„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sindri grunaður um fjárdrátt upp á minnst 13 milljónir: „Mikið áfall fyrir starfsfólk Tjarnarbíós“

Sindri grunaður um fjárdrátt upp á minnst 13 milljónir: „Mikið áfall fyrir starfsfólk Tjarnarbíós“
Tjarn­ar­bíó Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sindri Þór Sig­ríð­ar­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Tjarn­ar­bíós er grun­aður um að hafa dregið að sér að minnsta kosti 13 millj­ónir frá Tjarn­ar­bíói frá lokum árs 2021.

„Því miður get ég stað­fest þær fréttir um að fyrrum fram­kvæmda­stjóri Tjarn­ar­bíós sé grun­aður um fjár­drátt. Um er að ræða langt tíma­bil, eða allt frá lok árs 2021 þegar Sindri fékk aðgang að sjóðum Tjarn­ar­bíós þar til ég upp­götv­aði mis­fellur í bók­haldi Tjarn­ar­bíós í byrjun árs.“ Þetta segir Snæbjörn Brynjars­son leik­hús­stjóri Tjarn­ar­bíós í færslu sem hann birti á Facebook rétt í þessu. Segir hann það hafa verið mikið áfall fyrir starfs­fólk Tjarn­ar­bíós að heyra af grun­semdum Snæ­björns.

„Það var mikið áfall fyrir starfs­fólk Tjarn­ar­bíós, stjórn, lista­fólk og aðra vel­unn­ara þegar ég lýsti fyrir þeim mínum grun­semdum. Það fyrsta sem ég gerði var að leita til sér­fræð­inga til ráð­gjafar, enda aldrei verið í álíka stöðu. Ég get nú upp­lýst að við höfum safnað tölu­verðu magni af gögnum um málið sem við munum afhenda lög­reglu, en bæði ég og stjórn Menn­ing­ar­fé­lags­ins höfum fullan hug á að kæra.“

Segist hann enn­fremur hugsa fyrst of síð­ast um hag allra þeirra sem starfa í Tjarn­ar­bíói og að hann vildi miklu frekar segja frá uppi­standi, dans­verkum og fleira sem í boði er í Tjarn­ar­bíói en um fjár­drátt­inn.

„Í þessu máli hef ég fyrst og fremst verið að hugsa um hag þeirra fjöl­mörgu sem starfa í Tjarn­ar­bíó. Mörg hund­ruð manns á ári hverju koma í húsið til að skapa. Nánast hver ein­asta sýn­ing þessa dag­anna er fyrir fullu húsi.

Ég myndi því vita­skuld frekar vilja segja frá uppi­standi, söng­leikum, dans­verkum og áhrifa­miklum ein­leikjum í fjöl­miðlum. En því miður er það þannig að þess í stað verð ég leggja fram kæru og fylgja henni eftir eins vel og ég get.“

Að lokum biður Snæbjörn um góða strauma til lista­mann­anna sem vinna í hús­inu.

„Ég mun reyna að upp­lýsa alla fjöl­miðla sem óska eftir því eins vel og ég get án þess að spilla rann­sókn­ar­hags­munum í mál­inu. Og bið ykkur um að senda góða strauma til þeirra lista­manna sem eru í hús­inu frá því snemma morg­uns, langt fram á nótt að vinna að sinni list­sköpun.“

Mannlíf spurði Snæbjörn um þá upp­hæð sem Sindri er grun­aður um að hafa dregið að sér. „Rannsókn mun leiða í ljós end­an­lega upp­hæð, þetta er a.m.k þrettán millj­ónir síðan 2021,“ svar­aði Snæbjörn í skrif­legu svari.

Aðspurður um breyt­ingar á rekstri Tjarn­ar­bíó svar­aði Snæbjörn: „Það sem breyt­ist í rekstr­inum er fyrst og fremst að heið­ar­legra fólk mun fást við bók­haldið sem mun vafa­laust með tím­anum styrkja rekst­ur­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins