flý­gild­is­ins sem knúið er af and­seg­ul­afli. Það skal tekið fram að and­seg­ul­afls­svið er sam­kvæmt vís­indum ekki mögu­legt að skapa þó svo að það komi títt og iðu­lega fram í frá­sögnum þeirra sem segj­ast hafa unnið við þessi för undir háleyni­legum skykkjum eins og Bob Lasar sem fjallað var um í síð­asta þætti. Það er sem er einnig ein­kenni­legt við þessa hnetti er að sam­kvæmt þeim sem tóku myndefnið eiga þeir það til að birt­ast og hverfa í tíma og ótíma og stundum ferð­ast þeir hægt um en ef þeir ferð­ast á meiri hraða skilja þeir eftir sig rákir í alls­konar litum.

Þessi vitni sem stíga fram með sínar frá­sagnir kjósa að koma fram undir nafn­leynd. Þessir ein­stak­lingar treysta drengj­unum í Þvotta­hús­inu en flest þeirra hafa aldrei talað um þessa hluti við nokkurn skap­aðan mann í ótta við að það sé gert grín af þeim og þau talin með ein­hverja geð­kvilla. Óþroskuð og oft á tíðum ofbeld­is­full við­brögð er eitt­hvað sem þessir ein­stak­lingar eru að upp­lifa títt og iðu­lega. Í því sam­hengi sagði Gunnar frá því að síð­asta föstu­dag kom Gísli Martin fram með glensi og gas­lýs­ingum í sam­bandi við frá­sögn kon­unar sem drengirnir fjöll­uðu um í síð­asta þætti. Gunnar sagði þetta ekk­ert nýtt af nál­inni, þau sem hafa séð hafa þessa hluti og stigið fram hafa upp­lifað margoft harka­legar afleið­ingar og því kjósa flestir að koma fram undir nafn­leynd. 

En frá­sagn­irnar og myndefnið sem kom fram í þessum þætti er ein­stakt og vilja Gunnar og Arnór þakka þeim sem deildu frá­sögnum sínum með þeim inni­lega fyrir traustið. Gunnar og Arnór sögð­ust vera til að fjalla áfram um þennan mála­flokk svo lengi sem þeim ber­ist efni og upp­lýs­ingar og því er öllum þeim sem hafa ein­hverjar upp­lýs­ingar og myndefni frjálst að hafa sam­band í gegnum [email protected] og fullum trún­aði og virð­ingu er heitið.

Mikið gengið á síðustu vikur

Mikið hefur gengið á síð­ustu tvær vikur í UFO heim­inum, það má með réttu segja að hann sé á hvolfi og þá aðal­lega í kjöl­far nýj­ustu frétta um upp­ljóstr­ara innan innsta kopp banda­ríska hers­ins sem komu fram um helg­ina með væg­ast sagt ótrú­legar frá­sagnir og myndefni sem gætu alveg eins hafa komið úr vís­inda­skáld­sögu. 

Í einka­við­tali við Ross Coulthart hjá News Nation sagði upp­ljóstr­ar­inn Jacob Barber að hann hafi starfað sem þyrlu­flug­manns verk­taki fyrir djúp­rík­is­her­deild og hans hlut­verk hafi verið í ein 10 ár að sækja alls kyns flý­gildi af ójarð­neskum upp­runa. Barber útskýrði í við­tal­inu hvernig flý­gildin oft eru boðin til að lenda eða tekin yfir af mann­eskjum sem kall­ast “psionics”, mann­eskja sem gegnir því hlut­verki og starfar í þessum verk­efnum er hæfi­leikum gædd hvað varðar bæði skyggni­gáfu og “tel­epat­íska” eig­in­leika til sam­skipta. 

Í við­tal­inu hjá News Nation spyr Ross hann hvort þessir hlutir, flý­gildi séu óvenju­leg eða afbrigði­leg. Barber svar­aði því á þá leið að þessir hlutir, hvað sem þeir væru, væru ekki mann­legir. Hann seg­ist einnig hafa orðið vitni af ótrú­leg­ustu hlutum sem þessi flý­gildi geta gert sem brýtur á bága við allt sem við teljum mögu­legt, meðal ann­ars hefur hann séð flý­gildi koma bók­staf­lega úr jörð­inni, ferð­ast í gegnum fjöll og börð eins og að enga um fyr­ir­stöðu er að ræða. 

Í þessum þætti News Nation sem sýndur var síð­asta laug­ar­dag voru einnig sýnt mynd­band sem aldrei hefur verið sýnt áður sem sýnir flý­gildi vera fært af hrap­stað. Flý­gildið virð­ist vera um 7 metra stórt og egg­laga. Barber segir ekki hafa verið neinar sýni­legar merk­ingar á hlutnum né merki um hreyfla, sam­sk­eiti né útblástur. 

Það geta þess að News Nation braut þögn David Grusch sum­arið 2023 sem leiddi til þess að stutta seinna koma hann fram fyrir banda­ríska þing­nefnd og flutti þar eiðsvorin vitn­is­burð. Í þeim vitn­is­burði sagði hann frá starfi sínu, sem sneri að grein­ingu og við­tölum fyrir leyni­þjón­ustu hers­ins við aðila sem höfðu með að gera alls­konar háleynd­ar­verk­efni og deildir við­riðin UFO eða UAP að gera.  Hann hélt því fram að ólög­legar og óreglu­væddar djúp­ríkis her­deildir væru búin að stunda svo­kallað “crash retri­eval” verk­efni sem einmitt snúa að því sem Jake Barber talar um í nýjasta við­tali News Nation. Einnig hélt David Grusch því fram að náðst hafa svokölluð “biologics” eða líf­verur af ójarðneksum upp­runa sem fljúga þessum flý­gildum.

Gunnar og Arnór fóru yfir efni þess­ara nýju upp­ljóstrana sem UFO heim­ur­inn hefur beðið eftir nú í nokkra daga þrátt fyrir að þráð­leitur orðrómur um að hann væri á leið­inni hafi reikað um í nokkrar vikur. Hægt er að horfa á þátt­inn hér fyrir neðan en einnig á streym­isveitum á borð við Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

geimverur

Birta myndbönd af dularfullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög vanmáttug gagnvart árás úr geimnum“
Menning

Birta mynd­bönd af dul­ar­fullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög van­máttug gagn­vart árás úr geimnum“

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir niður kump­án­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríð­ar­legri aukn­ingu meintra til­fella fljúg­andi furðu­hluta. Síðan í lok nóv­em­ber á síð­asta ári hefur til­fellum fjölgað alveg gríð­ar­lega þar sem venju­legt fólk seg­ist verða vitni af fljúg­andi furðu­hlutum eða UFO. Ferlið sem virt­ist hefj­ast með dul­ar­fullum hnetti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza