„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mótmæli Sólveigar sögð efla veitingastaðinn Finnsson – Stóraukin aðsókn og sumir koma oft í viku

Mótmæli Sólveigar sögð efla veitingastaðinn Finnsson – Stóraukin aðsókn og sumir koma oft í viku
Veit­inga­stað­ur­inn Finnsson í Kringl­unni. Allt var með kyrrum kjörum á föstu­dag­inn. Mynd: Reynir Trauastason.

Fullyrt er að aðsókn á veit­inga­stað­inn Finnson Bistro í Kringl­unni hafi stór­auk­ist eftir að stétt­ar­fé­lagið Efling hóf að mót­mæla við stað­inn og vara við­skipta­vini við að skipta við stað­inn. Mótmælin snú­ast um það að Óskar Finnson veit­inga­maður og hans fólk er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem sam­þykkir til­veru­rétt verka­lýðs­fé­lags­ins Virð­ingar og býður sínu starfs­fólki að starfa undir sam­þykki þess félags og snið­ganga þannig Eflingu.

Sólveig Jóns­dóttir for­maður heldur því fram að hið nýja félag sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem starfi í þágu atvinnu­r­enda. Sólveig Anna ræddi málið þar sem hún sagði að um væri að ræða félag sem var stofnað af atvinnu­rek­endum til að hafa af fólki laun. Sólveig sagði Eflingu hafa fengið veður af því að starfs­fólk Finnson hafi verið skráð í Virðingu.

Tíð­inda­fólk Mannlífs mætti á Finnson í hádeg­inu á föstu­dag­inn í lið­inni viku. Við pönt­uðum karfa af mat­seðli. Stað­ur­inn var troð­fullur af gestum og ekk­ert bólaði á mót­mæl­endum. Þjónn sem gekk um beina á staðnum upp­lýsti aðspurður að aðsóknin hefði auk­ist við aðgerð­irnar. Dæmi væru um að við­skipta­vinir kæmu nokkrum sinnum í viku til að snæða og láta í ljósi stuðn­ing sinn við eig­endur og starfs­fólk. Þjónninn sagð­ist vera í Eflingu, enda væri ekki þrýst á starfs­menn að fara í hið nýja félag. Hann sagð­ist vera ósam­mála aðgerðum Eflingar og styddi þá stefnu eig­end­anna að hringja á lög­regl­una þegar Sólveig og félagar hennar birt­ast með gjall­ar­hornið.

Þjónninn seg­ist halda sig við Eflingu til að verja áunnin rétt­indi sína eftir að hafa verið í félag­inu um langt ára­bil. Finnson hefði alltaf staðið við gerða kjara­samn­inga við sig og engin ástæða til refsi­að­gerða gagn­vart staðnum.

Tekið skal fram að heim­sóknin á Finnson var ekki gefin upp sem frétta­öflun og þjónn­inn ræddi við okkur eins og hverja aðra við­skipta­vini. Karfinn reynd­ist vera ágætur og verðið á honum skikk­an­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins